desember 21, 2006
Túrkmenbasi dáinn
Það er ekki laust við að manni bregði svolítið þegar ein fyrsta fréttin sem maður sér á forsíðu Mbl er að Túrkmenbasi sjálfur er dáinn.Það verður athyglisvert að sjá hvað gerist í Túrkmenistan á næstu dögum. Það er ekki hlaupið að því að finna nýjan óskeikulan forseta, eða "föður allra Túrkmena". Einnig þurfa Túrkmenar núna (eða að finna nýjan metsöluhöfund, þjóðarskáld, skíra mánuðina upp á nýtt og skipta út stórum hluta námsefnis grunnskólanna, sem aðallega snýst um afrek leiðtogans.
Hinsvegar er spurning hvort að nýr forseti þurfi að ganga í gegnum tvennar "lýðræðislegar" kosningar áður en hann er gerður forseti fyrir lífstíð, líkt og Túrkmenbasi var árið 1999.
Tengill á google-news.
desember 09, 2006
Ótrúlegar myndir
Hjá Sky News er hægt að skoða alveg ótrúlegar myndir frá Norður-Lundúnum í vikunni þegar skýstrókur fór í gegnum hverfi og ógnvekjandi afleiðingum.24 hús hafa verið úrskurðuð óíbúðarhæf. 150 hús skemmdust. 75 fjölskyldum þurfti að veita húsaskjól. Sjá myndir frá "daginum eftir" hér.
desember 08, 2006
Mánuði seinna...
Kominn sléttur mánuður síðan hér var birt ný færsla. Ekki seinna vænna en að bæta úr því.Síðasta mánuðinn hefur svosem ýmislegt breyst hjá mér. Ég er hættur að mæla göturnar og m.a.s. kominn með tvö störf! Í fyrsta lagi byrja ég í nýju starfi eftir áramót. Það er í raun og veru draumadjobbið fyrir mig á þessum tímapunkti, þannig ég er hæstánægður með að hafa fengið það. Hitt er tímabundið verkefni og verð ég í því fram að jólum. Spennandi og fjölbreytilegt og að mestu gjörólíkt því sem ég hef áður verið að gera, þó þetta sé í 7. skiptið sem ég ræð mig til sama fyrirtækis.
Skilaði mínum fyrsta degi þar í dag og verð að segja að það var alveg yndislegt að standa upp að loknum löngum degi og hafa unnið heilan vinnudag í alltof langan tíma.