ágúst 18, 2006
Af hverju George Galloway er hræðilegur stjórnmálamaður
Birti hér nokkuð sem byrjaði sem komment við þessari færslu Orðsins á götunni._ _ _ _ _ _
Hann er mælskur, það verður ekki tekið af honum. Hann er líka mælskur þegar hann kemur fram á arabískum sjónvarpsstöðvum og kallar á alla sanna Araba og múslima til að sameinast gegn hættunni sem steðjar af Bush og Blair. Og hann er mælskur þegar hann kallar Sýrlandsforseta eina heiðvirta leiðtoga Araba eða þegar hann ræðst á þá Líbani sem hafa gagnrýnt Hizbullah.Meint peningatengsl hann við Saddam Hussein eru ekki þau einu sem hann hefur verið bendlaður við. Benazir Bhutto og Nawaz Sharif borguðu honum fyrir að verja yfirvöld í Pakistan á tíunda áratugnum.
Hann er mælskur þegar hann kallar leiðtoga Vesturlanda verri morðingja en Hitler og að kapítalisminn hafi drepið fleiri en nokkuð annað. Nú, eða þegar hann segir að útlendingar [Bandaríkjamenn og Ísraelar] séu að nauðga tveimur af fallegustu dætrum Araba, Bagdad og Jerúsalem.
Hann er einhver versti tækifærisinni breskra stjórnmála - og flokkurinn hans, öfugmælið RESPECT, er þar besta dæmið. Þar náðist að safna saman Trotskyistum (sem Galloway fram af því hafði alltaf átt í ýmsum deilum við), múslimum og ýmsum eftirlegukindum af vinstrivængnum sem ekki höfðu borið sitt barr eftir að bylting öreiganna missti stuðning sinn að austan.
Þetta hagsmunabandalag hefur síðan í kjölfarið færst nær múslimska hluta bandalagsins, gömlu vinstrimönnunum til nokkurar gremju, þar sem jafnréttismálum hefur verið sópað undir teppi til að höfða betur til íhaldssamra múslima, bæði í London og Birmingham, sem sem helsti leiðtogi flokksins er engu að síður ein kona. Benda óánægjuraddirnar innan RESPECT á að George hefur t.d. forðast að kjósa í Westminster þegar jafnréttismál eru á dagskrá, sér í lagi varðandi kynhneigð. RESPECT stendur fyrir Respect, Equality, Socialism, Peace, Environmentalism, Community og Trade union. Finnst mörgum, þ.m.t. þeim sem studdu fylkinguna í upphafi að flest af þessu hafi setið á hakanum í stefnuskrá flokksins og t.d. ekki lengur opinber stefna hans jafnrétti óháð kynhneigð. Femínistar kvarta undan því sama. *
Gagnrýnendur innan flokksins hafa sumir verið opinberlega sakaðir um íslamafóbíu þegar þeir hafa gagnrýnt aukna félagslega íhaldssemi í flokknum. *
Aukinheldur hafa nokkrir blaðamenn, sumir Gyðingar, ásakað bæði RESPECT og Galloway um óbeinan antisemitism í ræðu og riti, þ.m.t. á kosningafundum meðal múslima.
* Sjá Wikipedia um RESPECT
Nokkur myndbönd af Galloway frá MEMRI: [1] [2] [3]
(það skal tekið fram að sumir vinstrimenn, þ.á.m. á Íslandi, hafa kallað MEMRI áróðursmaskínu Ísraela en varla verða hans eigin ummæli afskræmd mikið)
Agust skrifaði 18.08.06 18:08
Flokkun: Mið-Austurlönd , Stjórnmál , UK
Galloway er eins og altarisdrengur borið saman við valdamestu stjórnmálamenn nútímans, Bush og félaga og hins vegar Blair. Margt sem hann segir er einfaldlega rétt þó svo að það sé erfitt fyrir okkur vesturlandabúa að kingja því, Leiðtogar Vesturlanda eru ábyrgir fyrir endalausum fjöldamorðum vísvegar um heiminn ekki síst í mið-austurlöndum. Ég er sammála þeirri fullyrðingu að Bandaríkjamenn og ísraelar séu að nauðga tveimur af fallegustu perlum Araba. En þó bara að nauðga.... Ísraelar hafa þegar valtað yfir í bókstaflegri merkingu ógrynni af perlum í Palestínu í þeim tilgangi að eyða sönnunargögnum um að þar hafi lifað siðmenntuð þjóð áður en þeir komu þangað.
Ég las grein fyir stuttu eftir George Orwell(sem btw var mótfallinn stofnun Ísraelsríkis á sínum tíma) að allir vitibornir menn hefðu áttað sig á því Versalasamningurinn ætti eftir að hafa slæmar afleiðingar. Hvernig, eða hvenær nákmæmlega vissi enginn en þær yrðu engu að síður slæmar. Í dag segi ég það sama, kúgun vesturlanda á íbúum miðausturlanda á eftir að hafa slæmar afleiðingar. Hugaðu þér að það eru ekki einu sinni hundrað ár síðan að sum þessara landa fengu sjálfstæði frá m.a. Bretum. Það tók meiri tíma en það að skapa lýðræðishefð í Bretlandi. Nóg í bili
Þórður skrifaði 24.08.06 17:59Datt í hug að benda þér á það að þessi færsla birtist í heilu lagi í "Af netinu" í Fréttablaðinu í gær.
Kveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 25.08.06 14:39