febrúar 25, 2007
Made in China
Í Silfri Egils í dag kom fram að Steingrímur J. vilji koma á fót netlöggu til að skera upp herör gegn klámi .Í sama þætti tóku Steinunn Valdís og Atli Gíslason undir slíkar tillögur.
Þau voru ekki að tala um eftirlit, heldur síu. Ergo: fyrst kínversk stjórnvöld geta lokað internetinu fyrir óæskilegum upplýsingum, af hverju geta íslensk stjórnvöld ekki lokað internetinu fyrir klámi.
Hvernig á að skilgreina "klám"? Hver á að gera það og hverjum á að treysta fyrir því að ritstýra internetinu? Af hverju bara klám? Af hverju ekki að sía út t.d. síður nýnasista? Eða enn frekar af hverju ekki að sía út allt óhóflegt ofbeldi? Á internetinu eru nú ýmiskonar viðbjóður, jafnvel upptökur af pyntingum, morðum og limlestingum. Af hverju á að leyfa það frekar en klám? Er hættuminna að horfa á morð og pyntingar heldur en klám? Og hvernig á að sía þetta allt saman út án þess að banna hreinlega allt sem ekki hefur verið "yfirfarið" af Netlögreglu ríkisins? Og síðast ekki síst, þýðir þetta ekki að fara þurfi í gegnum tölvupóst hvers einasta internetnotanda á Íslandi??
Í augum formanns næststærsta stjórnmálaflokks eru þetta atriði sem skipta algjörlega engu máli.
Agust skrifaði 25.02.07 20:13
Flokkun: Internetið , Stjórnmál , Ísland
Comments
Þeir eru nú ekki orðnir stærri en Samfylkingin ennþá. Bæði er Samfylkingin enn aðeins stærri í skoðanakönnun og svo eru stærðir flokka mældar í kosningum. :-)
En ég bara neita að trúa að þetta hafi verið vel hugsað hjá Steingrími. Ég bara trúi því ekki. Þetta er svo vitlaus hugmynd að það er engu lagi líkt. Næsta skref hlýtur að vera að blörra brjóst og slíkt.
Einar Örn skrifaði 25.02.07 20:48Jamm, þetta er merkilega vitlaust.
Óli Gneisti skrifaði 26.02.07 04:31Mér finnst þetta alveg furðuleg hugmynd - og ég segi það með þér - hver á að skilgreina "klám" og hvernig??
Vera skrifaði 26.02.07 13:57