mars 08, 2007
Dagskrá Sirkuss
Í takt við kverúlantabloggin á Mogga-blogginu kemur hér smá "sjónvarpsblogg":Áðan skipti ég yfir á Sirkus á sjónvarpinu. Hélt að ég væri eitthvað að ruglast. Eftir að hafa skoðað dagskrána fyrir daginn sá ég að svo var ekki. Anna Nicole Smith er á dagskrá í næstum tvo tíma á dag (sjá hér að neðan). Hálftíma á dag sendir Sirkus út sömu dagskrá og Stöð 2 (þ.e.a.s. fréttatímann milli sjö og hálfátta). Það er því þunnur þrettándi dagskráin fyrir utan "My Name Is Earl", sem hlýtur að vera einhver mistök að sýna á Sirkus, þar sem það er raunar veláhorfanlegur þáttur. Síðan Sirkus lauk endursýningum á Seinfeld frá upphafi til enda (sem þeir eru aftur farnir að endur-endursýna) er Earl eini áhugaverði þátturinn á dagskrá. Að öðru leyti virðist eini tilgangurinn með stöðinni að halda uppi tekjum þýðanda "Entertainment Tonight" og "Insider", því ég get ekki ímyndað mér að NOKKUR horfi á þetta - nema fyrir slysni.
Ég hélt raunar að þetta væru þættir sem væru á dagskrá mismunandi daga vikunnar, ekki BÁÐIR á dagskrá á HVERJUM degi og líka ENDURSÝNDIR. Hver er markhópurinn fyrir allt þetta rusl - á besta tíma???
Þar sem ég sá síðustu mínútuna af Insider áðan - fyrir slysni - sá ég "lokaorðin" hjá umsjónarmanninum (hér verður orðið "fréttaþulur" augljóslega ekki notað yfir starf mannsins). Þau voru eitthvað á þessa leið: "Þrátt fyrir allt dramað í heiminum í dag er gott að sjá að það eiga sér stað gleðileg tilefni án lögsókna, forræðisdeilna, fjölskylduerja ... einsog brúðkaup Liz Hurley á Indlandi."
Dramað í heiminum í dag er semsagt það að Anna Nicole Smith er komin undir græna torfu - bókstaflega.
Þegar þessi málaferli öll á Bahamas á milli móður Önnu Nicole og Howards K. Stern (sem er samkvæmt öruggum heimildum E.T. og Insider EKKI útvarpsmaðurinn frægi) eru liðin hjá getum við einbeitt okkur að því sem skiptir máli í heiminum. Hvað hefur t.d. drifið á daga Barry Manilow, Lizu Minelli og Osmond-systkinanna?? Hefur sést til Davids Hasselhoff á fylliríi nýlega? Og hefur Paris Hilton ekki týnt neinum hundum undanfarið???
Dagskrá Sirkus fimmtudaginn 8. mars (af textavarp.is)
18:00 Insider (e)
18:30 Fréttir, íþróttir og veður
19:00 Ísland í dag
19:30 Seinfeld (1:24) (e)
19:55 3. hæð til vinstri (35:39)
20:00 Entertainment Tonight
20:30 My Name Is Earl 2 - NÝTT
21:00 KF Nörd (8:15)
21:45 Dave Chappelle lætur allt flakka
22:15 Insider
22:40 The Nine (e)
23:30 Supernatural (4:22)
00:20 Seinfeld (1:24) (e)
00:45 Entertainment Tonight (e)
01:15 Tónlistarmyndbönd frá Popp TV
Agust skrifaði 08.03.07 23:07
Flokkun: Menning , Viðskipti