júní 22, 2007

Aldagamalt

Það hefur ekki gerst oft undanfarið en í kvöld sá ég Ísland í dag á Stöð 2. Greinilegt að nýir umsjónarmenn eru annaðhvort teknir við eða í afleysingum.

Þeir endurtóku nokkrum sinnum eitthvað um "aldagamlar deilur Kínverja og Tævana".

Aldir hljóta í vera a.m.k. 200 ár. Liggur í hlutarins eðli að aldir (í flt) hljóta að vera a.m.k. tvær, ergo 200 ár hið minnsta. Sem er merkilegt í ljósi þess að Kuomintang flúði til Taiwan 1949 og Alþýðulýðveldið var stofnað formlega sem hið eina sanna Kína 1. október það ár. Aldagömlu deilurnar eru því tæplega sex áratuga gamlar.

Þetta var kverúlantablogg mánaðarins.
Agust skrifaði 22.06.07 00:20

Flokkun: Fréttir