ágúst 26, 2006
Tjáningarfrelsið
A US businessman has been charged with offering broadcasts of Hezbollah's al-Manar satellite television station to customers in the New York-area.
ágúst 22, 2006
The Economist does it again...
Forsíða Economist nær oft að skýra hvað er að gerast í heiminum betur en margar ítarlegar fréttaskýringar. Ekki spillir að forsíðurnar selja blaðið grimmt, skiljanlega.
19. öldin
Samkvæmt öruggum heimildum er aðeins einn Íslendingum fæddur árið átjánhundruð-og-eitthvað (1899 eða fyrr) á lífi. Sem er ekkert skrítið, ekki margir sem hafa lifað í yfir 106 ár á Íslandi. Þessi eini eftirlifandi nítjándualdar-Íslendingur er jafnframt næstelsti Íslendingur sögunnar, samkvæmt sama heimildarmanni. Sá níundi elsti í sögunni er líka enn á lífi, fædd í febrúar 1900. M.ö.o. tveir Íslendingar fæddir á nítjándu öld á lífi.Það þýðir að það er bara ein kennitala eftir á Íslandi sem endar á 8.
Ég man eftir að hafa alltaf fundist jafn mikið til þess koma þegar ég hitti fyrir fólk, sem lítill patti, sem var e.t.v. um nírætt á níunda áratugnum. Fannst eitthvað stórmerkilegt að lifa fyrir árið 1900. Síðan upplifði ég sjálfur aldamót og komst að því að þau standa vart undir væntingum.
ágúst 18, 2006
CNN
Sá þetta brot sýnt í The Daily Show í gær og gúglaði og sjá, fann transcriptið: Crisis In The Middle East; Terror Investigation; Threat Level; Target:USA.CHO: Now all of these upgrades to mass transit will cost a lot of money, as in billions of dollars, and that's one of the main reasons why it hasn't been done yet. But our expert says, if you're not going to spend the money, you need to start thinking like the terrorists. Think like the bad guys. Unfortunately, Miles, our expert says, if you build a better mouse trap, the terrorists will build a better mouse.- CNN, August 14, 2006.
Æðislegt!
Af hverju George Galloway er hræðilegur stjórnmálamaður
Birti hér nokkuð sem byrjaði sem komment við þessari færslu Orðsins á götunni._ _ _ _ _ _
Hann er mælskur, það verður ekki tekið af honum. Hann er líka mælskur þegar hann kemur fram á arabískum sjónvarpsstöðvum og kallar á alla sanna Araba og múslima til að sameinast gegn hættunni sem steðjar af Bush og Blair. Og hann er mælskur þegar hann kallar Sýrlandsforseta eina heiðvirta leiðtoga Araba eða þegar hann ræðst á þá Líbani sem hafa gagnrýnt Hizbullah.Meint peningatengsl hann við Saddam Hussein eru ekki þau einu sem hann hefur verið bendlaður við. Benazir Bhutto og Nawaz Sharif borguðu honum fyrir að verja yfirvöld í Pakistan á tíunda áratugnum.
Hann er mælskur þegar hann kallar leiðtoga Vesturlanda verri morðingja en Hitler og að kapítalisminn hafi drepið fleiri en nokkuð annað. Nú, eða þegar hann segir að útlendingar [Bandaríkjamenn og Ísraelar] séu að nauðga tveimur af fallegustu dætrum Araba, Bagdad og Jerúsalem.
Hann er einhver versti tækifærisinni breskra stjórnmála - og flokkurinn hans, öfugmælið RESPECT, er þar besta dæmið. Þar náðist að safna saman Trotskyistum (sem Galloway fram af því hafði alltaf átt í ýmsum deilum við), múslimum og ýmsum eftirlegukindum af vinstrivængnum sem ekki höfðu borið sitt barr eftir að bylting öreiganna missti stuðning sinn að austan.
Þetta hagsmunabandalag hefur síðan í kjölfarið færst nær múslimska hluta bandalagsins, gömlu vinstrimönnunum til nokkurar gremju, þar sem jafnréttismálum hefur verið sópað undir teppi til að höfða betur til íhaldssamra múslima, bæði í London og Birmingham, sem sem helsti leiðtogi flokksins er engu að síður ein kona. Benda óánægjuraddirnar innan RESPECT á að George hefur t.d. forðast að kjósa í Westminster þegar jafnréttismál eru á dagskrá, sér í lagi varðandi kynhneigð. RESPECT stendur fyrir Respect, Equality, Socialism, Peace, Environmentalism, Community og Trade union. Finnst mörgum, þ.m.t. þeim sem studdu fylkinguna í upphafi að flest af þessu hafi setið á hakanum í stefnuskrá flokksins og t.d. ekki lengur opinber stefna hans jafnrétti óháð kynhneigð. Femínistar kvarta undan því sama. *
Gagnrýnendur innan flokksins hafa sumir verið opinberlega sakaðir um íslamafóbíu þegar þeir hafa gagnrýnt aukna félagslega íhaldssemi í flokknum. *
Aukinheldur hafa nokkrir blaðamenn, sumir Gyðingar, ásakað bæði RESPECT og Galloway um óbeinan antisemitism í ræðu og riti, þ.m.t. á kosningafundum meðal múslima.
* Sjá Wikipedia um RESPECT
Nokkur myndbönd af Galloway frá MEMRI: [1] [2] [3]
(það skal tekið fram að sumir vinstrimenn, þ.á.m. á Íslandi, hafa kallað MEMRI áróðursmaskínu Ísraela en varla verða hans eigin ummæli afskræmd mikið)
Fyrsti sendiherrann
Fyrsti sendiherra arabísks ríkis hefur afhent trúnaðarbréf sitt nýju ríkisstjórninni í Bagdad. Hann er jórdanskur.Þetta mun ekki vera fyrsti arabíski sendiherrann sem hefur aðsetur í borginni eftir Saddam Hussein var steypt af stóli. Ahmed al-Lozi er hinsvegar sá fyrsti sem lifir það af að afhenda trúnaðarbréf sitt.
Jordanian First Arab Ambassador in Iraq
ágúst 17, 2006
Líbanon linkar
Demographics, BBCInfoLebanon.com kort með áætlaðri skiptingu milli hópa í Líbanon
Til samanburðar, World Fact Book
Zogby könnun frá 2005
ágúst 15, 2006
Fyrirsögn dagsins
Sýrlendingar fanga nýju landslagi í Mið-Austurlöndum [sic.]Spurt er, átti þarna að standa
a) Sýrlendingar fanga nýtt landslag í Mið-Austurlöndum
b) Sýrlendingar fangar í nýju landslagi í Mið-Austurlöndum, eða
c) Sýrlendingar fagna að það lesi enginn yfir það sem birt er á mbl.is?
ágúst 14, 2006
Fréttamynd dagsins
Það er eitthvað alveg æðislegt við þessa mynd. Hún birtist í blaði ungra kommúnista á Kúbu og sýnir leiðtogann ásamt besta vini sínum í öllum heiminum, Hugo Chavez.Hvað eru þeir félagar að borða saman, ís? Samræmdu skyrturnar gera þetta enn æðislegra :-)
ágúst 11, 2006
Fyrsta ghettó Evrópu á 21. öld?
Athyglisverð frétt frá Norður-Ítalíu. Borgaryfirvöld í Padua hafa byggt í skjóli nætur vegg, 84 metra langan, 3 metra háan, umhverfis blokkarhverfi þar sem um 1500 innflytjendur, sumir hverjir ólöglegir, ertu taldir búa. Borgaryfirvöld segja að þau séu að reyna að ná tökum á glæpum í hverfinu og að 20 þúsund innflytjendur búi í borginni í heildina, þetta snúist einfaldlega um glæpi tengda hverfinu.Ekki er vitað til að fleiri múrar hafi verið byggðir umhverfis glæpahverfi í landinu. Hitt er svo annað mál að Ítalir eru ekki þekktir fyrir mjög vinveittar skoðanir á innflytjendum.
Sjá: Ring of steel locks in immigrants (The Times)
Að auki, alveg þess virði að benda á pistil Thomasar Catan í The Times í gær, Cuba: a curious relic of 20th-century history, þar sem hann veltir fyrir sér hvers vegna enn eru til vinstrimenn sem mæra Castro. Marx on the beach hefði titillinn allt eins getað verið.
ágúst 10, 2006
Ársskýrsla Súdanska seðlabankans
Búinn að blaða mikið í "التقرير السنوي للعام 2005" síðustu daga.Hver segir að hálf ár af arabískunámi skili sér ekki - svona næstum því :)
ágúst 02, 2006
Lýðræðið á Kúbu?
ESB óskar Castro og lýðræðinu á Kúbu skjótum bataFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins sendi Fidel Castro, forseta Kúbu, kveðju í dag þar sem honum óskað skjótum bata sem og lýðræðinu á Kúbu. „Við óskum Castro forseta og lýðræðinu skjótum bata,“ sagði talsmaður ESB.Hvort er þetta mjög lúmsk skilaboð frá ESB (að kalla eftir lýðræðisumbótum), mjög hættuleg skilaboð (að kalla einræðið á Kúbu lýðræði) eða bara enn önnur þýðingarvillan hjá mbl.is? (lýðræði/lýðveldi)