maí 25, 2003

Draumurinn

Stebbi Páls skrifar um lokun draumsins:
Og hverjum hefur Júlli í Dramnum verið að selja sprútt? Unglingum undir lögaldri? Fullorðnu fólki eftir lokun í ríkinu? - Nei, þessir hópar kaupa sér áfengi með öðrum leiðum. Krakkarnir múta fullorðnum til að kaupa fyrir sig, en aðrir fá áfengi selt út af veitingastöðum.

Draumurinn hefur selt rónunum og ofdrykkjufólkinu sem fær ekki afgreiðslu annars staðar. Það leitar meðal annars í Drauminn af því að þar fær það að vera inni, ef það er til friðs. Það fær að hlýja sér þegar veðrið er leiðinlegt og það er komið fram við það af meiri virðingu en gerist og gengur annars staðar.

Hvað halda menn að vinnist með því að bösta Drauminn - að stöðva þessa sölumennsku sem þar hefur átt sér stað í allra vitorði í mörg ár? Halda menn kannski að rónarnir hætti að drekka? Eða að rauðsprittið fari eitthvað betur með þá?

Fyrir nokkrum misserum gengu löggan og borgin í það að loka Keisaranum. Mikil var undrun þeirra þegar í ljós kom að þótt Keisarinn hyrfi hættu viðskiptavinirnir ekki að vera til. Sumir þeirra römbuðu meira að segja niður í miðbæ þar sem þeir öngruðu menningarpakkið jafnvel ennþá meira með því að drekka á Austurvelli eða ég veit ekki hvað.
Ef rétt er hjá Stebba, með kúnnahópinn, er ég alveg sammála honum um, að þarna er rétttrúnaðarhugsunarhátturinn við völd. Ekki horft á heildarmyndina, heldur fókuserað á aðeins hluta af heildarmyndinni.

Lokun Keisarans var að margra mati mistök. Stundum þarf að líta framhjá smávægilegum misfellum, þegar meira skaði er unninn með að fara eftir lagabókstafnum.
Agust skrifaði 25.05.03 16:33

Flokkun: Lög&réttur , Meðmæli , Ísland
Comments
Skrifa comment









Muna persónulegar upplýsingar?