ágúst 22, 2006

19. öldin

Samkvæmt öruggum heimildum er aðeins einn Íslendingum fæddur árið átjánhundruð-og-eitthvað (1899 eða fyrr) á lífi. Sem er ekkert skrítið, ekki margir sem hafa lifað í yfir 106 ár á Íslandi. Þessi eini eftirlifandi nítjándualdar-Íslendingur er jafnframt næstelsti Íslendingur sögunnar, samkvæmt sama heimildarmanni. Sá níundi elsti í sögunni er líka enn á lífi, fædd í febrúar 1900. M.ö.o. tveir Íslendingar fæddir á nítjándu öld á lífi.

Það þýðir að það er bara ein kennitala eftir á Íslandi sem endar á 8.

Ég man eftir að hafa alltaf fundist jafn mikið til þess koma þegar ég hitti fyrir fólk, sem lítill patti, sem var e.t.v. um nírætt á níunda áratugnum. Fannst eitthvað stórmerkilegt að lifa fyrir árið 1900. Síðan upplifði ég sjálfur aldamót og komst að því að þau standa vart undir væntingum.
Agust skrifaði 22.08.06 18:33

Flokkun: Ísland
Comments

Já hugsa sér bráðum er 19. öldinni endanlega lokið.

Á skrifaði 23.08.06 00:23

Ætli Sólveigu hafi þótt 20. öldin standa undir væntingum?

Finnbogi skrifaði 23.08.06 11:22