október 30, 2006
Prófkjörsúrslit - og smá talnaleikfimi
Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er lokið. Mér tókst að hafa illilega rangt fyrir mér varðandi eitt atriði og gat ekki einu sinni komist upp með það af því engin myndi muna eftir spánni minni, enda var hún líklegast heldur of djörf. Stefáns-kenningin virkaði semsagt ekki.Ef þetta skjal er skoðað sést hversu örugga kosningu Björn fékk í 3ja sætið. Þótt að maður gæfi sér að Guðfinna hefði fengið ÞÚSUND fleiri atkvæði í 3ja sætið (sem er tíundi hver þátttakandi í prófkjörinu), t.d. ef færri hefðu barist um það sæti, þá hefði það EKKI dugað. Sama hvernig hrært er í tölunum, hver einasti frambjóðandi fyrir neðan Björn hefði þurft að fá fleiri atkvæði í "rétt" sæti til að Björn hefði lent neðar. Tæpast hleypur það á um 2% heildaratkvæði, sem getur ekki talist lítið.
Ef forsenda þess að einhvers konar keðjuverkun á borð við þetta hefði getað (fræðilega) átt sér stað, hefði t.d. Guðfinna þurft að fá nær öll atkvæði Ástu Möller í 3ja sætið.
Að sama skapi er kosning Guðlaugs Þórs svo afgerandi í annað sæti að þótt Björn hefði fengið öll atkvæði Péturs í 2. sæti hefði hann enn skort tæp 800 atkvæði upp á Guðlaug Þór.
Minnstur er munurinn (um sæti) milli Péturs og Ástu Möller, hana skorti 98 atkvæði til að ýta Pétur niður fyrir sig. Athyglisvert er að Ásta hefði að sama skapi getað dottið niður um enn eitt sæti ef Sigurður Kári hefði fengið 237 atkvæðum fleira.
Ansi mörg "hefði" komin, þannig að lokum ekki úr vegi að skoða atkvæði 6 efstu manna í 10. sæti. Enginn þessara sex sóttust eftir lægra sæti en því þriðja. Listinn er svona (atkvæði): Illugi 450, Björn 434, Pétur 422, Guðfinna 409, Guðlaugur Þór 263 og Geir 108. Geir fékk fleiri atkvæði einungis í 2. sætið fyrir utan fyrsta sætið auðvitað. E.t.v. einhverjir að senda "skilaboð" - en eru ekki fleiri en tæplega einn hundraðasti. Að sama skapi má sjá að utan formannsins fengu þessir yfir hundrað atkvæði í fyrsta sæti: Björn 360, Guðlaugur Þór 169, Pétur 165 og Guðfinna 120. Þarna eru e.t.v. 1-2% að sýna Birni "hollustu" sína sem þess sem ætti að leiða flokkinn (eðlilegt er að örfá atkvæði séu greidd hverjum frambjóðanda í 1. sæti án þess að viðkomandi sækist eftir því, þannig er það bara alltaf, þess vegna 1-2% en ekki 3%). Annað sem bendir til þess eru 200 atkvæði sem Geir fær í 2. sæti og hljóta að vera nokkuð meðvituð flesthver (meðaltal atkvæðafjöldi Geirs í 3.-8. sæti er 56).
Síðasta efnisgrein varpar e.t.v. engu ljósi á úrslitin en fyrir baunateljara er gaman að skoða "skrítnu" hliðina á svona úrslitum. Það sem þetta þó segir manni - ef eitthvað er - er að það er ekkert sem stingur í augun varðandi "skrítna" hlutann. Geir fær rússneska kosningu í forystu, Guðlaugur Þór glæsilega kosningu í 2. sæti og Björn örugga kosningu í 3. sæti. Punktur.
Agust skrifaði 30.10.06 00:18
Flokkun: Stjórnmál
Það eina sem er "skrítið" við úrslitin og þú ræðir alls ekki er heildaratkvæðifjöldinn. Þar er röðin þessi 1. Geir, 2. Guðlaugur, 3. Guðfinna, 4. Illugi, 5. Ásta, 6. Sigurður Kári, 7. Birgir, 8. Pétur, 9. Björn. Röðin semsagt alveg eins nema að Pétur og Björn hefðu lent neðar.
Skiptir þetta einhverju máli? Ja, það virðast allir vera búnir að gleyma því að í hinu alræmda prófkjöri árið 1982 þar sem Geir Hallgrímsson lenti í 7. sæti var einmitt miðað við heildarfjölda atkvæða, þ.e. það var ekki sætaprófkjör. Þannig að það er ekki rétt að segja (eins og sumir hafa sagt) að Björn hafi þó ekki lent í 7. sæti eins og Geir, því að hann hefði lent í 9. sæti í því kerfi (þó ber að gæta að því að kerfið hefur áhrif á hvernig fólk kýs, vitaskuld).
Önnur saga er auðvitað hvort Geir gamli og Björn hafi verðskuldað þessa framkomu prófkjörskjósenda (þórðargleði manna minnkar með aldrinum) en henni má alveg jafna saman.
Á skrifaði 30.10.06 11:27Aargh! Það er grundvallaratriði í Stefáns-kenningunni að beina EKKI sjálfur athygli að röngum spádómum eftirá...
Ef menn fara eftir reglunum svínvirkar hún hins vegar.
SHIFT-3 skrifaði 06.11.06 08:41Kenning Á virkar ekki alveg að því leyti að það má búast við öðruvísi kosningahegðun ef prófkjörið snýst um að ná exum. Prófkjörið 1982 snerist um að safna x-um, enginn bað um sæti og formaður flokksins auglýsti ekki.
f skrifaði 07.11.06 12:20