maí 24, 2007

Orð dagsins

„Yndislegur dagur til að taka út úr sér beyslið og taka af sér hnakkinn... og vera frjáls.“
- Guðni Ágústsson þegar sprett var af honum á Bessastöðum í dag
Agust skrifaði kl. 19:10
Flokkun: Ísland

maí 18, 2007

Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og topplaus Britney

Fyrst Íhaldið og Samfó eru að mynda nýja ríkisstjórn er ágætt að skoða hverjir eru oddvitar flokkana í hverju kjördæmi fyrir sig - og hversu marga þingmenn eru "á bakvið þá".

Sjálfstæðisflokkur:
Rvk N: Guðlaugur Þór (4)
Rvk S: Geir (5)
Kragi: Þorgerður Katrín (5+1)
NV: Sturla (3)
NA: Kristján Júlíusson (3)
Suður: Árni Matt (4)

Samfylkingin:
Rvk N: Össur (4+1)
Rvk S: ISG (3)
Kragi: Gunnar Svavarsson (3+1)
NV: Guðbjartur Hannesson (2) NA: Kristján L Möller (2)
Suður: Björgvin G (2)

Það sem er athyglisvert er að 2 af 6 oddvitum Samfylkingarinnar eru nýir. Sama gildir um oddvita Sjálfstæðisflokksins, Kristján og Guðlaugur Þór eru nýir sem slíkir.

Af augljósum ráðherraefnum flokkana má sjálfsagt augljósast nefna Jóhönnu Sigurðardóttur í 2. sæti Samfó í Rvk-N og Ágúst Ólaf varaform. í 2. sæti Rvk-S. Hjá Sjálfstæðisflokknum er málið flóknara, því miðað við núverandi þingmenn eru þingmenn sem eru ekki oddvitar tveir: Björn í 3. sæti í Rvk S og EKG í 2. sæti NV. Auk þess er Halldór Blöndal hættur á þingi og þar með verður erfitt að ganga fram hjá oddvitanum í NA. Augljós "annarssætiskandidat" er Bjarni Ben, úr stærsta kjördæminum með stærsta hlutfall atkvæða og flesta þingmenn.

Spennan er mikil hvort Sjálfstæðisflokkurinn stokkar upp ráðherraliðið. Spennan er meiri hvort ráðherrastólunum verði skipt milli flokkana með sama hætti og í D+B stjórnum síðustu ára. Það sem er samt mest spennandi er að sjá hvort einhver uppstokkun á ráðuneytum verði á kjörtímabilinu.

Allt að gerast í stjórnmálunum þessa dagana. Og hver er þá mest lesna fréttin á mbl.is? Topplaus Britney þakkar fyrirbænir Hvað annað!
Agust skrifaði kl. 19:09
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

maí 13, 2007

Úrslit kosninganna

Þetta voru athyglisverð kosningaúrslit. Mikil spenna og verst að geta ekki vakað yfir þessu öllu saman (hreinlega lognaðist út af á þriðja tímanum).

Þetta var samt sem áður í meginatriðum í takt við spá sem ég hripaði niður í gærdag. Úrslitin 32-31 voru nákvæmlega í takt við það sem ég spáði (gerði ráð fyrir 36+6, ekki 25+7). Ég vonaðist hinsvegar til að Frjálslyndir fengju bara "lágmarksfjölda", 3 sæti, ekki fjögur.

Jákvæðasta hliðin á þessum úrslitum er að "hlutföllin" á milli VG og Samfylkingarinnar enduðu rétt en ekki "öfug". Það hefði verið með ólíkindum ef VG hefði fengið fjórðung atkvæða. Engu að síður koma þeir út sem sigurvegarar með 50% aukningu á fylgi sínu. Hvernig Samfylkingin á að hafa "unnið sigur" skil ég ekki. Að býða ekki afhroð er ekki ávísun á sigur. Sjálfstæðisflokkurinn fær glæsilega kosningu. Óþarft er að hafa mörg orð um Framsóknarflokkinn. Eini ljósi punkturinn hjá Framsókn er að "einungis" tvær ráðherrar fengu ekki kosningu á þing en ekki þrír líkt og leit út á tímabili, sem hefði þýtt að helmingur ráðherra flokksins hefðu ekki náð kjöri. Af fjórum helstu foringjum flokksins nær einungis varaformaðurinn, Guðni Ágústsson, kjöri.

Væri landið eitt kjördæmi hefði Íslandshreyfingin fengið 2 þingsæti. Það vekur upp spurningar hvaða hagsmunum 5% reglan þjónar. Sex þúsund atkvæði falla niður dauð út á þessa reglu. Ekkert er því til fyrirstöðu að níu þúsund atkvæði, hefði I-listinn fengið þau, hefðu endað eins.

Ein jákvæðasta fréttin í kosningunum var að Magnús Þór Hafsteinsson er dottinn út af þingi (eftir að hafa verið inn og út alla nóttina). Það er ánægjuefni fyrir land og þjóð.

En þótt Magnús Þór sé farinn á síld er ekki þar með sagt að ekki verði fluttar fleiri þingræður um hvernig innflytjendur séu sjúkdómaberar og nauðgarar. Líklegast ein versta fréttin í þessum kosningum er að Jón Magnússon, pöpulskur xenofób í sauðagæru, er orðinn þingmaður. Og til að strá salti í sárin er þetta þingmaður í mínu kjördæmi! 2.385 manns kusu Jón Magnússon. Kusu þar með tortryggni í garð náungans og egóflipp eilífðarframbjóðandans með messíasarduldina. Maður kemur því í manns stað, því miður, hjá Frjálslynda flokknum.
Agust skrifaði kl. 14:33
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

maí 08, 2007

Könnun: Forsetakosningar í USA

Must-read fyrir áhugafólk um bandarísk stjórnmál: NEWSWEEK Poll May 5, 2007: Conducted by Princeton Survey Research Associates International
Agust skrifaði kl. 23:26 | Comments (1)
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál

maí 01, 2007

Hin hliðin á 1. maí

1. maí er sumstaðar minnst fyrir annað en kröfugöngur.

Í Tyrklandi er það auðvitað mannfallið á Taksim-torgi sem menn minnast í dag, í fyrsta skipti sem það er gert með þessum hætti líkt og komið hefur fram í fréttum. Raunar var það átroðningur sem varð flestur þar að bana, þótt í hugum margra hafði þessi atburður áhrif á kynslóð þeirra sem eru um fimmtugt í dag í Tyrklandi.

1. maí er líka dagurinn þegar Castro lýsti því yfir, tveimur árum eftir byltinguna, árið 1961 að byltingin hefði ekki tíma fyrir lýðræði. Þar með varð Kúba opinberlega sósíalískt alþýðulýðveldi.

Öllu gleðilegra tilefni átti sér stað fyrir 3 árum síðan þegar átta Austur-Evrópuríki, Malta og Kýpur gengu í Evrópusambandið.

Árið áður, 2003, hafði George W. Bush hinsvegar lýst því yfir að innrásin í Írak væri "mission accomplished".
Agust skrifaði kl. 13:56 | Comments (1)
Flokkun: Saga

1. maí

Í dag má gera ráð fyrir að kröfurnar í kröfugöngum verði óvenjumikið tengdar velferðarpólitík, vegna kosninganna eftir tæpar tvær vikur. Annars hefur dagurinn í seinni tíð frekar smitast af mótmælum gegn álverum og Ísrael, enda fátt sem espir jafn mikið upp yngri vinstrimenn í þúsund velmegunarlöndum.

Fyrir þremur árum síðan tók einhver stuttbuxnastrákurinn þessar myndir á 1. maí. Það væri gaman ef að myndir sem þessar af "þema" göngunnar væru til í myndasafni, nokkur ár í röð.

Á þessum bænum verður haldið upp á daginn með að þvo þvott, taka til og njóta einkaframtaksins við að versla í Melabúðinni.
Agust skrifaði kl. 12:44
Flokkun: Ísland

Rauði karlinn

Um helgina sá ég auglýsingu um "stoppmerki" frá Framsóknarflokknum í fyrsta skipti.

Ég trúði ekki mínum eigin augum.

Ég man ekki, a.m.k. ekki í seinni tíð, eftir að hafa séð eins beinskeytta auglýsingu gegn ákveðinni persónu. Steingrímur J. fær sannarlega á baukinn.

Hér er hægt að sjá auglýsinguna, sem annars er aðgengilega á netinu á kind.is. Fyrirvari skal hafður á að birtingin er til upplýsingar en ekki til stuðnings Framsóknarflokknum :)
Agust skrifaði kl. 12:00
Flokkun: Stjórnmál , Ísland