febrúar 14, 2007
Anna og sjónvarpsfréttirnar
Ţessi frétt vakti athygli mína og margra fleiri í dag. Ţar er m.a. ţessi klausa:Carol Foyler, sem sögđ er talskona samtakanna, sagđi á blađamannafundi í Washington ađ fréttastofurnar virtust ekki hafa gert sér grein fyrir ţví hversu mikill áhugi vćri á málinu og hversu mikil áhrif dauđi Önnu Nicole hefđi haft á ţjóđina. „Í stađ ţess ađ segja stöđugar fréttir af málinu gerđu fréttastofurnar stundum hlé á umfjöllun sinni sekúndum saman til ađ segja fréttir frá Írak,” sagđi hún. „Fyrir ţjóđ sem var ađ takast á viđ missi var ţetta eins og ađ snúa hnífnum í sárinu."Ţetta er bein ţýđing á "ekki-fréttasíđu" (a la Haukur Hauksson, ekki-fréttamađur) - eđa ćtti mađur ađ segja "Baggalútssíđu"? - í Newsweek sem ađgengileg er á MSNBC.com: CNN: ‘We Dropped the Ball’.
Ţá er Jon Klein, yfirmađur fréttastofu CNN í Atlanta, ţegar sagđur hafa beđist afsökunar á lélegum fréttaflutningi stöđvarinnar af málinu sem best megi lýst međ ţví ađ „hún hafi misst boltann.”
„Ég fór yfir umfjöllun okkar um andlát Önnu Nicole Smith og sá ađ án viđvörunar var klippt á hana til ađ sýna frétt frá Darfur,” er haft eftir honum. „Ég get fullvissađ ykkur um ţađ ađ slíkt mun ekki gerast aftur. Ekki á minni vakt.”
Athyglisvert er ađ Net-Mogginn lét ógert ađ ţýđa síđustu efnisgreinina í upprunalegu fréttinni:
Elsewhere, Nashville Mayor Bill Purcell vetoed a bill that would have made English the official language of the city, saying that it would have discouraged President Bush from visiting.Hefđi veriđ gaman ađ sjá Net-Moggann ţýđa ţetta hrátt líkt og hitt.
Net-Mogginn breytti raunar upprunalegu útgáfunni síđar í dag. Hefur nú veriđ bćtt inn tilvísun í Borowitz Report og tekiđ fram ađ um "ádeiluvef" sé ađ rćđa. Ţađ breytir ţví ekki ađ í upphaflegum búningi sýndi fréttin augljóslega ađ "blađamađur" Net-Moggans "missti boltann" (svo hrá ţýđing á enska orđatiltćkinu sé notuđ líkt og í fréttinni) og féll fyrir ţessu sem alvöru frétt.
_ _ _ _ _ _
En öllu gamni fylgir nú einhver alvara, einsog sagt er. Huffingtonpost.com (og til ađ fylgja dćmi Net-Moggans skal ţađ tekiđ fram ađ um er ađ rćđa blogg- og fréttavef sem er mjög hallur undir bandaríska demókrata og getur veriđ dulítiđ "gáfumannalegur" á köflum, međ nefiđ upp í loft yfir lágmenningu og sinnuleysi almennings, pínulítiđ líkt og Múrinn.is var ţegar hann var áhugaverđur, nema bara ekki eins sósíalískur) birtir athyglisverđar tölur (sjá hér):
Fréttaflutning 5.-9. febrúar í kvöldfréttatímum ţriggja stóru stöđvanna í USA mćldur í mínútum eftir umfjöllunarmáli
Írak: 34 mín
Vetrarveđur/snjór: 24 mín
"Brjálađa geimfarastelpan" (til ađ vitna í ekki-fréttina): 16 mín
New Orleans update: 15 mín (sérstök umfjöllun NBC)
Andlát Önnu Nicole Smith: 14 mín
[Fjórar ađrar fréttir]
Barack Obama lýsir yfir frambođi sínu: 6 mín (engin umfjöllun á ABC)
14 mínútum illa variđ. Ekkert ţó í líkingu viđ daglegan hálftíma á Sirkus af The Anna Nicole Opsessed Show, einnig ţekkt sem E! Tonight eđa "Innherjinn" sem er síđan endursýndir SAMA KVÖLD.
Agust skrifađi 14.02.07 22:31
Flokkun: Ameríka