júlí 27, 2006
Tengslanetið
Í kvöld komst ég að því að maður mér all-kunnugur "frá fornu fari" starfar nú sem útfararstjóri.Það er einn tengill í tengslanetinu sem maður vonast til að nýtist manni ekki. Þannig lagað séð.
Hann hafði alltaf orð á sér fyrir að þykja gaman að "jarða" menn á opinberum vettvangi. Þannig viðbrögð mín við þessum fregnum voru að vonum "jæja, þú ert þá farinn að jarða menn bókstaflega fyrr en nokkurn óraði fyrir".
Framvegis verður vitnað til hans sem "Útfararstjórans", það er nokkuð víst. Það er ekki viðurnefni, það er starfsheiti!
(En eitthvað segir mér að líf hans sé engu að síður hvergi nærri eins spennandi og útfararstjóranna í Six Feet Under.)
Að vera frambjóðandi og að vera ekki frambjóðandi
Orðið er víst sú frétta/slúður-bloggsíða sem allir eiga að fylgjast með á Íslandi þessa dagana.Ekkert út á það að setja. Amatör fréttamennska er eitt birtingarform bloggsins og fyllir oft í tómarúm sem hefðbundnir fjölmiðlar, sem þurfa að vanda heimildir sínar betur, sinna ekki eða illa.
Nú vísar Orðið á annað blogg, svipaðrar tegundar, freedomfries.blog.is (áhugavert að báðar síður eru vistaðar á blogg-svæði Moggans, blog.is, sem virðist vera í mikilli sókn), þar sem segir af óförum, eða öllu heldur ómennsku, frambjóðanda í Maryland í Bandaríkjunum. Frambjóðandinn, David Dickerson, er að bjóða sig fram, skv. Freedomfries-blogginu, sem "annar frambjóðenda demokrataflokksins í Maryland til öldungadeildarinna". Með færslunni fylgir m.a. linkur á frétt nbc4.com en þar segir hinsvegar
David Dickerson, who is unemployed, filed last month for the Senate seat of Paul Sarbanes, who is retiring.(feitletrun mín)
[...]
He is a long shot in a crowded field to succeed Sarbanes, Maryland's longest-serving senator. Former NAACP President Kweisi Mfume and Rep. Ben Cardin are running about even in the race, with a large percentage of voters undecided, according to a poll commissioned by The (Baltimore) Sun and published last week.
Four other Democrats [...] got about 1 percent each. Dickerson was among several other candidates who got less than 1 percent.
M.ö.o. "annar frambjóðenda demokrataflokksins í Maryland til öldungadeildarinna" er í raun að bjóða sig fram í forvali flokksins og var fyrir þessar fréttir að mælast með fylgi undir 1%.
Dickerson er sumsé jafn fjarri því að vera frambjóðandi Demokrataflokksins í Maryland og Stefán Friðrik var frá því að vera bæjarfulltrúaefni Sjálfstæðisflokksins á Akureyri (þá vissulega eigi þeir fátt annað sameiginlegt en fylgisleysið).
Rétt skal vera rétt.
júlí 26, 2006
Líbanon
Nicholas Kristof í gær: In Lebanon, Echoes of Iraq?But one of the oldest lessons in international affairs is that not every problem has a neat solution. The first rule in foreign policy, as in medicine, should be “Do no harm.” Unfortunately, the legacy of today’s Lebanese adventure, like the 1982 Israeli invasion of Lebanon and our invasion of Iraq, may be plenty of strategic damage.(C) New York Times 2006. Unauthorised citation.
Granted, there’s a counterargument that fills my mailbox and goes like this: What else can a country do when it is subjected to rocket attacks and cross-border raids by a terrorist organization committed to its destruction? If that terror group finds a safe haven just across an international border, and the government and the army there cannot control it, then what other option is there but to destroy that menace?
[...]
The problem with that argument is that it’s wrong.
One day before the Hezbollah incursion that provoked this war, terrorists bombed train lines in Mumbai, India, killing nearly 200 people (about 10 times as many as had been killed in all the Hezbollah attacks on Israel since the withdrawal from Lebanon in 2000, until this month). The Mumbai bombings were the latest in a string of attacks against India that have gone on for years, at the hands of terrorists operating with support from across the border in Pakistan.
Many Indians complain that their prime minister, Manmohan Singh, has been too wimpish in responding (a previous prime minister threatened war with Pakistan after a major terror attack in 2001). Yet Mr. Singh has wisely recognized that military action would only make the problem worse. [...]
For now Israel’s Lebanon adventure is playing out a bit like America’s Iraq adventure. It is bolstering hard-liners (like Bashar al-Assad of Syria) and undermining moderates (like King Abdullah of Jordan), while handing propaganda victories to Iran and Shiite militants.
Arab television channels have shown an unending stream of pictures of dead Lebanese children. We put our Arab allies in an impossible position when militants ask how they can work with a U.S. government that supplies the munitions that kill those children.
“Those of us who had welcomed Bush’s vision of democracy in the Middle East still believe in the promise of a free Iraq and a free Lebanon,” The Daily Star of Lebanon wrote in an editorial on Monday. “What a pity to see Bush’s vision engulfed in the flames of the current shortsighted American foreign policy. What was once a dream of democracy is fast becoming a nightmare of unstoppable civil war and terror.”
Viðbót: Ansi áhugaverð umfjöllun um mögulega þátttöku Þjóðverja í friðargæslu í Líbanon.
0 to offensive in 6.5 seconds
Top Gear: 0 to offensive in 6.5 secondsThe 20th most complained about show on TV, according to Ofcom, few programmes divide viewers like the Sunday night motoring show hosted by Jeremy Clarkson, Richard Hammond and, er, the other one.M.a.s. blaðamenn Guardian verða að viðurkenna að Top Gear séu skemmtilegir þættir.
[...]
Occasionally offensive and entirely environmentally unfriendly, who watches this stuff? Okay I admit it: me. I love Top Gear. And I've only driven 30 miles in my life - Rochester to Maidstone and back, 1996, in my slippers (improved pedal control, I always found). But as one pundit wrote recently, it's not a show about cars, it's a show about blokes talking about cars
´ Hér má lesa viðbrögð BBC við umkvörtunum áhorfenda vegna þáttanna.
júlí 25, 2006
Hinn ástsæli leiðtogi aflegaleiddrar æsku
Chavez in Russia for arms dealsMr Chavez said the agreements were just the start of a Belarus-Venezuela strategic alliance.
He will later visit Qatar, Iran, Vietnam and Mali.
The planned arms deal with Russia is worth around $1bn (£542m), correspondents say.
The US has voiced concerns about it, having banned such deals with Caracas for US manufacturers.
Russia plans to deliver 30 Sukhoi Su-30 fighter jets and 30 helicopters to Venezuela.
Venezuela also plans to buy 100,000 Russian-made AK-103 assault rifles and wants to set up factories on its soil to produce Kalashnikovs under licence.
Það er eitthvað sem á eftir að gera heiminn betri og friðsælli, venesúelskir Kalashnikov riflar. Enda ekki nærri nógu margir pöpulískir leiðtogar með massíasarduld sem geta sent vinum sínum ókeypis Kalashnikova.(Veruleika)firrtu, Che-bola-klæddu stúdentarnir úr miðstéttarúthverfunum sem dönsuðu af gleði þegar Chavez heimsótti gamla rauðliðann Ken Livingstone í London í vetur hljóta að gráta af gleði núna. Kannski fleiri þjóðir verði "frelsaðar" undan oki kapítalisma og amerísks imperíalisma og Starbucks, þökk sé hinum frábæra Chavez og vinum hans um allan heim, frá Harare til Havana.
júlí 22, 2006
Loftgítar
The more W. and his tough, by-any-means-necessary superbabe have tried to tame the Middle East, the more inflamed the Middle East has become. Now the secretary of state is leaving, reluctantly and belatedly, to do some shuttle diplomacy that entails little diplomacy and no shuttling. It’s more like air-guitar diplomacy.- Maureen Dowd, NYT, 22/7 '06, Condi’s Flying Dutchman
Gæði fréttaflutnings
Nánast á hverjum degi skoða ég þessa síðu Sá að annan daginn í röð, fjallar æsifréttablaðið The Sun (sem selur margfalt fleiri eintök af sorpinu sínu en nokkuð annað blað í Bretlandi) um hatursklerkinn Omar Bakri undir fyrirsögninni "Spineless Bak". Bakri flúði til Líbanon í fyrri eftir herferð The Sun til að vísa honum úr landi. Charles Clarke afturkallaði eftir það rétt hans til að snúa aftur til Bretlands, þar sem The Sun sagði hann hafa haft 300 þús. pund út úr almannatryggingakerfinu.Hvað um það, sumar klausurnar í greinni (fengin af vefsíðu The Sun) eru alveg stórkostlegar, a.m.k. fyrir þá sem lesa slík sorpblöð ekki að staðaldri, t.d.:
SPINELESS hate preacher Omar Bakri fled to the hills yesterday after Britain rejected his pathetic plea to escape the war.Fyrir lesendur blaðsins, sem hafa flestir sjálfsagt keypt blaðið til að lesa um ástarlíf leikkonunar sem prýðir forsíðuna ásamt Bakri, þá segir:
The repulsive fanatic — who hailed suicide bombers as “magnificent martyrs” but called for an Israeli-Hezbollah ceasefire yesterday — clearly had no intention of laying down his life.Fyrir þá sem áttuðu sig ekki á því, þá er Bakri vondur...
[...]
He later nodded at morning prayers at the local mosque as the imam urged all Muslims to fight to the death for Hezbollah. I confronted the former dole scrounger as he left and asked why he was not willing to be a Hezbollah martyr.
_ _ _ _
Í u.þ.b. mánuð þegar ég bjó í Kaíró hafði ég aðgang að Fox News (meðleigjandinn minn hafði keypt einhvern áskriftarpakka til að geta séð fótbolta og þetta kom með). Það gat oft verið áhugavert þegar eitthvað merkilegt var að gerast í fréttum að sjá umfjöllun Fox News. Svona svipað örugglega og það hefði verið að heyra í Radíó Moskvu á árum kalda stríðsins. Stundum var maður ekki viss hvort fréttamenn stöðvarinnar væru frá þessari plánetu, enda var þetta í lok árs 2004 og skv. Fox var Írak á hraðferð í átt að lýðræði og velsæld fyrir alla, þökk sé hinum farsæla leiðtoga George W. Bush.
Jon Stewart er duglegur að sýna brot af því þegar fréttamenn Fox News taka hamskiptum og breytast í froðufellandi bolabíta í hvert skipti sem einhver efast um réttmæti aðgerða eða stefnu Bush stjórnarinnar.
Það er því skemmtilegt að sjá hversu "professional" fréttamenn stöðvarinnar tóku á því þegar þeir ræddu við prófessorinn Kevin Barrett frá Wisconsin, sem trúir því samsæriskenningum um að árásirnar 11. september 2001 hafi verið skipulagðar af leyniþjónustu Bandaríkjanna (án þess að halda fram að t.d. Gyðingum hafi verið sagt að koma sér undan). Hann kennir um íslam og Mið-Austurlönd og ekki aðeins kennir "kenninguna" frá sjónarhorni margra múslima sem trúa að samsæri hafi verið í gangi [ekki síst þökk sé áróðurfréttum ríkisstjórnarinnar í Saúdí og víðar; mitt innsk.], heldur trúir hann að það hafi verið raunin. Til að gera Barrett enn tortryggilegri þá er hann þar að auki trúskiptur múslimi síðan 1992 (og einsog allir áhorfendur Fox News vita þá eru þeir sérstaklega hættulegir hryðjuverkamenn).
Til sjá hvernig vinnubrögð Fox News við að taka viðtöl við slíka karaktera er hægt að sjá viðtalið hér (ca 4 mín): YouTube: Kevin Barrett
Samkvæmt BBC í kvöld
- U.þ.b. 340 Líbanir látnir, um þriðjungur börn
- Tæplega 40 Ísraelar látnir, 15 vegna árása Hizbullah á ísraelskar borgir
- U.þ.b. hálf milljón manna Líbanir hafa flúið heimili sín vegna ástandsins skv. líbönsku ríkisstjórninni
- U.þ.b. 1500 árásir með ísraelskum sprengjum
- U.þ.b. 800 eldflaugum skotið á Ísrael af liðsmönnum Hizbullah
- U.þ.b. 55 brýr sprengdar í loft upp af Ísraelum
júlí 20, 2006
Mennt er máttur, part II
Var að lesa Visir.is áðan og sá þessar tvær fréttir:Grímur Atlason ráðinn bæjarstjóri Bolungarvíkur
Davíð Þór dómari í Gettu Betur
júlí 19, 2006
Af hverju skattalækkanir ganga ekki á Íslandi
(Úr fréttum Stöðvar 2/NFS í gær, kl. 18.30)Spurning: Hvers vegna vill ríkisstjórnin ekki lækka skatta á matvöru?
Svar:
„Verðbólga er vanalega stöðug hækkun á verðlagi. En skattalækkun hefur bara einskiptisáhrif einsog allir þekkja. En það myndi vissulega hjálpa það er rétt.“
M.ö.o. þá borgar sig semsagt ekki að lækka skatta, því verðbólgan lækkunina upp hvort eð er. En jú, það væri ekki alvitlaust samt.
„Það er ekkert endilega víst, jafnvel þó að skattur verði lækkaður - segjum t.d. á sælgæti - að það myndi hafa samstundis áhrif til verðlækkanar á slíkum vörum, vegna þess að það er markaðsástandið sem ræður því. Þær seljast ágætlega í dag á háu verði og ekkert sem segir að þær myndu ekki gera það áfram. Þá myndi ígildi skattsins renna eitthvað annað... þannig það þarf að hafa alla þessa þætti í huga þegar verið er að fara yfir þetta. Auðvitað eru þetta ekkert einföld mál, þau eru flókin.“
M.ö.o. þá er miklu betra að ríkið hirði þessa peninga heldur en Baugur og Jón Ásgeir.
Spurning: Er ekki eitthvað að landbúnaðarkerfinu og ætlar ríkisstjórnin sér að breyta einhverju í kerfinu?
Svar:
Það er sjálfsagt eitthvað sem má betur fara [umorðað af fréttamanni]. En „ég vil hinsvegar standa vörð um íslenskan landbúnað [og íslensku kýrina væntanlega] og það vill minn flokkur gera og hefur alltaf gert og stjórnarflokkarnir í sjálfu sér samstíga um það [enda vill Hannes Hólmsteinn sameina þá í einum grand-Framsóknarflokki]. Hitt er annað mál að það eru breytingar í landbúnaðarmálum, að hluta til vegna alþjóðlegra samninga [m.ö.o. WTO, þar sem Íslendingar gera allt sem þeir geta til að vinna gegn verslunarfrelsi með landbúnaðarafurðir]. Það getur enginn skotið sér undan að taka þátt í slíku, við Íslendingar né aðrir.“
„Menn þurfa náttúrulega að finna einhvern sáttagrundvöll í þessu... það þýðir ekki að ætla að vaða yfir tilteknar atvinnugreinar [hér er átt við bændum, ekki 96,6% starfandi fólks sem er ekki bændur] með einhverjum þjösnaskap... í þessu máli.“
Og nú er spurt, hver er framsækni ráðherrann sem svarar?
Vísbending: ráðherrann er útskrifaður hagfræðingur frá Brandeis University og master í hagfræði frá Minnesota háskóla.
Mennt er máttur.
júlí 18, 2006
Um hvað tala helstu leiðtogar heimsins um bakið við luktar dyr þegar við heyrum ekki?
Part I: Nixon & Mao, 1972 (src)Part II: Bush & Blair, 2006
Bush: Yo, Blair. How are you doin’?src: Bush's open mike gaffe reveals truth of the special relationship
Blair: I’m just...
Bush: You’re leaving?
Blair: No, no, no, not yet. On this trade thingy...(inaudible)
Bush: Yeah, I told that to the man. Thanks for (inaudible) it’s awfully thoughtful of you.
Blair: It’s a pleasure.
Bush: I know you picked it out yourself.
Blair: Absolutely (inaudible).
Bush: What about Kofi? (inaudible) His attitude to ceasefire and everything else ... happens.
Blair: Yeah, no I think the (inaudible) is really difficult. We can’t stop this unless you get this international business agreed.
Bush: Yeah.
Blair: I don’t know what you guys have talked about, but as I say I am perfectly happy to try and see what the lie of the land is, but you need that done quickly because otherwise it will spiral.
Bush: I think Condi is going to go pretty soon.
Blair: But that’s, that’s, that’s all that matters. But if you ... you see it will take some time to get that together.
Bush: Yeah, yeah.
Blair: But at least it gives people...
Bush: It’s a process, I agree. I told her your offer to...
Blair: Well, it’s only if, I mean, you know. If she’s got a, or if she needs the ground prepared, as it were. Because obviously if she goes out, she’s got to succeed, if it were, whereas I can go out and just talk.
Bush: You see, the thing is, what they need to do is to get Syria to get Hezbollah to stop doing this shit and it’s over. (inaudible)
Blair: Syria.
Bush: Why?
Blair: Because I think this is all part of the same thing.
Bush: Yeah.
Blair: What does he think? He thinks if Lebanon turns out fine, if we get a solution in Israel and Palestine, Iraq goes in the right way...
Bush: Yeah, yeah, he is sweet[*].
Blair: He[*] is honey. And that’s what the whole thing is about. It’s the same with Iraq.
Bush: I felt like telling Kofi to call, to get on the phone to Assad and make something happen.
Blair: Yeah.
Bush: We are not blaming the Lebanese Government.
Blair: Is this . . .? (he taps the microphone in front of him and the sound is cut.)
[...]
* At first the hot money was on it being Kofi Annan, the United Nations Secretary- General, but some believed that they meant President Assad of Syria. They were right, said officials: Mr Assad was the figure both leaders had in mind.