júní 22, 2006

Bob Dylan - aftur

Ég er að fara að sjá Bob Dylan í Cardiff á þriðjudaginn. Það þýðir að ég mun hafa séð hann tvisvar sinnum á átta mánuðum.

Þetta er 65 ára afmælistónleikarnir hans, sem hann heldur í Bretlandi og Írlandi af einhverjum ástæðum. Evrópurtúrinn hans í fyrrahaust var mjög vel heppnaður og þóttu tónleikarnir hér í landi sérstaklega vel lukkaðir.

Hjalti Snær Ægisson, orðabókasafnari og fyrrum veffrömuður, er hinsvegar að fara við þriðja mann á báða tónleikar Dylans, því þeir fara að sjá hann í Bournmouth á miðvikudag. Sem er hið besta mál.

Vonbrigðarspjótin hljóta hinsvegar að beinast að formanni Íslandsdeildar áhugafólks um að veita Dylan Nóbelinn, sem lætur þarna annað tækifæri fram hjá sér fara til að bera gamla manninn augum.

Í Kilkenny á Írlandi mun hann spila á festivali ásamt m.a. Voilent Femmes og Flaming Lip, áður en hann treður upp á Hróarskelduhátíðinni.
Agust skrifaði 22.06.06 16:13

Flokkun: Menning
Comments

Þar sem að formaðurinn er ennþá að borga niður síðustu heimsóknina til þín þá held ég að það sé komið nóg af þessu í bili... en þú ert náttúrulega velkominn í kaffi og bakkelsi á Eggertsgötuna any day...

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 22.06.06 16:35

Hehehe :)

Það er svona þegar maður hleypir þér lausum í HMV og Virgin Megastore ;)

En ertu ekki annars með góðan sófa í stofunni?

Ágúst skrifaði 22.06.06 16:39