júní 02, 2006

Samverjinn

Í vikunni keypti ég tabloid blað í fyrsta skipti í Bretlandi.

Kom lítið á óvart hversu innihaldsrýrt það var engu að síður var þetta með "betri" í slúðurblöðunum, sem yfirleitt hefur einhverjar heimildir fyrir "fréttum" sínum, hið hægrisinnaða Daily Mail.

Ástæðan var forsíða blaðsins þann daginn. Aðalfrétt dagsins var af Tom Grant sem var stunginn til bana í lest þegar hann reyndi að ganga á milli pars sem átti í illdeilum í sama vagni.

Í kjölfarið hefur mis-paranojurík umræða farið í gang í Bretlandi um hvort fólk sé hætt að "skipta sér af" af hættu við hvaða afleiðingar það kunni að hafa í för með sér.

Það breytir því ekki að hvílir ákveðin borgaraleg skylda á okkur öllum og það sem henti Tom Grant var undantekningartilfelli. Að sjálfsögðu verður alltaf að meta aðstæður en að sitja aðgerðarlaus er stundum ekki til boða fyrir sómakæra manneskju.
Agust skrifaði 02.06.06 15:58

Flokkun: UK