febrúar 16, 2003
Heimspeki Peters Singer
Að sjálfsögðu leið ekki á löngu að ég var búinn að lesa greinina Unspeakable Conversations. Þrátt fyrir að hafa lofað sjálfum mér að forgangsraða rétt, svona er þetta.Þessi grein er mjög áhugaverð og vekur upp mjög athyglisverðar spurningar. Allt frá universal spurningunni hvort fólk sem maður allt að því fyrirlítur fyrir skoðanir sínar eigi að vera "þaggað niður" og sniðgengið í umræðu eða skorað á hólm í opinni umræðu og rökræðu yfir í spurninguna sem Peter Singer hefur sett fram og annaðhvort setur fólk í vanda að svara eða vekur með því hroll.
Fyrir mig sem er of afstæðuhygginn til að geta leyft mér þann munað að neita fólki sem hefur "rangar" skoðanir að tjá sig er það athyglisvert hvernig afstaða Harrietar Johnson, sem greinina skrifar, breytist til að rökræða við prófessor Singer.
Harriet McBryde Johnson er mannréttindalögfræðingur sem sérhæfir sig í málefnum fatlaðra. Hún hefur verið bundin við hjólastól mest allt sitt líf og er haldin ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdómi. Hún er tengd samtökunum Not Dead Yet sem eru samtök fatlaðra (hreyfihamlaðra) sem berjast gegn lögleiðingu líknardrápa auk þess sem samtökin stóða m.a. að mótmælum í Princeton háskóla þegar Peter Singer var skipaður þar prófessor.
Peter Singer er prófessor í Princeton sem heldur því fram að samfélagið eigi að leyfa foreldrum að eyða nýfæddum börnum sínum sem eiga enga möguleika á mannsæmandi lífi (en er líka frægur fyrir bók sína Animal Liberation).
Fyrir mig sem aðdáanda skrifa Johns Stuarts Mill og hófsams nytjastefnumanns setja kenningar prófessors Singer mig í bobba. Ekki það að ég get strax sett frá 120 rök fyrir því að þessi kenning hans sé beinlínis röng, þá get ég líka séð nokkra mjög athyglisverða punkta í henni. Þrátt fyrir að kenningin sé röng að mínu viti, þá varpar hún upp fjölmörgum spurningum, einsog velígrundaðar kenningar gera gjarnan þó þær gangi ekki upp. Mörgum spurningum sem ég lendi í vandræðum með að svara að fullu, öðruvísi en að vera í mótsögn við sjálfan mig í öðrum fullyrðingum og skoðunum.
Ef fólk hefur áhuga á heimspeki og ekki síst áhuga á umræðunni um frjálsar fóstureyðingar, þá er þessi grein mjög áhugaverð.
Agust skrifaði 16.02.03 19:58
Flokkun: Fóstureyðingar , Heimspeki , Meðmæli , Stjórnmál
Comments
Skrifa comment