júní 22, 2007
Ég las það í Samúel...
Múrinn.is var lagður niður (felldur? Brotinn niður?) um síðustu mánaðamót. Ég frétti af því með að rekast á "spurningu dagsins" eða einhvern álíka kálf í Fréttablaðinu nokkrum dögum síðar, þar sem Stefán Pálsson var spurður. Það þótti mér táknrænt. Að lesa um endalok vefritsins í dagblaði.Bæði Ármann og Stefán skrifuðu ágætar "minningargreinar" um Múrinn. Mér fannst þó vanta í þeirra "söguskýringu" frekari orð um stöðu dagblaðamarkaðarins á Ísland á hátindi vefritanna. Ekki aðeins var kynslóð ungliðanna sem stofnaði vefritin ansi öflug, heldur var uppstokkun í flokkakerfinu nýyfirstaðin. Það var líka nýjabrumsfílingur yfir vefritunum og þau voru "hvassari" en önnur opinber umræða. Á sama tíma var lítið sem ekkert fútt í pólitískri umræðu utan Silfurs Egils. Á þeim tíma voru líka fastagestir Egils menn á borð við Hrafn Jökulsson, Gunnar Smári (pre-Fbl), Andrés Magnússon og fleiri kjaftvaskar. Á þeim tíma var vart þáttur sýndur án þess a.m.k. ein umræðan snerist um umræðuna á vefritunum að einhverju leyti. Síðustu ár hefur hlutfall atvinnupólitískusanna hjá Agli aukist og aukist, a.m.k. að manni finnst.
Sjálfur hætti ég að skoða pólitísku vefritin fyrir 4-5 árum síðan. Hef vart opnað eitt einasta síðustu 3 árin.
Margt í umhverfinu skapaði mómentið fyrir vefritin á sínum tíma. Ósvöruð eftirspurn á pólitískri umræðu í dagblöðunum var eitt af þessum atriðum. Að þessu leyti hefur staðan augljóslega batnað. Sjálfum finnst mér, hvort sem það er óskild fylgni eða ekki, að vöxtur Blaðsins hafi gert umræðuna skemmtilegri í dagblöðunum.
Blaðið var vettvangur fyrir nokkra "high-profile" pistla síðastliðinn vetur. Þar fá m.a.s. vondir að vera, sbr. pistil Jóns Magnússonar um innflytjendur. Þarna eru vissulega engir "ungliðar" á ferð, Illugi Gunnarsson skapaði sér t.d. ákveðinn sess sem pistlahöfundur í Fbl, en það er athyglisvert að umræðan í blöðunum hefur verið í sókn (eftir mikla lægð á tímabili) á meðan slagkraftur vefritanna hefur svo gott sem horfið. Blaðið hefur gert góða hluti með því að bjóða upp á fína uppsetningu og stutta pistla. En hvað varð um ungliðana? Fæstir enduðu a.m.k. á þingi!
Aldagamalt
Það hefur ekki gerst oft undanfarið en í kvöld sá ég Ísland í dag á Stöð 2. Greinilegt að nýir umsjónarmenn eru annaðhvort teknir við eða í afleysingum.Þeir endurtóku nokkrum sinnum eitthvað um "aldagamlar deilur Kínverja og Tævana".
Aldir hljóta í vera a.m.k. 200 ár. Liggur í hlutarins eðli að aldir (í flt) hljóta að vera a.m.k. tvær, ergo 200 ár hið minnsta. Sem er merkilegt í ljósi þess að Kuomintang flúði til Taiwan 1949 og Alþýðulýðveldið var stofnað formlega sem hið eina sanna Kína 1. október það ár. Aldagömlu deilurnar eru því tæplega sex áratuga gamlar.
Þetta var kverúlantablogg mánaðarins.
júní 07, 2007
Hlýdd'og vertu góður ...kaþólikki
Nú hefur kaþólskur erkibiskup í Wales tjáð öllum þeim kaþólsku þingmönnum sem kjósa með rétti kvenna yfir eigin örlögum og líkama skulu ekki ganga til altaris:Catholic MPs who vote in favour of abortion should not put themselves forward for communion, the Catholic Archbishop of Cardiff has said.- Welsh prelate joins abortion row