júlí 19, 2006
Af hverju skattalækkanir ganga ekki á Íslandi
(Úr fréttum Stöðvar 2/NFS í gær, kl. 18.30)Spurning: Hvers vegna vill ríkisstjórnin ekki lækka skatta á matvöru?
Svar:
„Verðbólga er vanalega stöðug hækkun á verðlagi. En skattalækkun hefur bara einskiptisáhrif einsog allir þekkja. En það myndi vissulega hjálpa það er rétt.“
M.ö.o. þá borgar sig semsagt ekki að lækka skatta, því verðbólgan lækkunina upp hvort eð er. En jú, það væri ekki alvitlaust samt.
„Það er ekkert endilega víst, jafnvel þó að skattur verði lækkaður - segjum t.d. á sælgæti - að það myndi hafa samstundis áhrif til verðlækkanar á slíkum vörum, vegna þess að það er markaðsástandið sem ræður því. Þær seljast ágætlega í dag á háu verði og ekkert sem segir að þær myndu ekki gera það áfram. Þá myndi ígildi skattsins renna eitthvað annað... þannig það þarf að hafa alla þessa þætti í huga þegar verið er að fara yfir þetta. Auðvitað eru þetta ekkert einföld mál, þau eru flókin.“
M.ö.o. þá er miklu betra að ríkið hirði þessa peninga heldur en Baugur og Jón Ásgeir.
Spurning: Er ekki eitthvað að landbúnaðarkerfinu og ætlar ríkisstjórnin sér að breyta einhverju í kerfinu?
Svar:
Það er sjálfsagt eitthvað sem má betur fara [umorðað af fréttamanni]. En „ég vil hinsvegar standa vörð um íslenskan landbúnað [og íslensku kýrina væntanlega] og það vill minn flokkur gera og hefur alltaf gert og stjórnarflokkarnir í sjálfu sér samstíga um það [enda vill Hannes Hólmsteinn sameina þá í einum grand-Framsóknarflokki]. Hitt er annað mál að það eru breytingar í landbúnaðarmálum, að hluta til vegna alþjóðlegra samninga [m.ö.o. WTO, þar sem Íslendingar gera allt sem þeir geta til að vinna gegn verslunarfrelsi með landbúnaðarafurðir]. Það getur enginn skotið sér undan að taka þátt í slíku, við Íslendingar né aðrir.“
„Menn þurfa náttúrulega að finna einhvern sáttagrundvöll í þessu... það þýðir ekki að ætla að vaða yfir tilteknar atvinnugreinar [hér er átt við bændum, ekki 96,6% starfandi fólks sem er ekki bændur] með einhverjum þjösnaskap... í þessu máli.“
Og nú er spurt, hver er framsækni ráðherrann sem svarar?
Vísbending: ráðherrann er útskrifaður hagfræðingur frá Brandeis University og master í hagfræði frá Minnesota háskóla.
Mennt er máttur.
Agust skrifaði 19.07.06 12:39
Flokkun: Hagfræði , Stjórnmál , Ísland
Comments
Má ég svara?
sigga skrifaði 19.07.06 15:50Ég var alveg orðlaus þegar ég horfði á þetta viðtal. En svo fattaði ég auðvitað að þetta eru allt framsóknarmenn.
Sem betur fer virðist Samfylkingin ætla að halda þessu máli á lofti líkt og Alþýðuflokkurinn gamli hér áður fyrr.
Einar Örn skrifaði 19.07.06 16:20Hvað er hægt að kjósa?
Að formaður Sjálfstæðisflokksins láti svona útúr sér eins og í fréttunum í gær er fáránlegt.
Samfylkingin og VG munu aldrei gera annað en að hækka skatta, Framsókn er sveitó og nú virðist Sjálfsstæðisflokkurinn vera að bregðast.
Oli skrifaði 19.07.06 16:34