maí 13, 2003

Hugsjónir og völd

Athyglisverð grein um Bill Frist, leiðtoga repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings í hinu stórgóða New York Times Magazine: The Price of Power
Fyrsta fórnarlambið þegar menn komast til áhrifa virðist alltaf vera hugsjónir þeirra. "Vald spillir" og allur sá pakki. Fín grein um hvernig kaupin á eyrinni ganga fyrir sig í Washington.
Ekki alls óskyld er Lexington-grein í Economist frá því í síðustu viku, Steamroller Ashcroft. Þar er rakið með ágætum hætti hvers vegna John Ashcroft er martröð frjálslyndisins. Reyndar mætti svipaða sögu segja um ýmsa kollega Ashcrofts meðal kirkju-konservatívanna.

Og talandi um kirkju-konservatívanna, Lexington-grein þessarar viku, Holy high-roller, fjallar um annan úlf af því sauðahúsi, Bill Bennett. Hann er einn af þessum hægrihönum sem hafa haft hátt um hvernig fólk eigi (eða öllu heldur megi) haga lífi sínu. Er metsölurithöfundur, því hann hefur skrifað nokkrar bækur einmitt um þessa köllun sína - sem siðapostula.
Nú hefur karlgreyið verið uppvís að því að vera spilafíkill sem hefur tapað milljónum dala í spilakössunum í Atlantic City og Las Vegas. Fyrstu viðbrögð hans voru auðvitað sú að jú, hann hefði sko aldrei prédikað sérstaklega gegn fjárhættuspili.
Agust skrifaði 13.05.03 00:12

Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál
Comments
Skrifa comment









Muna persónulegar upplýsingar?