febrúar 27, 2007

Stjórnmál eru staðbundin

Frasinn um að stjórnmál séu alltaf staðbundin (local), hvort sem menn trúa á þá hugmynd eða ekki, á síst minna við um Íran en önnur lönd.

Menn á vesturlöndum gleyma oft að forsetinn Ahmadinejad var kosinn aðallega vegna staðbundinna aðstæðna og á ímynd heiðarleika (í stað spillingar Rafsanjani, keppinautarins). En Mahmoud var ekki lengi í Paradís. Hvað sem fólk heldur um Írani, eru fleiri og fleiri farnir að tapa þolinmæðinni gagnvart því sem lítur út fyrir að vera eldmóður forsetans til að einangra landið á alþjóðavettvangi en láta efnahagsumbætur sitja á hakanum. Atvinnuleysi hefur ekki minnkað, hagvöxtur ekki aukist. Samanber:
As late as November, Mr Ahmadinejad's star was still on the rise.

However, things were not looking good on the economic front.

When he took office, Mr Ahmadinejad promised to raise the standard of living for the huge number of Iranians living in poverty. Many of the 17 million people who voted for him did so in the expectation that he would create jobs, curb inflation and improve poverty.

Instead, inflation has risen, there has been no decline in unemployment and there have been huge price rises in the housing sector. The gap between rich and the poor has shown no sign of narrowing.
Svar hans við þessu virðist hinsvegar vera að herða harðlínustefnuna á erlendum vettvangi, í stað að taka á málunum heima fyrir. "Rally around the flag" einsog það er kallað. Á sama tíma virðist bandalag harðlínumannanna að baki honum sýna bresti með hverri innistæðulausu yfirlýsingunni. Gömul saga og ný svosem.

Sjá stutta fréttaskýringu hjá BBC: Political problems mount for Ahmadinejad
Agust skrifaði kl. 0:21 | Comments (2)
Flokkun: Mið-Austurlönd

Salat með geitaosti eða snigla-karrý?

Það virðist ganga hvorki hratt né vel hjá sérstökum alþjóðlegum dómstóli sem rétta á yfir Rauðu khmerunum í Kambódíu. Ekki aðeins sjá erlendu lögmennirnir hlutina ólíkt kambódísku lögmönnunum, maturinn í mötuneytinu hefur valdið miklum vandræðum. Á meðan tapa fleiri khmerar fyrir elli kerlingu og vitnunum fækkar af sömu ástæðu.

Sjá frétt BBC: Rocky road to Khmer Rouge trial
Agust skrifaði kl. 0:09 | Comments (0)
Flokkun: Lög&réttur

febrúar 25, 2007

Made in China

Í Silfri Egils í dag kom fram að Steingrímur J. vilji koma á fót netlöggu til að skera upp herör gegn klámi .

Í sama þætti tóku Steinunn Valdís og Atli Gíslason undir slíkar tillögur.

Þau voru ekki að tala um eftirlit, heldur síu. Ergo: fyrst kínversk stjórnvöld geta lokað internetinu fyrir óæskilegum upplýsingum, af hverju geta íslensk stjórnvöld ekki lokað internetinu fyrir klámi.

Hvernig á að skilgreina "klám"? Hver á að gera það og hverjum á að treysta fyrir því að ritstýra internetinu? Af hverju bara klám? Af hverju ekki að sía út t.d. síður nýnasista? Eða enn frekar af hverju ekki að sía út allt óhóflegt ofbeldi? Á internetinu eru nú ýmiskonar viðbjóður, jafnvel upptökur af pyntingum, morðum og limlestingum. Af hverju á að leyfa það frekar en klám? Er hættuminna að horfa á morð og pyntingar heldur en klám? Og hvernig á að sía þetta allt saman út án þess að banna hreinlega allt sem ekki hefur verið "yfirfarið" af Netlögreglu ríkisins? Og síðast ekki síst, þýðir þetta ekki að fara þurfi í gegnum tölvupóst hvers einasta internetnotanda á Íslandi??

Í augum formanns næststærsta stjórnmálaflokks eru þetta atriði sem skipta algjörlega engu máli.
Agust skrifaði kl. 20:13 | Comments (3)
Flokkun: Internetið , Stjórnmál , Ísland

Vinstri-grænn einkabílismi

Sumar fréttir eru einfaldlega ofgóðar til að vera sannar. Maður vonast eftir að sjá slíkar fréttir en býst aldrei við þeim. En svo dúkka þær upp stundum, líkt og þessi, ekki sem forsíðufréttir, en fréttir sem maður getur brosað út í annað yfir:
Einn á hjóli hjá VG
Mikið fjölmenni er á Landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem fer fram á Grand Hóteli í Reykjavík um helgina. Í umræðum um kosningaáherslur í morgun kom meðal annars fram að aðeins einn þátttakandi mætti á landsfundinn á hjóli en aðrir komu akandi.
Minnir á manninn sem barði sér á brjóst með því að halda "bíllausa daginn" - og mætti svo í vinnuna akandi. Nema hvað í þessu tilfelli eru það allir forvígismenn vinstrihreyfingarinnar sjálfumglöðu sem falla á prófinu.
Agust skrifaði kl. 14:19 | Comments (4)
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

febrúar 15, 2007

Opin búð

Ég hef þrívegis þessa viku tekið eftir því að ég er með "opna búð". Samt virðist ekkert vera að rennilásnum á buxunum þegar þetta hefur komið fyrir. Og sem betur fer í öllum tilfellum buxur með slíku sniði að það sést vart ef þetta gleymist. Og enginn hefur tekið eftir þessu - a.m.k. hefur enginn bent mér á þetta.

Ég get samt ekki séð annað en að þetta sé alvarlegt mál. Er mér farið að förlast? Eða eru öll þessi ár með hnepptum gallabuxum að segja til sín svona? Vona það frekar en að ég sé að verða elliær!
Agust skrifaði kl. 22:43 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

febrúar 14, 2007

Anna og sjónvarpsfréttirnar

Þessi frétt vakti athygli mína og margra fleiri í dag. Þar er m.a. þessi klausa:
Carol Foyler, sem sögð er talskona samtakanna, sagði á blaðamannafundi í Washington að fréttastofurnar virtust ekki hafa gert sér grein fyrir því hversu mikill áhugi væri á málinu og hversu mikil áhrif dauði Önnu Nicole hefði haft á þjóðina. „Í stað þess að segja stöðugar fréttir af málinu gerðu fréttastofurnar stundum hlé á umfjöllun sinni sekúndum saman til að segja fréttir frá Írak,” sagði hún. „Fyrir þjóð sem var að takast á við missi var þetta eins og að snúa hnífnum í sárinu."

Þá er Jon Klein, yfirmaður fréttastofu CNN í Atlanta, þegar sagður hafa beðist afsökunar á lélegum fréttaflutningi stöðvarinnar af málinu sem best megi lýst með því að „hún hafi misst boltann.”

„Ég fór yfir umfjöllun okkar um andlát Önnu Nicole Smith og sá að án viðvörunar var klippt á hana til að sýna frétt frá Darfur,” er haft eftir honum. „Ég get fullvissað ykkur um það að slíkt mun ekki gerast aftur. Ekki á minni vakt.”
Þetta er bein þýðing á "ekki-fréttasíðu" (a la Haukur Hauksson, ekki-fréttamaður) - eða ætti maður að segja "Baggalútssíðu"? - í Newsweek sem aðgengileg er á MSNBC.com: CNN: ‘We Dropped the Ball’.

Athyglisvert er að Net-Mogginn lét ógert að þýða síðustu efnisgreinina í upprunalegu fréttinni:
Elsewhere, Nashville Mayor Bill Purcell vetoed a bill that would have made English the official language of the city, saying that it would have discouraged President Bush from visiting.
Hefði verið gaman að sjá Net-Moggann þýða þetta hrátt líkt og hitt.

Net-Mogginn breytti raunar upprunalegu útgáfunni síðar í dag. Hefur nú verið bætt inn tilvísun í Borowitz Report og tekið fram að um "ádeiluvef" sé að ræða. Það breytir því ekki að í upphaflegum búningi sýndi fréttin augljóslega að "blaðamaður" Net-Moggans "missti boltann" (svo hrá þýðing á enska orðatiltækinu sé notuð líkt og í fréttinni) og féll fyrir þessu sem alvöru frétt.
_ _ _ _ _ _

En öllu gamni fylgir nú einhver alvara, einsog sagt er. Huffingtonpost.com (og til að fylgja dæmi Net-Moggans skal það tekið fram að um er að ræða blogg- og fréttavef sem er mjög hallur undir bandaríska demókrata og getur verið dulítið "gáfumannalegur" á köflum, með nefið upp í loft yfir lágmenningu og sinnuleysi almennings, pínulítið líkt og Múrinn.is var þegar hann var áhugaverður, nema bara ekki eins sósíalískur) birtir athyglisverðar tölur (sjá hér):

Fréttaflutning 5.-9. febrúar í kvöldfréttatímum þriggja stóru stöðvanna í USA mældur í mínútum eftir umfjöllunarmáli
Írak: 34 mín
Vetrarveður/snjór: 24 mín
"Brjálaða geimfarastelpan" (til að vitna í ekki-fréttina): 16 mín
New Orleans update: 15 mín (sérstök umfjöllun NBC)
Andlát Önnu Nicole Smith: 14 mín
[Fjórar aðrar fréttir]
Barack Obama lýsir yfir framboði sínu: 6 mín (engin umfjöllun á ABC)

14 mínútum illa varið. Ekkert þó í líkingu við daglegan hálftíma á Sirkus af The Anna Nicole Opsessed Show, einnig þekkt sem E! Tonight eða "Innherjinn" sem er síðan endursýndir SAMA KVÖLD.
Agust skrifaði kl. 22:31
Flokkun: Ameríka