júlí 22, 2006
Gæði fréttaflutnings
Nánast á hverjum degi skoða ég þessa síðu Sá að annan daginn í röð, fjallar æsifréttablaðið The Sun (sem selur margfalt fleiri eintök af sorpinu sínu en nokkuð annað blað í Bretlandi) um hatursklerkinn Omar Bakri undir fyrirsögninni "Spineless Bak". Bakri flúði til Líbanon í fyrri eftir herferð The Sun til að vísa honum úr landi. Charles Clarke afturkallaði eftir það rétt hans til að snúa aftur til Bretlands, þar sem The Sun sagði hann hafa haft 300 þús. pund út úr almannatryggingakerfinu.Hvað um það, sumar klausurnar í greinni (fengin af vefsíðu The Sun) eru alveg stórkostlegar, a.m.k. fyrir þá sem lesa slík sorpblöð ekki að staðaldri, t.d.:
SPINELESS hate preacher Omar Bakri fled to the hills yesterday after Britain rejected his pathetic plea to escape the war.Fyrir lesendur blaðsins, sem hafa flestir sjálfsagt keypt blaðið til að lesa um ástarlíf leikkonunar sem prýðir forsíðuna ásamt Bakri, þá segir:
The repulsive fanatic — who hailed suicide bombers as “magnificent martyrs” but called for an Israeli-Hezbollah ceasefire yesterday — clearly had no intention of laying down his life.Fyrir þá sem áttuðu sig ekki á því, þá er Bakri vondur...
[...]
He later nodded at morning prayers at the local mosque as the imam urged all Muslims to fight to the death for Hezbollah. I confronted the former dole scrounger as he left and asked why he was not willing to be a Hezbollah martyr.
_ _ _ _
Í u.þ.b. mánuð þegar ég bjó í Kaíró hafði ég aðgang að Fox News (meðleigjandinn minn hafði keypt einhvern áskriftarpakka til að geta séð fótbolta og þetta kom með). Það gat oft verið áhugavert þegar eitthvað merkilegt var að gerast í fréttum að sjá umfjöllun Fox News. Svona svipað örugglega og það hefði verið að heyra í Radíó Moskvu á árum kalda stríðsins. Stundum var maður ekki viss hvort fréttamenn stöðvarinnar væru frá þessari plánetu, enda var þetta í lok árs 2004 og skv. Fox var Írak á hraðferð í átt að lýðræði og velsæld fyrir alla, þökk sé hinum farsæla leiðtoga George W. Bush.
Jon Stewart er duglegur að sýna brot af því þegar fréttamenn Fox News taka hamskiptum og breytast í froðufellandi bolabíta í hvert skipti sem einhver efast um réttmæti aðgerða eða stefnu Bush stjórnarinnar.
Það er því skemmtilegt að sjá hversu "professional" fréttamenn stöðvarinnar tóku á því þegar þeir ræddu við prófessorinn Kevin Barrett frá Wisconsin, sem trúir því samsæriskenningum um að árásirnar 11. september 2001 hafi verið skipulagðar af leyniþjónustu Bandaríkjanna (án þess að halda fram að t.d. Gyðingum hafi verið sagt að koma sér undan). Hann kennir um íslam og Mið-Austurlönd og ekki aðeins kennir "kenninguna" frá sjónarhorni margra múslima sem trúa að samsæri hafi verið í gangi [ekki síst þökk sé áróðurfréttum ríkisstjórnarinnar í Saúdí og víðar; mitt innsk.], heldur trúir hann að það hafi verið raunin. Til að gera Barrett enn tortryggilegri þá er hann þar að auki trúskiptur múslimi síðan 1992 (og einsog allir áhorfendur Fox News vita þá eru þeir sérstaklega hættulegir hryðjuverkamenn).
Til sjá hvernig vinnubrögð Fox News við að taka viðtöl við slíka karaktera er hægt að sjá viðtalið hér (ca 4 mín): YouTube: Kevin Barrett
Agust skrifaði 22.07.06 14:54
Flokkun: Fréttir