mars 12, 2007

Elko gefur út dagblað

Elko bæklingurinn, sem til þessa hefur verið borinn í hús á höfuðborgarsvæðinu þrisvar sinnum í viku, mun núna koma út daglega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Raftækjaverslunin Elko hefur sent frá sér. Hið nýja heiti dagblaðsins mun verða BV sem er stytting á núverandi heiti, Betra verð. "Þetta var ákveðið eftir ítarlegar markaðsrannsóknir", segir Jóhannes Spói Jósafatsson útgáfustjóri Elko. "Það kom í ljós að margir taka ákvörðun um kaup á nýjum þvottavélum á þriðjudögum og einnig að fréttir af umræðunni af Barnalandi.is hefur alveg skort í dagblaðaflóruna hér á landi", bætir Jóhannes við og segir fyrirmyndina aðallega sótta frá Danmörku þar sem skemmtana- og internet-tengt efni og heimilstækjaauglýsingar hafi notið mikilla vinsælda síðustu misseri.

Aðspurður um ritstjórnarstefnu nýja dagblaðsins segir Jóhannes, "við höfum tekið eftir að stór hluti lesenda er ekki hrifinn af þessum þungu, niðurdrepandi fréttum sem eru ráðandi hjá hinum hefðbundnu dagblöðum. Þessu ætlum við að breyta með því að flytja daglegar fréttir frá viðurkenndum internetsíðum á borð við E-online og tmz.com sem rannsóknir sýna að njóta mikilla vinsælda á meðal landans."

Aðspurður hvort eðlilegt væri að raftækjaverslun hefði dagblaðarekstur sagði Jóhannes að Elko gæfi út 12 blaðsíðna bækling að meðaltali þrisvar í viku nú þegar, að gefa út dagblað væri því ekki mikil viðbót. "Við verðum aðallega með tvo starfsmenn í þessu, að skanna helstu umræðuvefina hérna heima eftir íslensku slúðri og svo að þýða helstu fréttirnir af erlendum vettvangi. Svo verður einn í umbrotinu fyrir okkur sem fyrr." Magn auglýsinga verður um og yfir helmingur efnis blaðsins en Jóhannes segist þess fullviss að lesendur taki því fagnandi að geta fylgst með nýjustu tilboðum verslunarinnar á þvottavélum og flatskjáum. "Auk þess að fá svona heitustu umræðuna á umræðuvefum landsins hlýtur að vera fagnaðarefni", segir Jóhannes og bætir við hlæjandi "þangað til fólk hefur auðvitað keypt sér nýja Fujitsu-Siemens tölvu hjá okkur". BV verður dreift á öllu höfuðborgarsvæðinu og kemur fyrsta eintak dagblaðsins nýja út næstkomandi mánudag.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Já, ég er sumsé orðinn ansi þreyttur á útgáfustarfsemi Elko :)
Agust skrifaði 12.03.07 22:37

Flokkun: Viðskipti
Comments

Ég held að það sé ný tegund af brauðrist í dag, sem var ekki í síðasta bæklingi.

Einar Örn skrifaði 12.03.07 22:48

LOL.

Binni skrifaði 16.03.07 19:38

Sæll gamli bekkjarbróðir, ætlaru að mæta á reunionið?

Kristinn skrifaði 19.03.07 16:30

Sæll Kristinn, það hef ég hreinlega ekki ákveðið. Hef látið mig vanta á þessi grunnskóla-reunion hingað til, enda ekki í reglulegu sambandi við neinn þarna í allmörg ár.

Ágúst skrifaði 22.03.07 15:35