maí 25, 2003
Sjálfsvígstíðni
Staðreyndir verða oftast
áþreyfanlegri þegar þær eru settar í rétt samhengi.
Siggi pönk kemur með athyglisverða staðreynd í dagbókinni sinni í dag:
Afhverju hvíslumst við á um staðreyndir þess að á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi kemur að meðaltali ein sjálfsmorðstilraun á átta klukkustunda fresti. Og það eru bara þau sem plönin ganga ekki upp hjá.
Þarna er bara verið að tala um Lsp. í Fossvogi og þar með ekki öll tilfellin sem skráð eru úti á landi. Rosalega tala, sem samt kemur manni ekkert rosalega á óvart, því miður.
Posted by Agust at
05:12 EH
|
Comments (0)
Draumurinn
Stebbi Páls skrifar
um lokun draumsins:
Og hverjum hefur Júlli í Dramnum verið að selja sprútt? Unglingum undir lögaldri? Fullorðnu fólki eftir lokun í ríkinu? - Nei, þessir hópar kaupa sér áfengi með öðrum leiðum. Krakkarnir múta fullorðnum til að kaupa fyrir sig, en aðrir fá áfengi selt út af veitingastöðum.
Draumurinn hefur selt rónunum og ofdrykkjufólkinu sem fær ekki afgreiðslu annars staðar. Það leitar meðal annars í Drauminn af því að þar fær það að vera inni, ef það er til friðs. Það fær að hlýja sér þegar veðrið er leiðinlegt og það er komið fram við það af meiri virðingu en gerist og gengur annars staðar.
Hvað halda menn að vinnist með því að bösta Drauminn - að stöðva þessa sölumennsku sem þar hefur átt sér stað í allra vitorði í mörg ár? Halda menn kannski að rónarnir hætti að drekka? Eða að rauðsprittið fari eitthvað betur með þá?
Fyrir nokkrum misserum gengu löggan og borgin í það að loka Keisaranum. Mikil var undrun þeirra þegar í ljós kom að þótt Keisarinn hyrfi hættu viðskiptavinirnir ekki að vera til. Sumir þeirra römbuðu meira að segja niður í miðbæ þar sem þeir öngruðu menningarpakkið jafnvel ennþá meira með því að drekka á Austurvelli eða ég veit ekki hvað.
Ef rétt er hjá Stebba, með kúnnahópinn, er ég alveg sammála honum um, að þarna er rétttrúnaðarhugsunarhátturinn við völd. Ekki horft á heildarmyndina, heldur fókuserað á aðeins hluta af heildarmyndinni.
Lokun Keisarans var að margra mati mistök. Stundum þarf að líta framhjá smávægilegum misfellum, þegar meira skaði er unninn með að fara eftir lagabókstafnum.
Posted by Agust at
04:33 EH
|
Comments (0)
maí 16, 2003
Úthverfin
Skemmtilegur pistill hjá
Tomma.
Sjálfur myndi ég aldrei búa í úthverfunum sjálfviljugur, en það er aukaatriði. Það er aftur á móti fyndið hvernig fólk sem býr í Reykjavík lítur á úthverfin sem eitt samfellt terratory. Ég veit t.d. ekki um neina aðra en fólk sem býr vestan Kringlumýrarbrautar sem lítur á Breiðholtið "á leiðinni" í Hafnarfjörð! Ekki það að einsog ég hef margoft sagt að ég bý hvort eð er svo langt í burtu að aðeins Akranes og Selfoss er ekki "í leiðinni" heim úr Reykjavík.
Ég held líka að Tommi sé ekki eini maðurinn sem hefur fengið póst "112 Grafarvogur" :-)
Posted by Agust at
01:56 EH
|
Comments (0)
maí 11, 2003
Mæður
Í dag er mæðradagurinn. Tradisjónan á mínu heimili er að mæður fái blóm á konudaginn en þessi dagur hefur enga merkingu fyrir mig þannig, enda vissi ég ekki af honum fyrr en í gær. Kannski ég sé ómögulegur sonur, má vera.
Aftur á móti verð ég að koma hér að tilvitnun í Woody Allen úr Manhattan.
(Fyrrverandi kona W.A. í myndinni er nú í sambúð með annarri konu og hefur forsjá yfir barni þeirra)
Diane Keaton: Two mothers are absolutely fine.
Woody Allen: Really? Because I always feel very few people survive one mother.
En ætli ég verði ekki að bæta upp þetta mean comment um mæður með að vitna í Gyðinga. "Guð getur ekki verið alls staðar, þess vegna eru mæður".
Posted by Agust at
08:11 EH
apríl 15, 2003
Þvílík sóun
Það var ekki laust við að hrollur færi um mann fyrir helgi, þegar Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar bárust inn um bréfalúguna og maður opnaði blöðunginn. Opnumynd, sem minnti mann á plakötin sem fylgdu ABC (og Æskunni) þegar maður var lítill, af jarðgöngunum fyrir austan. Þvílík sóun. Þvílík sóun!!
Posted by Agust at
06:39 EH
|
Comments (0)
febrúar 28, 2003
Vaka vann!

Ég var að frétta úrslit kosningana til Stúdentaráðs...
Vaka: 5 - Röskva: 3 - Háskólalistinn: 1
Hvernig svosem stendur á því, þá skilst mér að þetta þýði að í Stúdentaráði Háskóla Íslands muni nú sitja 11 frá Vöku, 7 frá Röskvu og 2 frá Háskólalistanum, samtals 20 manns.
Í fyrra fékk ég fréttirnar um úrslit frá Svíþjóð, núna var það Verzlingur sem sagði mér þær - áhuginn leynist víða.
Posted by Agust at
03:14 FH
febrúar 11, 2003
Nýtt land
Í dag hittumst við Þórir og borðuðum saman. Síðan skuttlaði ég honum í Bókhlöðuna og kíkti inn með honum. Erindið var að leita að heimildum fyrir heimildaritgerð sem hann er að skrifa um sem snertu Vilmund Gylfason. Fórum á Þjóðdeildina og Þórir fann einhver laganúmer (eða eitthvað) sem hann var að leita að í
Löglegt en siðlaust, þeirri stórgóðu bók Jóns Orms, en á meðal fletti ég í gegnum
Nýtt land, tímaritið sem Vilmundur og fleiri gáfu út haustið 1981 (eftir "Alþýðublaðsdeiluna").
Nema hvað, það sem mér fannst mjög merkilegt við að fletta þessu rúmlega 21 árs gamla blaði var að megnið af greinunum höfðuðu til mín. Þarna voru, fyrir utan sagnfræðilegar greinar Vilmundar um m.a. Martein Lúther og Héðinn Valdimarsson, greinar um Afganistan, Íran, klofninginn í Sjálfstæðisflokknum, lýðræði (eða öllu heldur lýðræðisleysi) í verkalýðsfélögum... mestallt greinar sem er nú, 21+ ári seinna, áhugavert að lesa í ljósi sögunnar.
Það sem var rangt með spánna um Afganistan var að stríðið þar var ekki Víetnam 2 heldur miklu verra. Greinarnar um Khomenei (
Kómení einsog það var skrifað í blaðinu) væru áhugaverðar fyrir mig að lesa, ekki síst grein Vilmundar þar sem hann ber hann saman við Martein Lúther.
Ég ætlaði alltaf að kíkja í þessi blöð fyrir tæpum tveimur árum síðan en ekkert varð úr því. Ég á hinsvegar örugglega einhvern tímann eftir að kíkja í þetta við tækifæri.
Sem minnir mig á það, af hverju er ekki fyrir löngu búið að gera sjónvarpsþátt um ævi og baráttu Vilmundar?? Þetta er einhver litríkasta persóna íslenskra stjórnmála á 20. öld. Ein bók, bók Jóns Orms, hefur verið skrifuð um hann (1985) og ein BA-ritgerð við sagnfræðiskor árið 1997, eftir því sem ég kemst næst. Það er kannski eina vonin að Hannesi Hólmsteini detti í hug að gera þátt um hann.
Posted by Agust at
11:03 EH