júlí 27, 2006
Tengslanetið
Í kvöld komst ég að því að maður mér all-kunnugur "frá fornu fari" starfar nú sem útfararstjóri.Það er einn tengill í tengslanetinu sem maður vonast til að nýtist manni ekki. Þannig lagað séð.
Hann hafði alltaf orð á sér fyrir að þykja gaman að "jarða" menn á opinberum vettvangi. Þannig viðbrögð mín við þessum fregnum voru að vonum "jæja, þú ert þá farinn að jarða menn bókstaflega fyrr en nokkurn óraði fyrir".
Framvegis verður vitnað til hans sem "Útfararstjórans", það er nokkuð víst. Það er ekki viðurnefni, það er starfsheiti!
(En eitthvað segir mér að líf hans sé engu að síður hvergi nærri eins spennandi og útfararstjóranna í Six Feet Under.)
Agust skrifaði 27.07.06 21:51
Flokkun: Daglegt líf