nóvember 07, 2006

Bandarísku þingkosningarnar

Fyrir nokkru notaði ég ein af þessum gagnvirku vefsíðum sem settar hafa verið í tengslum við kosningarnar í Bandaríkjunum í dag.

Spá mín er 51-49 í öldungadeildinni fyrir repúblikana og 220-215 fyrir demókrata í fulltrúadeildinni. Engin útspekúleruð analysering en mér sýnist þetta vera í samræmi við flestar spár, sem spá a.m.k. sömu meginúrslitum, í mesta lagi geti verið 50-50 skiptin eftir kosningarnar í öldungadeildinni, sem enn þýddi þó að repúblikanar héldu völdum þar.

Fari maður t.a.m. inn á CNN.com/election fær maður þær upplýsingar að 25 sæti séu í óvissu í fulltrúadeildinni og 5 í öldungadeildinni. New York Times telur tvö þessarra sæta í öldungadeildinni falla hvort um sig að öðru flokkum frekar en hinum: New Jersay (d) og Tennessee (r).

Hin ríkin (þrjú) eru Montana, Missouri og Virginia.
Í Virgínu láta demókratar sig dreyma að fella George Allen, sitjandi öþm repúblikana, með fyrrverandi flotamálaráðherra (í 10 mán.) í ríkisstjórn Reagans, Jim Webb. Sá hefur verið ásakaður um klámkenndar setningar í skáldsögu sem hann skrifaði. Slíkt jaðrar við frjálslyndi, nema þú sért Lynne Cheney, og það er ljótt orð í Virginíu. Þetta er ein mest spennandi baráttan í þessum kosningum. Webb leiddi framan að en nú um mánaðamótin hefur Allen siglt fram úr - og mun væntanlega sigra með litlum mun.

Í Missouri er sitjandi öþm Jim Talent fyrir repúblikana. Fyrir demókrata er fylkisendurskoðandinn Claire McCaskill. Talent hefur safnað og eytt margfalt meira fé en McCaskill. Skoðanakannanir hafa samt sem áður sýnt jafna stöðu eða McCaskill aðeins yfir. Raunar sigraði Talent árið 2002 aðeins með 1,1% mun (22 þús atkvæðum). Þá sigraði hann Jean Carnahan, sem komið hafði inn á þing fyrir eiginmann sinn sem lést í flugslysi stuttu fyrir kosningarnar (eitt af þessum furðulegu atvikum í bandarískum stjórnmálum). Lögum samkvæmt hafði hún (Carnahan) aðeins fengið að sitja tæp tvö ár. Hún hafði hinsvegar sigrað, í þessum furðulegu kosningum árið 2000 John nokkurn Ashcroft. Sá hafði verið fylkisstjóri á undan eiginmanni Carnahan. Talent sat hinsvegar áður á fulltrúaþinginu fyrir Missouri. Nóg um það, staðan er þarna jöfn og spennandi og Talent gæti auðveldlega tapað þessu. Michael J. Fox beindi auglýsingu sinni gegn andstöðu Talents við stofnfrumurannsóknum. Talent hefur líka verið viðriðinn spillingarmál. Missouri þótti eitt sinn endurspegla Bandaríkin í víðara samhengi pólitískt. Síðastu daga hafa langflestar skoðanakannanir bent til að Talent tapi - og ég gæti alveg trúað að munurinn verði aftur 1,1%, honum í óhag í þetta skiptið.

Að lokum er það Montana. Þar situr Conrad Burns fyrir repúblikana í öldungadeildinni. Hann situr í góðum nefndum sem tryggir honum fyrirgreiðsluáhrif. Hann hefur hinsvegar verið uppvís að nokkrum spillingarmálum m.a. og hefur mælst undir í skoðanakönnunum. Mótframbjóðandi hans, Jon Tester, er lífrænt ræktandi bóndi og forseti öldungadeildar Montana. Þessi barátta þeirra hefur verið spennandi og Tester yfir með 4% í nýlegri könnun. Burns sigraði með aðeins 3,3% forskoti síðast en Bush var með 20,5% forskot í forsetakosningunum 2004 og 25% árið 2000. Tester gæti tekið þetta en ég efast þó um að demokratar nái bæði Montana og Missouri. Gætu samt gert það - og það þýddi þá 50-50 skiptingu í öldungadeildinni.

Ég ætla ekki að fara nánar út í fulltrúadeildina en hver niðurstaðan verður, þá held ég að það þurfi næstum því kraftaverk til að repúblikanar haldi henni. Á móti þarf eiginlega allt að ganga á besta veg fyrir demókrata til að þeir nái öldungadeildinni og ekki nema þeir nái Virginíu, þá sjáum við óvænt og áhugaverð úrslit - og demókratar munu sitja við völd í báðum deildum.
Agust skrifaði 07.11.06 20:52

Flokkun: Ameríka , Stjórnmál