ágúst 11, 2006

Fyrsta ghettó Evrópu á 21. öld?

Athyglisverð frétt frá Norður-Ítalíu. Borgaryfirvöld í Padua hafa byggt í skjóli nætur vegg, 84 metra langan, 3 metra háan, umhverfis blokkarhverfi þar sem um 1500 innflytjendur, sumir hverjir ólöglegir, ertu taldir búa. Borgaryfirvöld segja að þau séu að reyna að ná tökum á glæpum í hverfinu og að 20 þúsund innflytjendur búi í borginni í heildina, þetta snúist einfaldlega um glæpi tengda hverfinu.

Ekki er vitað til að fleiri múrar hafi verið byggðir umhverfis glæpahverfi í landinu. Hitt er svo annað mál að Ítalir eru ekki þekktir fyrir mjög vinveittar skoðanir á innflytjendum.
Sjá: Ring of steel locks in immigrants (The Times)

Að auki, alveg þess virði að benda á pistil Thomasar Catan í The Times í gær, Cuba: a curious relic of 20th-century history, þar sem hann veltir fyrir sér hvers vegna enn eru til vinstrimenn sem mæra Castro. Marx on the beach hefði titillinn allt eins getað verið.
Agust skrifaði 11.08.06 19:26

Flokkun: Stjórnmál
Comments

Varla fyrsta, einhverjir múrar hafa verið byggðir í kringum sígaunahverfum í Austur-Evrópu veit ég. En máski fyrsta í vesturhlutanum.

Ásgeir H skrifaði 11.08.06 23:14

Ok, það er góður punktur. Vestur-Evrópu. Efast um að það séu fleiri dæmi um slíka múra innan borga. Múrar hafa t.d. verið settir í kringum spænsku borgirnar á ströndum Marokkó. En í seinni tíð hef ég ekki heyrt um slíka múra á meginlandi Vestur-Evrópu.

Ágúst skrifaði 11.08.06 23:20

Hér og þar út í heimi, er nú móðins að fólk flytji í sérstaklega varin hverfi ("Gated Communities"), þar sem lýðnum er haldið frá betri borgurunum með háum veggjum og ýmsum öðrum ráðum.

Eru betri borgaranir á Norður Ítalíu ekki bara taka hinn pólinn á þetta og umkringja frekar hverfi lýðsins svo að það geti haft það gott sjálft?

Kveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 14.08.06 20:17

Mér finnst það engan veginn sambærilegt, Þórisstrumpur.

Þá er allt eins hægt að segja að "members only" klúbbar séu engu frábrugðnir "whites only" klúbbum.

Það er stór munur að loka sig inni eða loka aðra inni. Rétt einsog það er stór munur á á þeirri staðreynd að meirihluti fólks hefur ekki efni á að kaupa sér hús í Arnarnesinu eða ef það væru sett upp girðing meðanfram Hafnarfjarðarveginum til að halda skrílnum úti. Þú getur sett upp girðingu (einsog hver annar bóndi ef út í það er farið) á eigin landareign en að girða af hverfi einsog þetta er alveg banalt.

Varðandi lokuðu millasamfélögin, sem eru nú ýkja algeng með bókstaflegum girðingum í Vestur-Evrópu, eru í sjálfu sér ekkert öðruvísi en íbúar í blokk sem loka af stigaganginum hjá sér. Og er gert af sömu ástæðu. Eða ef sumarbústaðareigendur segja upp hlið á veginn hjá sér til að halda úti óvelkominni umferð.

Þú mátt endilega koma með "lögfræðiálit" á þetta ef þér finnst ég vera að bulla :)

Ágúst skrifaði 15.08.06 18:12

Nei nei, ég geri mér fyllilega grein fyrir að hér er ekki um sambærilega hluti að ræða, a.m.k. ekki að öllu leiti.

Á þessu er þó frekar stigsmunur en eðlis og ég tel það t.d. vafasamt að bera það saman að girða af eigin fasteign og að girða af stærra svæði "sambærilegra" fasteigna. Þ.e. að greina "mitt" frá "hinna" er eðlilegt. Að greina frá (með svona fremur yfirgripsmiklum girðingum) svona svæði þar sem "við" erum í friði frá "þeim" er tölurvert vafasamara og verður að telja að það sé a.m.k. blettur á viðkomandi þjóðfélagi. Svo er það náttúrulega mun grófari aðferð að girða af svæði "þeirra" svo "við" fáum að vera í friði.

En á þessum hlutum öllum er stigsmunur en ekki eðlis, en munurinn á milli hvers stigs er þó talsvert mikill.

Kveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 15.08.06 23:33

"En á þessum hlutum öllum er stigsmunur en ekki eðlis, en munurinn á milli hvers stigs er þó talsvert mikill."

Nú skil ég af hverju svona margir stjórnmálamenn fara í lögfræði. Til að læra að skrifa svona setningar :)

Ágúst skrifaði 15.08.06 23:50

Kanselístíllinn er meðfæddur, menn læra þetta ekki í skóla. ;)

Kveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 16.08.06 01:12