maí 13, 2007

Úrslit kosninganna

Þetta voru athyglisverð kosningaúrslit. Mikil spenna og verst að geta ekki vakað yfir þessu öllu saman (hreinlega lognaðist út af á þriðja tímanum).

Þetta var samt sem áður í meginatriðum í takt við spá sem ég hripaði niður í gærdag. Úrslitin 32-31 voru nákvæmlega í takt við það sem ég spáði (gerði ráð fyrir 36+6, ekki 25+7). Ég vonaðist hinsvegar til að Frjálslyndir fengju bara "lágmarksfjölda", 3 sæti, ekki fjögur.

Jákvæðasta hliðin á þessum úrslitum er að "hlutföllin" á milli VG og Samfylkingarinnar enduðu rétt en ekki "öfug". Það hefði verið með ólíkindum ef VG hefði fengið fjórðung atkvæða. Engu að síður koma þeir út sem sigurvegarar með 50% aukningu á fylgi sínu. Hvernig Samfylkingin á að hafa "unnið sigur" skil ég ekki. Að býða ekki afhroð er ekki ávísun á sigur. Sjálfstæðisflokkurinn fær glæsilega kosningu. Óþarft er að hafa mörg orð um Framsóknarflokkinn. Eini ljósi punkturinn hjá Framsókn er að "einungis" tvær ráðherrar fengu ekki kosningu á þing en ekki þrír líkt og leit út á tímabili, sem hefði þýtt að helmingur ráðherra flokksins hefðu ekki náð kjöri. Af fjórum helstu foringjum flokksins nær einungis varaformaðurinn, Guðni Ágústsson, kjöri.

Væri landið eitt kjördæmi hefði Íslandshreyfingin fengið 2 þingsæti. Það vekur upp spurningar hvaða hagsmunum 5% reglan þjónar. Sex þúsund atkvæði falla niður dauð út á þessa reglu. Ekkert er því til fyrirstöðu að níu þúsund atkvæði, hefði I-listinn fengið þau, hefðu endað eins.

Ein jákvæðasta fréttin í kosningunum var að Magnús Þór Hafsteinsson er dottinn út af þingi (eftir að hafa verið inn og út alla nóttina). Það er ánægjuefni fyrir land og þjóð.

En þótt Magnús Þór sé farinn á síld er ekki þar með sagt að ekki verði fluttar fleiri þingræður um hvernig innflytjendur séu sjúkdómaberar og nauðgarar. Líklegast ein versta fréttin í þessum kosningum er að Jón Magnússon, pöpulskur xenofób í sauðagæru, er orðinn þingmaður. Og til að strá salti í sárin er þetta þingmaður í mínu kjördæmi! 2.385 manns kusu Jón Magnússon. Kusu þar með tortryggni í garð náungans og egóflipp eilífðarframbjóðandans með messíasarduldina. Maður kemur því í manns stað, því miður, hjá Frjálslynda flokknum.
Agust skrifaði 13.05.07 14:33

Flokkun: Stjórnmál , Ísland