mars 25, 2007

Hið illa ERLENDA auðvald

Íslenskir sósíalistar, hvort sem þeir hafa kallað sig því nafni, allaballar, vinstri-grænir, hvaða hatt þeir hafa borið þann daginn, hafa fyrir löngu áttað sig á því að á Íslandi gengur það heldur illa að tala gagn peningum. Jafnvel þótt peningar séu kallaðir fjármagn, auðvald eða kapítal til áhrifaauka. Fyrirlitning á peningum er lítil og flestir vilja meira af þeim. Öfundin er minni hérna, eða allavega minna rætin.

Íslenskur sósíalismi hefur því löngum gripið til þjóðernislitanna þegar mála þarf skrattann á veginn. Auðvaldið er e.t.v. ekki sem verst en erlent auðvald hlýtur að vera það.

Nú hefur Hafnarfjarðarbær fyrir nokklöngu ákveðið að kjósa skuli um - á grundvelli skipulagsmála - stækkun álversins í Straumsvík. Umræðan hefur einkennst hingað til af hræðsluáróðri, útúrsnúningi á staðreyndum og nimbyisma (sem Egill Helgason vill kalla dalurinn-minn-hyggju). Í Silfri Egils í dag kom ein undarlegasta hliðin á umræðunni upp í máli Hjörleifs Guttormssonar: er það eðlilegt að erlent auðvald standi í kosningabaráttu á Íslandi?

Að því leytinu ekki að ef yfirvöld í Hafnarfirði væru starfi sínu vaxin þyrfti ekki að koma til þessara skrípakosninga. Hvers vegna kosningar sem þessar eru skrumskræling á lýðræðislegum kosningum er efni í annan pistil en mergurinn málsins er Alcan á Íslandi hefur verið stillt upp við vegg, eftir að hafa gengið í gegnum eðlilegt ferli til stækkunar. Nú ætlar Hafnarfjarðarbær að efna til kosninga um hvort fyrirtækið megi stækka.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 14:40 | Comments (5)
Flokkun: Stjórnmál

mars 22, 2007

Straight Talk Express

Það getur verið erfitt að vera frambjóðandi í Bandaríkjunum. John McCain, sem hefur gefið sig út fyrir að vera hófsamur Repúblikani - en að sama skapi verið gagnrýndur undanfarin misseri fyrir að teygja sig of langt yfir á íhaldsvænginn eftir atkvæðum - lenti í vandræðum með að svara spurningu nýlega. McCain var mótframbjóðandi Bush fyrir kosningarnar árið 2000, þar sem hann m.a. varð illa úti í ófrægingarherferð stuðningsmanna Bush á hendur honum í Suðurríkjunum en McCain-hjónin eiga ættleidda dóttur frá Asíu. Undanfarin misseri hefur McCain verið ásakaður um að hafa selt samviskuna og stutt Bush í öllum veigamiklum málum, í von um stuðning í framboði fyrir forsetakosningarnar þegar Bush lætur af völdum.
Hér er transcript af viðtalinu, þar sem McCain vefst tunga um tönn:
All this took place on the second day of the reprise of the “Straight Talk Express” bus trips that Mr. McCain made a central part of his campaign in 2000. It also comes as Mr. McCain has eagerly been trying to ease strains with social conservatives in the party who, for the most part, do not support using government money to pay for condoms.

A transcript of the encounter follows. (Weaver is John Weaver, his senior adviser, and Brian is Mr. Jones, his press secretary):
Reporter: “Should U.S. taxpayer money go to places like Africa to fund contraception to prevent AIDS?”

Mr. McCain: “Well I think it’s a combination. The guy I really respect on this is Dr. Coburn. He believes – and I was just reading the thing he wrote– that you should do what you can to encourage abstinence where there is going to be sexual activity. Where that doesn’t succeed, than he thinks that we should employ contraceptives as well. But I agree with him that the first priority is on abstinence. I look to people like Dr. Coburn. I’m not very wise on it.”

(Mr. McCain turns to take a question on Iraq, but a moment later looks back to the reporter who asked him about AIDS.)

Mr. McCain: “I haven’t thought about it. Before I give you an answer, let me think about. Let me think about it a little bit because I never got a question about it before. I don’t know if I would use taxpayers’ money for it.”

Q: “What about grants for sex education in the United States? Should they include instructions about using contraceptives? Or should it be Bush’s policy, which is just abstinence?”

Mr. McCain: (Long pause) “Ahhh. I think I support the president’s policy.”

Q: “So no contraception, no counseling on contraception. Just abstinence. Do you think contraceptives help stop the spread of HIV?”

Mr. McCain: (Long pause) “You’ve stumped me.”

Q: “I mean, I think you’d probably agree it probably does help stop it?”

Mr. McCain: (Laughs) “Are we on the Straight Talk express? I’m not informed enough on it. Let me find out. You know, I’m sure I’ve taken a position on it on the past. I have to find out what my position was. Brian, would you find out what my position is on contraception – I’m sure I’m opposed to government spending on it, I’m sure I support the president’s policies on it.”

Q: “But you would agree that condoms do stop the spread of sexually transmitted diseases. Would you say: ‘No, we’re not going to distribute them,’ knowing that?”

Mr. McCain: (Twelve-second pause) “Get me Coburn’s thing, ask Weaver to get me Coburn’s paper that he just gave me in the last couple of days. I’ve never gotten into these issues before.”
This went on for a few more moments until a reporter from the Chicago Tribune broke in and asked Mr. McCain about the weight of a pig that he saw at the Iowa State Fair last year.
Sjá: McCain Stumbles on H.I.V. Prevention
Agust skrifaði kl. 14:21 | Comments (1)
Flokkun: Ameríka

mars 12, 2007

Elko gefur út dagblað

Elko bæklingurinn, sem til þessa hefur verið borinn í hús á höfuðborgarsvæðinu þrisvar sinnum í viku, mun núna koma út daglega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Raftækjaverslunin Elko hefur sent frá sér. Hið nýja heiti dagblaðsins mun verða BV sem er stytting á núverandi heiti, Betra verð. "Þetta var ákveðið eftir ítarlegar markaðsrannsóknir", segir Jóhannes Spói Jósafatsson útgáfustjóri Elko. "Það kom í ljós að margir taka ákvörðun um kaup á nýjum þvottavélum á þriðjudögum og einnig að fréttir af umræðunni af Barnalandi.is hefur alveg skort í dagblaðaflóruna hér á landi", bætir Jóhannes við og segir fyrirmyndina aðallega sótta frá Danmörku þar sem skemmtana- og internet-tengt efni og heimilstækjaauglýsingar hafi notið mikilla vinsælda síðustu misseri.

Aðspurður um ritstjórnarstefnu nýja dagblaðsins segir Jóhannes, "við höfum tekið eftir að stór hluti lesenda er ekki hrifinn af þessum þungu, niðurdrepandi fréttum sem eru ráðandi hjá hinum hefðbundnu dagblöðum. Þessu ætlum við að breyta með því að flytja daglegar fréttir frá viðurkenndum internetsíðum á borð við E-online og tmz.com sem rannsóknir sýna að njóta mikilla vinsælda á meðal landans."

Aðspurður hvort eðlilegt væri að raftækjaverslun hefði dagblaðarekstur sagði Jóhannes að Elko gæfi út 12 blaðsíðna bækling að meðaltali þrisvar í viku nú þegar, að gefa út dagblað væri því ekki mikil viðbót. "Við verðum aðallega með tvo starfsmenn í þessu, að skanna helstu umræðuvefina hérna heima eftir íslensku slúðri og svo að þýða helstu fréttirnir af erlendum vettvangi. Svo verður einn í umbrotinu fyrir okkur sem fyrr." Magn auglýsinga verður um og yfir helmingur efnis blaðsins en Jóhannes segist þess fullviss að lesendur taki því fagnandi að geta fylgst með nýjustu tilboðum verslunarinnar á þvottavélum og flatskjáum. "Auk þess að fá svona heitustu umræðuna á umræðuvefum landsins hlýtur að vera fagnaðarefni", segir Jóhannes og bætir við hlæjandi "þangað til fólk hefur auðvitað keypt sér nýja Fujitsu-Siemens tölvu hjá okkur". BV verður dreift á öllu höfuðborgarsvæðinu og kemur fyrsta eintak dagblaðsins nýja út næstkomandi mánudag.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Já, ég er sumsé orðinn ansi þreyttur á útgáfustarfsemi Elko :)
Agust skrifaði kl. 22:37 | Comments (4)
Flokkun: Viðskipti

mars 08, 2007

Dagskrá Sirkuss

Í takt við kverúlantabloggin á Mogga-blogginu kemur hér smá "sjónvarpsblogg":

Áðan skipti ég yfir á Sirkus á sjónvarpinu. Hélt að ég væri eitthvað að ruglast. Eftir að hafa skoðað dagskrána fyrir daginn sá ég að svo var ekki. Anna Nicole Smith er á dagskrá í næstum tvo tíma á dag (sjá hér að neðan). Hálftíma á dag sendir Sirkus út sömu dagskrá og Stöð 2 (þ.e.a.s. fréttatímann milli sjö og hálfátta). Það er því þunnur þrettándi dagskráin fyrir utan "My Name Is Earl", sem hlýtur að vera einhver mistök að sýna á Sirkus, þar sem það er raunar veláhorfanlegur þáttur. Síðan Sirkus lauk endursýningum á Seinfeld frá upphafi til enda (sem þeir eru aftur farnir að endur-endursýna) er Earl eini áhugaverði þátturinn á dagskrá. Að öðru leyti virðist eini tilgangurinn með stöðinni að halda uppi tekjum þýðanda "Entertainment Tonight" og "Insider", því ég get ekki ímyndað mér að NOKKUR horfi á þetta - nema fyrir slysni.

Ég hélt raunar að þetta væru þættir sem væru á dagskrá mismunandi daga vikunnar, ekki BÁÐIR á dagskrá á HVERJUM degi og líka ENDURSÝNDIR. Hver er markhópurinn fyrir allt þetta rusl - á besta tíma???

Þar sem ég sá síðustu mínútuna af Insider áðan - fyrir slysni - sá ég "lokaorðin" hjá umsjónarmanninum (hér verður orðið "fréttaþulur" augljóslega ekki notað yfir starf mannsins). Þau voru eitthvað á þessa leið: "Þrátt fyrir allt dramað í heiminum í dag er gott að sjá að það eiga sér stað gleðileg tilefni án lögsókna, forræðisdeilna, fjölskylduerja ... einsog brúðkaup Liz Hurley á Indlandi."

Dramað í heiminum í dag er semsagt það að Anna Nicole Smith er komin undir græna torfu - bókstaflega.

Þegar þessi málaferli öll á Bahamas á milli móður Önnu Nicole og Howards K. Stern (sem er samkvæmt öruggum heimildum E.T. og Insider EKKI útvarpsmaðurinn frægi) eru liðin hjá getum við einbeitt okkur að því sem skiptir máli í heiminum. Hvað hefur t.d. drifið á daga Barry Manilow, Lizu Minelli og Osmond-systkinanna?? Hefur sést til Davids Hasselhoff á fylliríi nýlega? Og hefur Paris Hilton ekki týnt neinum hundum undanfarið???

Dagskrá Sirkus fimmtudaginn 8. mars (af textavarp.is)

18:00 Insider (e)
18:30 Fréttir, íþróttir og veður
19:00 Ísland í dag
19:30 Seinfeld (1:24) (e)
19:55 3. hæð til vinstri (35:39)
20:00 Entertainment Tonight
20:30 My Name Is Earl 2 - NÝTT
21:00 KF Nörd (8:15)
21:45 Dave Chappelle lætur allt flakka
22:15 Insider
22:40 The Nine (e)
23:30 Supernatural (4:22)
00:20 Seinfeld (1:24) (e)
00:45 Entertainment Tonight (e)
01:15 Tónlistarmyndbönd frá Popp TV
Agust skrifaði kl. 23:07
Flokkun: Menning , Viðskipti