júní 22, 2006

Dr. Freud

Þórir Há Gunnarsson, vinur stóra mannsins, á MSN:
Strumpurinn segir að TVUPlayer virkar á nýjan leik... hello HM says:
Rónarnir eru sjúklingar og merki um hið ömurlegasta í samfylkingunni
Strumpurinn segir að TVUPlayer virkar á nýjan leik... hello HM says:
samfélaginu
Strumpurinn segir að TVUPlayer virkar á nýjan leik... hello HM says:
vá! freudískt
Agust skrifaði kl. 22:12
Flokkun: Óflokkanlegt

Bob Dylan - aftur

Ég er að fara að sjá Bob Dylan í Cardiff á þriðjudaginn. Það þýðir að ég mun hafa séð hann tvisvar sinnum á átta mánuðum.

Þetta er 65 ára afmælistónleikarnir hans, sem hann heldur í Bretlandi og Írlandi af einhverjum ástæðum. Evrópurtúrinn hans í fyrrahaust var mjög vel heppnaður og þóttu tónleikarnir hér í landi sérstaklega vel lukkaðir.

Hjalti Snær Ægisson, orðabókasafnari og fyrrum veffrömuður, er hinsvegar að fara við þriðja mann á báða tónleikar Dylans, því þeir fara að sjá hann í Bournmouth á miðvikudag. Sem er hið besta mál.

Vonbrigðarspjótin hljóta hinsvegar að beinast að formanni Íslandsdeildar áhugafólks um að veita Dylan Nóbelinn, sem lætur þarna annað tækifæri fram hjá sér fara til að bera gamla manninn augum.

Í Kilkenny á Írlandi mun hann spila á festivali ásamt m.a. Voilent Femmes og Flaming Lip, áður en hann treður upp á Hróarskelduhátíðinni.
Agust skrifaði kl. 16:13 | Comments (2)
Flokkun: Menning

júní 21, 2006

American Conservatism: An Encyclopedia

Athyglisverð frétt í NYT: An A-to-Z Book of Conservatism Now Weighs In.
Þeir/það sem komst ekki á blaðsíður alfræðiorðabókarinnar er í sumum tilfellum enn áhugaverðara en það sem rataði þangað inn.
Og í anda amerískrar oddapólitíkur er hvergi dregið úr í t.d. þessum dæmum:
Some entries wear their conservatism on their sleeve. Goldwater's "loyalties were to duty, honor and country." Ronald Reagan had a "vigorous and principled agenda." Bill Clinton was "corrupt."

[...]

The volume treads lightly, when it treads at all, on matters of race. It describes the "courtesy and dignity" of Strom Thurmond, who as a South Carolina governor and senator led the South's effort to preserve segregation. It does not mention that Mr. Thurmond had a black daughter whose existence he kept secret.
Agust skrifaði kl. 12:23 | Comments (2)
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál

júní 12, 2006

Þrumur

Í morgun vaknaði ég fyrir allar aldir við þrumur, sem voru svo háværar að ég hef ekki heyrt annað eins síðan í Beirút í fyrra, þar sem öflugasta þruman reyndist reyndar vera bílasprengja í nálægu úthverfi.

Ég held örugglega að það hafi ekki verið neinar bílasprengjur í Coventry í morgun en þetta sannarlega hljómaði einsog að vera undir sprengjuárás!
Agust skrifaði kl. 11:35
Flokkun: Daglegt líf

Internet-persónur

Eitthvað sem bloggarar ættu að lesa: For Some, Online Persona Undermines a Résumé

Það er þó ekki bara internetið sem getur komið aftan að þér með þessum hætti. Vinkona mín, sem er í sama námi og ég, fékk starfsþjálfunarstöðu hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu, þar sem hún hafði verið valin úr hópi umsækjanda á annað þúsundið. Þegar hún var búin að segja upp leigunni og gera allar ráðstafanir til að flytja aftur vestur og beið eftir staðfestingu um hvenær hún mætti byrja, var henni þess í stað tilkynnt að umsóknin félli niður af öryggisástæðum. Það eina sem kemur til greina hjá þessum fyrirmyndarborgara er að a) hún hefur búið meira og minna í 5 ár erlendis, aðallega í Úkraínu þar sem hún vann fyrir (bandarísk) mannréttindasamtök og b) meðan hún dvaldi í nokkra mánuði í Washington D.C. vann hún með samtökum sem leituðu stuðnings gegn innrásinni í Írak (fyrir innrásina).

Það getur því líka verið skaðlegt að hafa samvisku og fylgja henni. Nú, eða búa í útlöndum of lengi.
Agust skrifaði kl. 11:28
Flokkun: Internetið

júní 06, 2006

Hættur

Skrítið að heyra það í gegnum BBC að Halldór hafi sagt af sér. Fréttaritarar mínir á Íslandi ekki að hafa fyrir því að senda mér a.m.k. sms.

Afskaplega þægilegt að hafa aðgang að öllum fréttaupptökum í gegnum ruv.is - veit ekki hvernig fréttafíklar í útlöndum færu að ef svo væri ekki, þ.e.a.s. þessu 2-3 skipti á ári sem það eru einhverjar stórfréttir frá Íslandi :)
Agust skrifaði kl. 6:26 | Comments (1)
Flokkun: Fréttir

júní 02, 2006

Samverjinn

Í vikunni keypti ég tabloid blað í fyrsta skipti í Bretlandi.

Kom lítið á óvart hversu innihaldsrýrt það var engu að síður var þetta með "betri" í slúðurblöðunum, sem yfirleitt hefur einhverjar heimildir fyrir "fréttum" sínum, hið hægrisinnaða Daily Mail.

Ástæðan var forsíða blaðsins þann daginn. Aðalfrétt dagsins var af Tom Grant sem var stunginn til bana í lest þegar hann reyndi að ganga á milli pars sem átti í illdeilum í sama vagni.

Í kjölfarið hefur mis-paranojurík umræða farið í gang í Bretlandi um hvort fólk sé hætt að "skipta sér af" af hættu við hvaða afleiðingar það kunni að hafa í för með sér.

Það breytir því ekki að hvílir ákveðin borgaraleg skylda á okkur öllum og það sem henti Tom Grant var undantekningartilfelli. Að sjálfsögðu verður alltaf að meta aðstæður en að sitja aðgerðarlaus er stundum ekki til boða fyrir sómakæra manneskju.
Agust skrifaði kl. 15:58
Flokkun: UK