október 15, 2007

Oy!

Á þessa síðu hefur ekkert verið skrifað í nær fjóra mánuði.

Júní var brjálaður mánuður og eiginlega svo margt sem gerðist þann mánuð - og svo miklu sem var komið í verk - að ég eiginlega trúi því ekki að það hafi allt meira og minna gengið upp eftir óskum.

Júlí var frekar rólegur. Ekki síst í samanburði við júní. Ég tók mér m.a.s. viku í sumarfrí! Í ágúst tók ég mér líka nokkra daga í frí og naut lífsins.

Síðan í september er hinsvegar búið að vera mikið að gera.

Einhver staðar þarna á milli þróaði ég með fullmikla fíkn í súrar gúrkur (dill halves, af stóru gerðinni) og - e.t.v. ógnvænlegra - stóra krukkan af súrkáli (sem raunar er New Kraut, sem er betra að geyma) í ísskápnum er líka að verða búin.
Agust skrifaði 15.10.07 22:32

Flokkun: Daglegt líf