júní 04, 2000

Panódíll

Ég fór á Panódíl fyrir tvo í kvöld, assgoti skemmtilegt, ég alveg grenjaði úr hlátri.
Að vísu er leikritið svolítið frábrugðið myndinni, en samt gott, ég að vísu horfði á myndina síðustu nótt, örugglega í tíunda skiptið og alltaf getur maður hlegið, t.d. þegar hann fer á fyrsta deidið og nær klúðra öllu sem hægt er að klúðra, eða þegar hann ætlar að reyna við skutluna á dansgólfinu, "one two, one two, one two" "three four, three four" allavega, ég held að jafnvel anti-Allen fólk geti skemmt sér yfir þessari mynd. Hins vegar fannst mér Bógart ekki nægilega góður í leikritinu, hann einhver veginn var ekki alveg að skila sínu, ég var líka ekki alveg að fíla Ingibjörgu í sínum hlutverkum. Mér fannst brilljant að hann skildi vera húkt á varasalva í leikritinu, annars fannst mér besta "staðfæringin" hjá Jóni Gnarr þegar Linda spurði Alla hvað hann hefði hugsað um á meðan þau elskuðust. "Mömmu", svaraði hann, "nú, hugsarðu alltaf um mömmu þína?", spyr hún þá, "já, því annars fæ ég það of fljótt".
Allavegana, ef þið eruð ekki búin að sjá leikritið þá er, held ég, ein sýning eftir um næstu eða þarnæstu helgi, endilega að sjá það, en myndin er algjört möst-sí fyrir alla, líka Woody Allen-hatara.
Posted by Agust at 02:13 FH