febrúar 25, 2007
Vinstri-grænn einkabílismi
Sumar fréttir eru einfaldlega ofgóðar til að vera sannar. Maður vonast eftir að sjá slíkar fréttir en býst aldrei við þeim. En svo dúkka þær upp stundum, líkt og þessi, ekki sem forsíðufréttir, en fréttir sem maður getur brosað út í annað yfir:Einn á hjóli hjá VG
Mikið fjölmenni er á Landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem fer fram á Grand Hóteli í Reykjavík um helgina. Í umræðum um kosningaáherslur í morgun kom meðal annars fram að aðeins einn þátttakandi mætti á landsfundinn á hjóli en aðrir komu akandi.Minnir á manninn sem barði sér á brjóst með því að halda "bíllausa daginn" - og mætti svo í vinnuna akandi. Nema hvað í þessu tilfelli eru það allir forvígismenn vinstrihreyfingarinnar sjálfumglöðu sem falla á prófinu.
Agust skrifaði 25.02.07 14:19
Flokkun: Stjórnmál , Ísland
Ég nota strætó dagsdaglega en keyrði á landsfund (ekki einn, samnýttur bíll - það er náttúrulega stórt atriði) vegna þess að það er mjög óhentugt að taka strætó á svona samkomur. Ég var vel fram yfir miðnætti í gærkvöldi á svæðinu og strætó þá hættur að ganga. Þegar ég fór þá keyrði ég með troðinn bíl af gangandi flokkssystkinum mínum heim og niður í bæ (það gleymdist að spyrja um gangandi fólk).
Ég er nokkuð viss um að ef könnun hefði verið gerð á því hvernig félagar mínir á landsfundi komast dagsdaglega leiðar sinnar þá held ég að við hefðum komið mjög vel út, ég hitti allavega almennt marga Vinstri Græna í strætisvögnum borgarinnar.
Óli Gneisti skrifaði 25.02.07 17:56Komm on! Segjum það bara eins og er - fólk sem fer sinna ferða á hjóli í febrúar eru upp til hópa nöttarar!
Ég myndi fyrst byrja að vantreysta stjórnmálaflokki sem héldi landsfund í febrúarlok og allir mættu á hjólum.
SHIFT-3 skrifaði 25.02.07 19:59Tvímælalaust, Stefán. Vinstri-grænir er engu að síður uppfullir af hátíðlegum yfirlýsingum um umhverfismál. Að þeir séu gripnir í bólinu með þessum hætti finnst mér skemmtilegt. Svipað og á landsfundi Framsóknarflokksins væri boðið upp á danskar kjúklingabringur gratíneraðar hollenskar kartöflur með ítölskum osti.
Ágúst skrifaði 25.02.07 20:46Í Bretlandi er það að vera Græningi nánast samheiti við að vera grænmetisæta og nota reiðhjól. Grínlaust. Ég hef aldrei séð viðtal við fulltrúa breska Græningjaflokksins án þess að hjólreiðamál beri á góma.
Þessi hjólreiðadýrkun fylgir sumur græningjaflokkum, en alls ekki öllum. Þýskir græningjar hafa t.d. ekki þessa reiðhjólarómantík. Bandarískir græningjar ekki heldur.
Hjólreiðalobbýið hefur svo sem aldrei verið áhrifamikið innan VG. Ég man t.d. ekki eftir að hjólreiðar eða hjólreiðastígar hafi verið gerð að neinu aðalatriði í kosningastefnuskrám. Er það ekki forsenda þess að hægt væri að tala um tvískinnung?
Hitt er annað mál að frá grænu sjónarmiði var umdeilanlegra að éta ástralska kengúru á kvöldverðarboðinu á laugardaginn. Það fór talsvert eldsneyti í að koma þeim kjötbita til Íslands...
SHIFT-3 skrifaði 25.02.07 22:24