febrúar 11, 2003

Nýtt land

Í dag hittumst við Þórir og borðuðum saman. Síðan skuttlaði ég honum í Bókhlöðuna og kíkti inn með honum. Erindið var að leita að heimildum fyrir heimildaritgerð sem hann er að skrifa um sem snertu Vilmund Gylfason. Fórum á Þjóðdeildina og Þórir fann einhver laganúmer (eða eitthvað) sem hann var að leita að í Löglegt en siðlaust, þeirri stórgóðu bók Jóns Orms, en á meðal fletti ég í gegnum Nýtt land, tímaritið sem Vilmundur og fleiri gáfu út haustið 1981 (eftir "Alþýðublaðsdeiluna").
Nema hvað, það sem mér fannst mjög merkilegt við að fletta þessu rúmlega 21 árs gamla blaði var að megnið af greinunum höfðuðu til mín. Þarna voru, fyrir utan sagnfræðilegar greinar Vilmundar um m.a. Martein Lúther og Héðinn Valdimarsson, greinar um Afganistan, Íran, klofninginn í Sjálfstæðisflokknum, lýðræði (eða öllu heldur lýðræðisleysi) í verkalýðsfélögum... mestallt greinar sem er nú, 21+ ári seinna, áhugavert að lesa í ljósi sögunnar.
Það sem var rangt með spánna um Afganistan var að stríðið þar var ekki Víetnam 2 heldur miklu verra. Greinarnar um Khomenei (Kómení einsog það var skrifað í blaðinu) væru áhugaverðar fyrir mig að lesa, ekki síst grein Vilmundar þar sem hann ber hann saman við Martein Lúther.
Ég ætlaði alltaf að kíkja í þessi blöð fyrir tæpum tveimur árum síðan en ekkert varð úr því. Ég á hinsvegar örugglega einhvern tímann eftir að kíkja í þetta við tækifæri.
Sem minnir mig á það, af hverju er ekki fyrir löngu búið að gera sjónvarpsþátt um ævi og baráttu Vilmundar?? Þetta er einhver litríkasta persóna íslenskra stjórnmála á 20. öld. Ein bók, bók Jóns Orms, hefur verið skrifuð um hann (1985) og ein BA-ritgerð við sagnfræðiskor árið 1997, eftir því sem ég kemst næst. Það er kannski eina vonin að Hannesi Hólmsteini detti í hug að gera þátt um hann.
Agust skrifaði 11.02.03 23:03

Flokkun: Stjórnmál , Ísland