júní 12, 2006

Internet-persónur

Eitthvað sem bloggarar ættu að lesa: For Some, Online Persona Undermines a Résumé

Það er þó ekki bara internetið sem getur komið aftan að þér með þessum hætti. Vinkona mín, sem er í sama námi og ég, fékk starfsþjálfunarstöðu hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu, þar sem hún hafði verið valin úr hópi umsækjanda á annað þúsundið. Þegar hún var búin að segja upp leigunni og gera allar ráðstafanir til að flytja aftur vestur og beið eftir staðfestingu um hvenær hún mætti byrja, var henni þess í stað tilkynnt að umsóknin félli niður af öryggisástæðum. Það eina sem kemur til greina hjá þessum fyrirmyndarborgara er að a) hún hefur búið meira og minna í 5 ár erlendis, aðallega í Úkraínu þar sem hún vann fyrir (bandarísk) mannréttindasamtök og b) meðan hún dvaldi í nokkra mánuði í Washington D.C. vann hún með samtökum sem leituðu stuðnings gegn innrásinni í Írak (fyrir innrásina).

Það getur því líka verið skaðlegt að hafa samvisku og fylgja henni. Nú, eða búa í útlöndum of lengi.
Agust skrifaði 12.06.06 11:28

Flokkun: Internetið