október 30, 2006
Prófkjörsúrslit - og smá talnaleikfimi
Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er lokið. Mér tókst að hafa illilega rangt fyrir mér varðandi eitt atriði og gat ekki einu sinni komist upp með það af því engin myndi muna eftir spánni minni, enda var hún líklegast heldur of djörf. Stefáns-kenningin virkaði semsagt ekki.Ef þetta skjal er skoðað sést hversu örugga kosningu Björn fékk í 3ja sætið. Þótt að maður gæfi sér að Guðfinna hefði fengið ÞÚSUND fleiri atkvæði í 3ja sætið (sem er tíundi hver þátttakandi í prófkjörinu), t.d. ef færri hefðu barist um það sæti, þá hefði það EKKI dugað. Sama hvernig hrært er í tölunum, hver einasti frambjóðandi fyrir neðan Björn hefði þurft að fá fleiri atkvæði í "rétt" sæti til að Björn hefði lent neðar. Tæpast hleypur það á um 2% heildaratkvæði, sem getur ekki talist lítið.
Ef forsenda þess að einhvers konar keðjuverkun á borð við þetta hefði getað (fræðilega) átt sér stað, hefði t.d. Guðfinna þurft að fá nær öll atkvæði Ástu Möller í 3ja sætið.
Að sama skapi er kosning Guðlaugs Þórs svo afgerandi í annað sæti að þótt Björn hefði fengið öll atkvæði Péturs í 2. sæti hefði hann enn skort tæp 800 atkvæði upp á Guðlaug Þór.
Minnstur er munurinn (um sæti) milli Péturs og Ástu Möller, hana skorti 98 atkvæði til að ýta Pétur niður fyrir sig. Athyglisvert er að Ásta hefði að sama skapi getað dottið niður um enn eitt sæti ef Sigurður Kári hefði fengið 237 atkvæðum fleira.
Ansi mörg "hefði" komin, þannig að lokum ekki úr vegi að skoða atkvæði 6 efstu manna í 10. sæti. Enginn þessara sex sóttust eftir lægra sæti en því þriðja. Listinn er svona (atkvæði): Illugi 450, Björn 434, Pétur 422, Guðfinna 409, Guðlaugur Þór 263 og Geir 108. Geir fékk fleiri atkvæði einungis í 2. sætið fyrir utan fyrsta sætið auðvitað. E.t.v. einhverjir að senda "skilaboð" - en eru ekki fleiri en tæplega einn hundraðasti. Að sama skapi má sjá að utan formannsins fengu þessir yfir hundrað atkvæði í fyrsta sæti: Björn 360, Guðlaugur Þór 169, Pétur 165 og Guðfinna 120. Þarna eru e.t.v. 1-2% að sýna Birni "hollustu" sína sem þess sem ætti að leiða flokkinn (eðlilegt er að örfá atkvæði séu greidd hverjum frambjóðanda í 1. sæti án þess að viðkomandi sækist eftir því, þannig er það bara alltaf, þess vegna 1-2% en ekki 3%). Annað sem bendir til þess eru 200 atkvæði sem Geir fær í 2. sæti og hljóta að vera nokkuð meðvituð flesthver (meðaltal atkvæðafjöldi Geirs í 3.-8. sæti er 56).
Síðasta efnisgrein varpar e.t.v. engu ljósi á úrslitin en fyrir baunateljara er gaman að skoða "skrítnu" hliðina á svona úrslitum. Það sem þetta þó segir manni - ef eitthvað er - er að það er ekkert sem stingur í augun varðandi "skrítna" hlutann. Geir fær rússneska kosningu í forystu, Guðlaugur Þór glæsilega kosningu í 2. sæti og Björn örugga kosningu í 3. sæti. Punktur.
október 17, 2006
Hvalur
Ríkisútvarpið greindi frá því í dag að hvalveiðar hæfust í atvinnuskyni á miðnætti í kvöld.Fljótlega var BBC vefurinn búinn að fjalla um málið með tilheyrandi tilvitnun í Árna Finnsson.
Það er nokkuð ljóst að kosningar eru á næsta leiti. Áfram Ísland!
Sem breytir því ekki að þetta er hið besta mál, ef litið er á málið út frá skynsemislegum forsendum. Hvalir eru einsog hver önnur nytjadýr og ætti að vera kvóti á hvalveiðar (innan réttra marka) líkt og þorsk- eða ýsuveiðar. Og hvalveiðibátar ættu að veiða hvali án íhlutunar ríkisins. Sér í lagi fjárhagslega. Ríkisstyrktar hvalveiðar (þótt óbeinar séu) eru út í hött, á meðan hvalveiðar í atvinnuskyni er eðlileg nýting auðlinda.
Sofið hjá mökunum okkar*
Why not sleep with our partners? Excellent hotels and guesthouses at great prices.- Icelandexpress.com
Vond þýðing eða mjög undarlegur húmor hjá fyrirtækinu? Hlýtur að toppa Flugleiða-auglýsinguna "Fancy a dirty weekend?"
* Kannski ekki beinasta þýðingin til baka yfir á íslensku, en þetta er vissulega ein merkingin. Augljóslega er átt við partners í viðskiptalegum skilningi hér. Vonandi... Og þó, þetta meikar ekki sens, hvernig sem maður reynir að þýða þetta!
október 13, 2006
Google.is
Kannski er ég eini maðurinn sem læt þetta pirra mig en þegar ég slæ inn leitarorð í google-boxið á Firebox vafranum fæ ég leitarniðurstöður frá Google.is, auk þess sem ég fæ - aftur - Google.is sjálfkrafa þegar ég opna vafrann.Ótrúlega pirrandi!
Ekki aðeins missir maður þarna t.d. "news" fídusinn út úr Google, heldur verður maður að byrja upp á nýtt ef maður slær inn í upphafssíðuna leitarstreng. Ef google-boxið er notað er þó hægt að stroka út .is fyrir .co.uk eða .com eftir hentugleika.
Ef fólk heldur að Google og Google.is sé nákvæmlega það sama, reynið t.d. að slá inn "island" inn í hvora útgáfuna fyrir sig. Google.is skilur þetta sem "Ísland" og gefur manni heimasíðu KSÍ en Google.co.uk t.d. gefur síðu fyrir kvikmyndina The Island á IMDb.
Og það virðist engin góð leið til þess að losna undan þessum stimpli Google, sem ákveður að fyrst maður noti netið í gegnum .is-vefþjón, þá hljóti maður ekki að skilja neitt neina nema íslensku og vilja bara sjá íslenskar síður - óháð þjónustustigi.
október 05, 2006
„Farþegar Iceland Express til Lundúna...“
Ekki nema þriggja og hálfs tíma seinkun á fluginu. Æðislegt! Það jafnast ekkert á við 400 kr. Sómasamlokur...Ferðþegarnir til Kaupmannahafnar sem áttu að fara kl. 7.15 í loftið eru að fara út í vél í þessum töluðu orðum. Enda voru flestir bekkirnir uppteknir í gamla ganginum út í ranana. Þröngt mega sáttir sofa - eða þannig.
Mér þykir yfirleitt nokkuð skemmtilegt að fara í gegnum flugvelli. Nema, líkt og allir aðrir á mínum aldri sjálfsagt, minningarnar sem ég á frá sólarstrandarflugvöllum á Spáni eru slæmar. Yfirprísað snakk og volgt kók. Ekkert í fríhöfninni nema sígarettur og bús og yfirleitt voru flugin um hádegi en rúturnar sóttu karfarauða farþegana fyrir sólarupprás. Síðan var 1-2 tíma seinkun.
Að fara um alþjóðaflugvelli þykir mér hinsvegar ekki svo slæmt. Maður getur í versta falli keypt IHT og kaffibolla og horft svo á mannlífið. Hérna eru hinsvegar allir eins auðvitað, fyrir utan stöku Skandinava og einn kaþólskan prest á áttræðisaldri. Og IHT er of dýrt til að splæsa því á sig.
Þrír tímar í brottför og ég er búinn að gera allar ráðstafanir. Kannski tími á að taka upp "flugbókina" áður en einhver stundarbrjálæðisinnkaup eiga sér stað í Fríhöfninni.
október 04, 2006
For the record
Hér hefur ekkert verið skrifað í 5-6 vikur og síðustu vikurnar er ég búinn að skila af mér mastersritgerðinni, ferðast um Cornwall, Wales og Tyrkland og búinn núna að vera á landinu síðan um þarsíðustu helgi. Er að leita mér að vinnu en var vart lentur fyrr en ég náði mér í nýjustu ælupestina. Síðdegis á morgun er ég svo á leiðinni til Bretlands yfir helgina, sem ég náði í á tilboði hjá Iceland Express.Jákvæðasta frétt dagsins á Íslandi í dag hlýtur að teljast fregnir af því að Ryanair sé að fara að fljúga til landsins frá bæði London og Dublin. (Ætli þetta vera í fyrsta skipti sem fréttabréf Félags íslenskra atvinnuflugmanna sé með skúbb sem þetta?)