Strom Thurmond
Fyrir nokkrum vikum minntist ég á að ég kannaðist við nafn Stroms Thurmond en vissi engin deili á honum utan þess að hann hafi farið fyrir hinum s.k. dixiekrötum í forsetakosningunum '48. Nú var talað um hann í Conan O'Brian í kvöld og eftir að hafa heyrt áður þetta með að hann bað um að fá að faðma Hillary eftir að hún var svarin inn í embætti þá fór ég í smá könnunarleiðangur um netið og komst að þessu:
Strom Thurmond er fæddur í Suður-Karólínu árið 1902. Hann hóf pólitískan feril sinn sem fræðslustjóri í heimasýslu sinni Edgefield-sýslu. 1933-38 sat hann á öldungaþingi S-Karólínu, var þá skipaður dómari og gengdi því til '42 þegar hann fór til Evrópu sem major í Bandaríkjaher. Fyrir það hlaut hann eftirtaldar orður: Legion of Merit with Oak Leaf Cluster, Purple Heart, Bronze Star for Valor, Belgian Order of the Crown og French Croix de Guerre.
1947-51 var hann ríkisstjóri í S-Karólínu. 1948 bauð hann sig fram sem frambjóðandi States Rights Demókrata eftir að Demókratar hafði samþykkt á flokksþinginu stefnu gegn aðskilnaði kynþátta. Fékk framboð hans þriðja mesta fylgi sjálfstæðs frambjóðanda og vann fjögur fylki (39 "electoral votes"). Þess má geta að Truman vann kosninguna fyrir Demókrata.
Eftir að hafa tapað í prókjöri 1950 sem frambjóðandi Demókrata en varð öldungadeildarþingmaður er sitjandi þingmaður féll frá 1954 og var Thurmond kjörinn eftirmaður hans. Hefur hann setið óslitið í öldungadeildinni síðan, ef frá er talið stutt tímabil árið 1956.
Thurmond hefur verið í hugum margra holdgervingur aðskilnaðarstefnu hvítra suðurríkja-manna, enda ekki að ástæðulausu. Ekki aðeins klauf hann dixiekratana út úr flokknum í kringum forsetakosningarnar '48 (þótt hann sneri aftur eftir það) heldur setti hann eitt af sínum þingmetum árið 1957 þegar hann talaði, í málþófi nokkra öldungadeildarþingmanna frá Suðurríkjunum, gegn frumvarpi um mannréttindi og jafnrétti í rúma 24 klukkutíma. Lengsta samfellda málþóf öldungadeildarinnar átti sér stað '64 og var hann líka með í því.
Eftir að kosningalög voru samþykkt 1965 sem tryggðu réttindi svartra kjósenda og svartir Karólínubúar fóru að fjölmenna á kjörstaði, var Thurmond fyrsti öldungadeildarþingmaður Suðurríkjanna til að ráða svart starfsfólk á skrifstofu sína og kjósa svarta í mikilvæg embætti.
Thurmond hefur verið þekktur fyrir að vera mikill kvennamaður og 1968 kvæntist þessi íhaldssami Suðurríkjamaður, þá nýorðinn 66 ára gamall, rúmlega tvítugri ungfrú Suður-Karólínu og eiga þau fjögur börn, þ.á.m. Strom Jr. sem pabbi gamli vill skipa yfirsaksóknara fylkisins.
Thurmond hefur gengt ýmsum nefndarstörfum í öldungadeildinni, m.a. var hann formaður nokkurra nefnda í tíð Ronalds Reagan. Hann er núna "U.S. Senate President Pro Tempore" ásamt öðru. Hann þykir furðuern en hefur gefið þá yfirlýsingu að hann muni setjast í helgan stein eftir þetta kjörtímabil, þá á 100. aldursári. Hann hefur verið elsti maðurinn til að sitja í öldungadeildinni frá upphafi síðan 1996, þá 93 ára, síðan eru liðin nær fimm ár og karlinn nú 98 ára síðan í desember. Hann varð líka lengst sitjandi öldungadeildarþingmaðurinn frá upphafi í maí '97 þegar hann hafði setið í 41 ár og 10 mánuði, nú hefur hann setið í 45 ár og hálft ári betur.
Posted by Agust at
12:03 FH