mars 25, 2007

Hið illa ERLENDA auðvald

Íslenskir sósíalistar, hvort sem þeir hafa kallað sig því nafni, allaballar, vinstri-grænir, hvaða hatt þeir hafa borið þann daginn, hafa fyrir löngu áttað sig á því að á Íslandi gengur það heldur illa að tala gagn peningum. Jafnvel þótt peningar séu kallaðir fjármagn, auðvald eða kapítal til áhrifaauka. Fyrirlitning á peningum er lítil og flestir vilja meira af þeim. Öfundin er minni hérna, eða allavega minna rætin.

Íslenskur sósíalismi hefur því löngum gripið til þjóðernislitanna þegar mála þarf skrattann á veginn. Auðvaldið er e.t.v. ekki sem verst en erlent auðvald hlýtur að vera það.

Nú hefur Hafnarfjarðarbær fyrir nokklöngu ákveðið að kjósa skuli um - á grundvelli skipulagsmála - stækkun álversins í Straumsvík. Umræðan hefur einkennst hingað til af hræðsluáróðri, útúrsnúningi á staðreyndum og nimbyisma (sem Egill Helgason vill kalla dalurinn-minn-hyggju). Í Silfri Egils í dag kom ein undarlegasta hliðin á umræðunni upp í máli Hjörleifs Guttormssonar: er það eðlilegt að erlent auðvald standi í kosningabaráttu á Íslandi?

Að því leytinu ekki að ef yfirvöld í Hafnarfirði væru starfi sínu vaxin þyrfti ekki að koma til þessara skrípakosninga. Hvers vegna kosningar sem þessar eru skrumskræling á lýðræðislegum kosningum er efni í annan pistil en mergurinn málsins er Alcan á Íslandi hefur verið stillt upp við vegg, eftir að hafa gengið í gegnum eðlilegt ferli til stækkunar. Nú ætlar Hafnarfjarðarbær að efna til kosninga um hvort fyrirtækið megi stækka.

Hér er ekki verið að bera fé á fólk. Hér er hvorki verið að múta stjórnmálamönnum né almenningi. Hinsvegar er hér fyrirtæki sem þarf að vinna kosningu til að fá starfsleyfi. Og berjast þar með gegn (sjálfskipuðum) andstæðingum þess að fyrirtækið fái sitt starfsleyfi. Hvert er þá vandamálið að fyrirtækið sem hér um ræðir reki kosningabaráttu?

Nei, litli maðurinn (leikinn af Pétri Óskarssyni í Sól í straumi) er víst fórnarlambið. Af hverju? Vegna þess að fyrirtækið hefur ekki aðeins fjármagn til að berjast gegn rógi og rangfærslum Péturs og félaga, heldur hefur það erlent auðvald að baki sér og djúpa vasa þess. Stórfyrirtæki frá útlöndum er að valta yfir litla manninn í Hafnarfirði.

Og hvers vegna er það svona slæmt að fyrirtækið reki sína eigin kosningabaráttu. Jú, vegna þess að samkvæmt hugmyndafræði Hjörleifs og hinna andstæðinga erlendra fjárfesta er það uppruninn og stærðin sem gerir hið erlenda auðvald svona tortryggilegt. Það hentar ekki að þetta dularfulla vald frá útlöndum eigi sér málsvara - og hvað þá málsbætur. Því síður hentar það Pétri og félögum að það skuli vera til fólk sem tilbúið er að vinna fyrir hagsmuni álversins, kauplaust, rétt eins og Pétur og hin sólskinsbörnin gera. Það hentar ekki sólar-boðskapnum að til sé fólk sem sé, í hjartans einlægni, fylgjandi stækkun álversins.

Þannig hefur t.d. Pétur Óskarsson sjálfur gengið hart fram á opinberum vettvangi til að gera framlag starfsfólks Alcan í kosningabaráttunni tortryggilega, líkt og þegar látið er að því liggja að Alcan (allt að því) neyði starfsmenn sína til að vinna fyrir málstað fyrirtækisins. Hann fór mikinn í gagnrýni á að myndir af (ánægðu) starfsfólki fyrirtækisins væru notaðar í "PR tilgangi" fyrirtæksins og þar með starfsfólkið gert að "opinberri persónu".

Það hentar þeim ekki sem vilja ala á mystrískri hræðslu við erlend öfl að til sé mannleg, kunnugleg birtingarmynd af þeim. Það er erfiðara fyrir þá að gera fólkið sem stendur að Hagi Hafnarfjarðar (mestmegnis forsvarsmenn fyrirtækja sem þjónusta álverið) því þeir eru "litli maðurinn" líka. Starfsfólk álversins hinsvegar... jú, þarna hlýtur hið illa, erlenda auðveld að kúga starfsfólkið með einhverjum hætti.

Sama á við nánast allt sem gert hefur verið af hálfu Alcan, nánast allt er tortryggt. Let'em deny it! Það skal alltaf vera eitthvað bogið við allt sem klærnar á hinu erlenda auðveldi hafa snert. Á móti kemur að Pétur og félagar veigra sér ekki við að dreifa skýjaborgahugmyndum sínum á hvert heimili í bænum þar sem m.a.s. búið er að planta Háskóla Sameinuðu þjóðanna niður við eitt hringtorgið, Pétri og öllum hinum til heilla.

Áróðurinn gegn stækkun álversins ber vott um óskammfælinn nimbyisma. Helstu rökin - þegar betur er að gáð eru þessi: að álver séu ljót og skítug, að Alcan sé skítugt og ljótt erlent stórfyrirtæki sem er þess vegna ekki treystandi og að það séu bara skítug og óspennandi störf sem skapast með "álbræðslu" (Pétur og félagar tala yfirleitt um ál-bræðslur, sá atvinnuvegur er raunar talsvert ólíkur ál-framleiðsla).

Síðasta atriðið, sem er angi af stærra atriði, hvernig alltaf er hægt að "snobba upp á við" í umræðunni á Íslandi er efni í enn annan pistil. Nýlegt "svar Samfylkingarinnar við stóriðjustefnunni" er gott dæmi um þetta. Stundum fær maður á tilfinninguna að allt eins gæti staðið á kjörseðlinum "vilt þú vinna í álveri?" Það hef ég sjálfur gert og hef því margsinnis þurft í gegnum tíðina að útskýra fyrir fólki að þetta séu ekki stórhættulegir, skítugir, sjóðandi heitir vinnustaðir (þó það kann að hafa verið það fyrir áratugum síðan).

Hjörleifur hafði áhyggjur af því að erlent auðvald með vasa fulla af fé væri hér að ógna lýðræðinu og spurði hvort Samtök iðnaðarins gætu ekki rekið þessa baráttu. Það sem Hjörleifur mætti betur athuga er að hér er ekki kosið um iðnað heldur eitt fyrirtæki. Þessi kosning sem slík er einsdæmi í Íslandssögunni. Þætti Hjörleifi einnig undarlegt ef að kjósa ætti um lagaumhverfi bankanna, hvort hneppa ætti bankana aftur í þá fjötra sem þeir áður voru í, að bankarnir legðust gegn því - og legðust út í auglýsingaherferð til að verja sinn málstað, kynntu áhrif sín á efnahagslífið í auglýsingum og dreifðu kynningarefni í hús?

Það er ekkert óeðlilegt við það að fyrirtæki kynni málstað sinn þegar að því er vegið, ekki frekar en fyrirtæki stundi kynningarstarf, PR, almennt. Það sem er óeðlilegt er að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði skuli ekki geta tekið ákvörðun um skipulagsmál í bænum innan við ári eftir síðustu kosningar, þar sem bæjarstjórnarflokkurinn var kjörin með meirihluta atkvæða. Það er áhyggjuefni.

Viðbót 26/3 - Eftir á að hyggja hefðu þessi orð e.t.v. átt að fylgja hér neðst, svona í stíl við undirritanir í Moggagreinum:
Höfundur er fyrrverandi álversstarfsmaður sem naut góðra launa og starfsumhverfis sem sumarstarfsmaður í Straumsvík á námsárum sínum og starfaði mislengi fyrir álverið árin 1998-2006; fyrir verktaka á svæðinu, sem verkamaður í þurrhreinsistöðvum og skrifstofumaður.
Agust skrifaði 25.03.07 14:40

Flokkun: Stjórnmál
Comments

Það þarf nú reyndar ekki sósíalista til að sjá ofsjónum yfir erlenda kapítalinu.

Nýju lögin um fjármál stjórnmálaflokka sem fóru í gegn á síðasta þingi taka sérstaklega á því að ólöglegt sé að taka við fjármunum í kosningasjóði frá erlendum ríkisborgurum eða fyrirtækjum.

Þetta er raunar ekki nýtt í lögum á Íslandi. Held ég mgeti staðhæft að Sjálfstæðisflokkurinn hafi alltaf verið sérstaklega áhugasamur um þetta - enda voru það jú einkum vinstrimenn sem voru að fá fjármuni frá útlendingum í flokkssjóði sína.

Varðandi hinn meinta NIMBY-isma, þá er dálítið fyndið að álversandstæðingar séu nú sakaðir um hann - eftir að hafa í áratug verið skammaðir af Austfirðingum fyrir að amast EKKI við virkjunum og álverum á suðvesturhorninu, heldur bara því sem átti að reisa langt í burtu, hjá öðrum.

Kaldhæðnislegt!

SHIFT-3 skrifaði 26.03.07 09:53

Loksins pistill sem bætti einhverju við. Þetta er áhugavert sjónarhorn.

Binni skrifaði 26.03.07 15:59

Já, það er mikið áhyggjuefni að bæjarstjórnin skuli leyfa fáfróðum almúganum að ráða skipulagsmálum í bænum sínum sjálfur. Óþolandi þetta endalausa lýðræði alltaf hreint.

Hjalti skrifaði 26.03.07 17:03

Stefán:

Ef þú drykkir fleiri kaffibolla í Hafnarfirði yrðir þú var við þennan nimbyisma, rétt einsog þú hefur séð mismunandi hliðar umræðunnar yfir kaffibolla fyrir austan.

Það eru fjölmargir andstæðingar Straumsvíkurstækkunar í Hafnarfirði á móti af þeirri einu ástæðu að þeir vilja ekki stækkuð í "bakgarðinum" sínum. Að neita því að á þessu hafi verið keyrt af Pétri og félögum í Sól í straumi er því hreinlega að stinga höfðinu í sandinn. Nimbyismi er hluti af umræðunni í Hafnarfirði og fjöldi fólks á Holtinu og Völlunum sem er á móti af þessari ástæðu.
_ _ _ _

Hjalti Snær:

Þínu kommenti væri réttilega svarað í pistli um það hvers vegna þessar kosningar snúast ekki um "lýðræði". Það er "lýðræðislegt" að geta mótmælt skipulaginu en Samfylkingin, sem situr ein í bæjarstjórnarmeirihluti með ca 2/3 að baki sér, ætti að vera fær um að taka ákvörðun um málið eða a.m.k. mynda sér skoðun fyrir kosningarnar. Skollaleikurinn er hinsvegar slíkur að kosningarnar urðu að kosningamáli! Póstmódernísk stjórnmál hafa svosem áður verið ástunduð af hafnfirskum stjórnmálamönnum.

Það er efni í lengri texta að fara lið fyrir lið hvers vegna kosningar um skipulagsmál með þessum hætti eru ekki "lýðræðislegar" eftir hefðbundnum skilgreiningum lýðræðisfræðanna. Svona mál, rétt einsog flugvallarkosningin í Reykjavík fyrir nokkrum árum, er skrumskræling á lýðræðislegum kosningum. Í kosningum sem þessum eru það aðallega þeir sem hafa beina hagsmuni af málinu sem láta sig málið varða. Þetta er jafn mikið "íbúalýðræði" og það sem er stundum praktiserað í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar hafa litlir hagsmunahópar náð sínum málum fram með því einu að krefjast opinnar atkvæðagreiðslu um mál sem flestir hafa ekki kynnt sér og hafa enga skoðun á. Að sjá hver kjörsóknin verður - í landi þar sem hún er almennt yfir 90% - verður forvitnilegt.

Ágúst skrifaði 26.03.07 23:40

Þess má reyndar geta að andstæðingar stækkunarinnar eru farnir að tala nákvæmlega eins og þú Ágúst, sbr. þetta:

http://lalli.blog.is/blog/lalli/entry/158178/#comments

Voðalega er erfitt að gera fólki til geðs...

Annars á ég von á því að kjörsókn verði nokkuð góð á laugardaginn.

Hjalti skrifaði 28.03.07 09:00