október 15, 2007
Oy!
Á þessa síðu hefur ekkert verið skrifað í nær fjóra mánuði.Júní var brjálaður mánuður og eiginlega svo margt sem gerðist þann mánuð - og svo miklu sem var komið í verk - að ég eiginlega trúi því ekki að það hafi allt meira og minna gengið upp eftir óskum.
Júlí var frekar rólegur. Ekki síst í samanburði við júní. Ég tók mér m.a.s. viku í sumarfrí! Í ágúst tók ég mér líka nokkra daga í frí og naut lífsins.
Síðan í september er hinsvegar búið að vera mikið að gera.
Einhver staðar þarna á milli þróaði ég með fullmikla fíkn í súrar gúrkur (dill halves, af stóru gerðinni) og - e.t.v. ógnvænlegra - stóra krukkan af súrkáli (sem raunar er New Kraut, sem er betra að geyma) í ísskápnum er líka að verða búin.