Heimspeki Peters Singer
Að sjálfsögðu leið ekki á löngu að ég var búinn að lesa greinina
Unspeakable Conversations. Þrátt fyrir að hafa lofað sjálfum mér að forgangsraða rétt, svona er þetta.
Þessi grein er mjög áhugaverð og vekur upp mjög athyglisverðar spurningar. Allt frá universal spurningunni hvort fólk sem maður allt að því fyrirlítur fyrir skoðanir sínar eigi að vera "þaggað niður" og sniðgengið í umræðu eða skorað á hólm í opinni umræðu og rökræðu yfir í spurninguna sem Peter Singer hefur sett fram og annaðhvort setur fólk í vanda að svara eða vekur með því hroll.
Fyrir mig sem er of afstæðuhygginn til að geta leyft mér þann munað að neita fólki sem hefur "rangar" skoðanir að tjá sig er það athyglisvert hvernig afstaða Harrietar Johnson, sem greinina skrifar, breytist til að rökræða við prófessor Singer.
Harriet McBryde Johnson er mannréttindalögfræðingur sem sérhæfir sig í málefnum fatlaðra. Hún hefur verið bundin við hjólastól mest allt sitt líf og er haldin ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdómi. Hún er tengd samtökunum
Not Dead Yet sem eru samtök fatlaðra (hreyfihamlaðra) sem berjast gegn lögleiðingu líknardrápa auk þess sem samtökin stóða m.a. að mótmælum í Princeton háskóla þegar Peter Singer var skipaður þar prófessor.
Peter Singer er prófessor í Princeton sem heldur því fram að samfélagið eigi að leyfa foreldrum að
eyða nýfæddum börnum sínum sem eiga enga möguleika á
mannsæmandi lífi (en er líka frægur fyrir bók sína Animal Liberation).
Fyrir mig sem aðdáanda skrifa Johns Stuarts Mill og hófsams nytjastefnumanns setja kenningar prófessors Singer mig í bobba. Ekki það að ég get strax sett frá 120 rök fyrir því að þessi kenning hans sé beinlínis röng, þá get ég líka séð nokkra mjög athyglisverða punkta í henni. Þrátt fyrir að
kenningin sé röng að mínu viti, þá varpar hún upp fjölmörgum spurningum, einsog velígrundaðar kenningar gera gjarnan þó þær gangi ekki upp. Mörgum spurningum sem ég lendi í vandræðum með að svara að fullu, öðruvísi en að vera í mótsögn við sjálfan mig í öðrum fullyrðingum og skoðunum.
Ef fólk hefur áhuga á heimspeki og ekki síst áhuga á umræðunni um frjálsar
fóstureyðingar, þá er
þessi grein mjög áhugaverð.
Posted by Agust at
07:58 EH
|
Comments (0)
Fóstureyðingar í Bandaríkjunum
Algjör skyldulesning fyrir áhugasama í 3ja vikna gömlum Economist:
The war that never ends (aðeins opið áskrifendur á netinu)
Posted by Agust at
08:25 EH
|
Comments (0)
30 ára frelsi
US abortion debate intensifies
while the president has said that in its landmark 1973 Roe v. Wade case, which legalised abortion, the Supreme Court "overstepped the Constitution," he has to tread cautiously [...] because polls show that a majority of Americans still broadly support the right to abortion by a two to one majority
Fóstureyðingum hefur fækkað stöðugt frá 1981, þegar þær náðu hámarki sínu. Ástæðurnar eru (taldar) bæði betra aðgengi að getnaðarvörnum/færri óvæntar þunganir og að aðgengi, sérstaklega í Vestur- og Suðurríkjunum, hefur verið skert, bæði af löggjafanum og t.d. þeirri staðreynd að spítalar sem hafa sameinast kaþólskum spítölum hafa hætt að framkvæma fóstureyðingar. Því eru fóstureyðingar margfalt algengari í NA-ríkjunum en vestast og syðst.
Nú ætla demókratar að keyra á þessu, þar sem mikið af sveifluatkvæðum, sérstaklega meðal kvenna í Norðurríkjunum, blöskrar hörð andstaða Bush&Co. gegn fóstureyðingum. Pro-choice samtökum hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarið og er það helst vegna þess hve andstæðingar þeirra hafa verið mikið áberandi (enda oft mun skipulagðari með heilu kirkjuherdeildirnar á bak við sig).
Það er nokkuð ljóst að deilan vestan hafs um frelsi kvenna mun harðna á næstunni ef eitthvað er.
Posted by Agust at
08:47 FH
|
Comments (0)