júlí 27, 2006

Að vera frambjóðandi og að vera ekki frambjóðandi

Orðið er víst sú frétta/slúður-bloggsíða sem allir eiga að fylgjast með á Íslandi þessa dagana.

Ekkert út á það að setja. Amatör fréttamennska er eitt birtingarform bloggsins og fyllir oft í tómarúm sem hefðbundnir fjölmiðlar, sem þurfa að vanda heimildir sínar betur, sinna ekki eða illa.

Nú vísar Orðið á annað blogg, svipaðrar tegundar, freedomfries.blog.is (áhugavert að báðar síður eru vistaðar á blogg-svæði Moggans, blog.is, sem virðist vera í mikilli sókn), þar sem segir af óförum, eða öllu heldur ómennsku, frambjóðanda í Maryland í Bandaríkjunum. Frambjóðandinn, David Dickerson, er að bjóða sig fram, skv. Freedomfries-blogginu, sem "annar frambjóðenda demokrataflokksins í Maryland til öldungadeildarinna". Með færslunni fylgir m.a. linkur á frétt nbc4.com en þar segir hinsvegar
David Dickerson, who is unemployed, filed last month for the Senate seat of Paul Sarbanes, who is retiring.

[...]

He is a long shot in a crowded field to succeed Sarbanes, Maryland's longest-serving senator. Former NAACP President Kweisi Mfume and Rep. Ben Cardin are running about even in the race, with a large percentage of voters undecided, according to a poll commissioned by The (Baltimore) Sun and published last week.

Four other Democrats [...] got about 1 percent each. Dickerson was among several other candidates who got less than 1 percent.
(feitletrun mín)
M.ö.o. "annar frambjóðenda demokrataflokksins í Maryland til öldungadeildarinna" er í raun að bjóða sig fram í forvali flokksins og var fyrir þessar fréttir að mælast með fylgi undir 1%.

Dickerson er sumsé jafn fjarri því að vera frambjóðandi Demokrataflokksins í Maryland og Stefán Friðrik var frá því að vera bæjarfulltrúaefni Sjálfstæðisflokksins á Akureyri (þá vissulega eigi þeir fátt annað sameiginlegt en fylgisleysið).

Rétt skal vera rétt.
Agust skrifaði 27.07.06 20:56

Flokkun: Internetið , Stjórnmál