nóvember 06, 2006

Fyrirmyndarríkið

Merkilegt að horfa á Silfur Egils í gær. Fyrir um mánði síðan, við upphaf þings heyrði ég brot úr ræðu Magnúsar Þórs, þar sem hann sagði m.a.:
Erlent vinnuafl hefur flætt inn í landið sem aldrei fyrr á örfáum mánuðum. Við teljum að við Íslendingar séum engan veginn undirbúnir til þess að taka á móti þessum fjölda sem mun bara aukast og aukast og aukast. Þetta fólk er engir farandverkamenn eins og forsætisráðherra nefndi hér í ræðu sinni. Stærstur parturinn af þessu fólki er kominn til að vera, þannig verður það.
Ég þekkti ekki forsöguna þá, enda ekki á landinu síðasta vetur. Afskrifaði þetta hálfpartinn sem þjóðrembukvabb sem heyrist stundum frá ákveðnum stjórnmálamönnum. Þar sem það er kosningarvetur fannst mér samt þetta gefa tóninn á óþægilegan hátt. Frjálslyndi flokkurinn er jú í eðli sínu pöpulískur, (m.a.s. stofnaður af nýreknum, bitrum ríkisbankastjóra í hefnd) og ég velti fyrir mér hvort þetta yrði baráttumál Magnúsar og félaga, sem nú berjast fyrir þinglífi sínu í vor. Tilvísanir í kvótamál og Grímseyjar fengu mig þó til að hugsa að líklegast væri lítið að óttast, eins-máls-flokkurinn væri ennþá eins-máls-flokkur. Einhvern veginn grunaði mann frekar að eitthvað á borð við skrif Jóns Magnússonar sem komu fram s.l. miðvikudag í Blaðinu (feitletranir eru mínar):
Væri ég atvinnulítill Pólverji mundi ég ekki hugsa mig tvisvar um og flytja til Íslands. Enginn má skilja orð mín svo að ég sé á móti Pólverjum eða öðru kristnu fólki úr okkar heimshluta. Sem dæmi þá er mér afar vel við Dani, Svía og Norðmenn en væri það eftirsóknarvert að hingað flyttust 50 þúsund Norðmenn, 100 þúsund Svíar og 60 þúsund Danir? Þó spyrnt sé við fótum gegn auknum straumi innflytjenda til landsins þá hefur það ekkert með virðingarleysi fyrir öðrum þjóðum eða kynþáttafordóma að gera. Það hefur með það að gera hvernig við viljum sjá landið okkar og þjóð félagið þróast.

[...]

Það breytir því ekki að við viljum hafa okkar velferðarsamfélag fyrir Íslendinga. Við viljum ekki missa algjörlega stjórn á þróuninni. Ég vil ekki fá hingað fólk úr bræðralagi Múhameðs [óljóst er hvort hann á við múslima hér eða samtökin Bræðralag múslima] sem hefur sín eigin lög og virðir ekki lágmarks mannréttindi og misbýður konum. Ég vil ekki fá til Íslands hópa sem eru til vandræða alls staðar í Evrópu.
Sjónarmið sem þessi eru ekki ný á nálinni og Jón Magnússon hefur svosem átt drauma um að stíga pólitískar öldur sér í hag. Hingað til hafa skrif sem þessi þó aðallega komið frá pylsusölum í Árbænum eða enn einangraðari hópum manna.

Magnús Þór virðist vera búinn að finna leið til að halda sæti sínu á þingi: Xenofóbíu í garð austur-evrópsks fólks. Það mátti búast við þessu. Það var hinsvegar ekki útlit fyrir að neinn stjórnmálaflokkur tæki sig til og tappaði af þessum hvötum. Útbúa málið líka í "málefnalegan búning", nokkuð sem rasistar hafa gert í Vestur-Evrópuríkjum.

Það eru margar hliðar á þessu máli og sumar þeirra verður að ræða. Aðferðafræðin skiptir hinsvegar miklu máli. Skrif Jóns eru ekkert annað en xenofóbía í besta falli, í versta falli rasismi. Magnús fagnaði þeim skrifum á vefsíðu sinni og í málflutningi hans má greina sömu skoðanir.

Niðurstaðan á endanum verður sjálfsagt sú að þetta gæti bjargað Frjálslyndum með að þurrkast ekki út. Eftir allt saman þá sést ekki hvað þú kýst í kjörklefanum. Hitt er svo mikilvægara að flokkarnir láti ekki fæla sig út í daður við þessar skoðanir. Skoðanakannanir eiga sjálfsagt eftir að sýna fylgi Frjálslyndra rjúka upp (fékk ekki líka Þjóðvaki á sínum tíma fjórðung atkvæða skv. skoðanakönnun nokkrum vikum fyrir kosningar?). Nú reynir á hina flokkana, ekki síst stjórnarflokkana, að standa það af sér. Annars erum við komin í vond mál.
Agust skrifaði 06.11.06 17:00

Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation , Jafnréttismál , Stjórnmál , Ísland
Comments

rasista rasisti þinn :(

z0mg nasista rasismi! skrifaði 29.12.06 00:22

Ég veit nú ekki hvort þetta comment er djók eða misskilningur. Eða eru spamm-kommentin farin að vera á íslensku? - Án þess að reyna að selja klám eða víagra!

Ágúst skrifaði 03.01.07 19:15