desember 08, 2006
Mánuði seinna...
Kominn sléttur mánuður síðan hér var birt ný færsla. Ekki seinna vænna en að bæta úr því.Síðasta mánuðinn hefur svosem ýmislegt breyst hjá mér. Ég er hættur að mæla göturnar og m.a.s. kominn með tvö störf! Í fyrsta lagi byrja ég í nýju starfi eftir áramót. Það er í raun og veru draumadjobbið fyrir mig á þessum tímapunkti, þannig ég er hæstánægður með að hafa fengið það. Hitt er tímabundið verkefni og verð ég í því fram að jólum. Spennandi og fjölbreytilegt og að mestu gjörólíkt því sem ég hef áður verið að gera, þó þetta sé í 7. skiptið sem ég ræð mig til sama fyrirtækis.
Skilaði mínum fyrsta degi þar í dag og verð að segja að það var alveg yndislegt að standa upp að loknum löngum degi og hafa unnið heilan vinnudag í alltof langan tíma.
Agust skrifaði 08.12.06 23:44
Flokkun: Daglegt líf
Comments
ertu semsagt búinn að ráða þig hjá álframleiðandanum einu sinni enn :D
er kannski búið að ráða þig sem talsmann stækkunar
Jói skrifaði 10.12.06 13:09Svarið við þessu myndi var já... og nei :)
Ágúst skrifaði 12.12.06 21:42