maí 01, 2007
1. maí
Í dag má gera ráð fyrir að kröfurnar í kröfugöngum verði óvenjumikið tengdar velferðarpólitík, vegna kosninganna eftir tæpar tvær vikur. Annars hefur dagurinn í seinni tíð frekar smitast af mótmælum gegn álverum og Ísrael, enda fátt sem espir jafn mikið upp yngri vinstrimenn í þúsund velmegunarlöndum.Fyrir þremur árum síðan tók einhver stuttbuxnastrákurinn þessar myndir á 1. maí. Það væri gaman ef að myndir sem þessar af "þema" göngunnar væru til í myndasafni, nokkur ár í röð.
Á þessum bænum verður haldið upp á daginn með að þvo þvott, taka til og njóta einkaframtaksins við að versla í Melabúðinni.
Agust skrifaði 01.05.07 12:44
Flokkun: Ísland