maí 01, 2007

Hin hliðin á 1. maí

1. maí er sumstaðar minnst fyrir annað en kröfugöngur.

Í Tyrklandi er það auðvitað mannfallið á Taksim-torgi sem menn minnast í dag, í fyrsta skipti sem það er gert með þessum hætti líkt og komið hefur fram í fréttum. Raunar var það átroðningur sem varð flestur þar að bana, þótt í hugum margra hafði þessi atburður áhrif á kynslóð þeirra sem eru um fimmtugt í dag í Tyrklandi.

1. maí er líka dagurinn þegar Castro lýsti því yfir, tveimur árum eftir byltinguna, árið 1961 að byltingin hefði ekki tíma fyrir lýðræði. Þar með varð Kúba opinberlega sósíalískt alþýðulýðveldi.

Öllu gleðilegra tilefni átti sér stað fyrir 3 árum síðan þegar átta Austur-Evrópuríki, Malta og Kýpur gengu í Evrópusambandið.

Árið áður, 2003, hafði George W. Bush hinsvegar lýst því yfir að innrásin í Írak væri "mission accomplished".
Agust skrifaði 01.05.07 13:56

Flokkun: Saga
Comments

Kannski er 1. maí líka dagurinn sem Castro hvarf; hann er amk. ekki mættur á hátíðahöldin á Kúbu.

Sverrir skrifaði 01.05.07 15:11