febrúar 15, 2007

Opin búð

Ég hef þrívegis þessa viku tekið eftir því að ég er með "opna búð". Samt virðist ekkert vera að rennilásnum á buxunum þegar þetta hefur komið fyrir. Og sem betur fer í öllum tilfellum buxur með slíku sniði að það sést vart ef þetta gleymist. Og enginn hefur tekið eftir þessu - a.m.k. hefur enginn bent mér á þetta.

Ég get samt ekki séð annað en að þetta sé alvarlegt mál. Er mér farið að förlast? Eða eru öll þessi ár með hnepptum gallabuxum að segja til sín svona? Vona það frekar en að ég sé að verða elliær!
Agust skrifaði 15.02.07 22:43

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Hey, velkominn aftur! :-)

Einar Örn skrifaði 15.02.07 22:59