maí 14, 2003

Matrix 2

Mér leiddist Matrix myndin (fyrri). Furðulegt að mörgum kemur það rosalega á óvart, yfirleitt þá með orðunum "ég hélt einmitt að þú myndir fíla hana, þú veist að hún er notuð við kennslu í heimspeki?".
Nú er framhaldsmynd Matrix komin og sá ég brot úr henni í auglýsingu í sjónvarpinu í gær. Ég verð að segja að ég uppgötvaði ekki að þetta væri brot úr Matrix 2 fyrr en það lógóið birtist undir lokin. Mig grunaði frekar að þetta væri brot úr Lost in Space IV eða eitthvað álíka vitlaust.
New York Times er með dóm um myndina. Ég reyndar nennti ekki að lesa dóminn en útdrátturinn segir:
The action sequences are viciously elegant, but there is a dispiriting more-of-the-same aspect to the first "Matrix" sequel.
Sjá nánar NYT: An Idealized World and a Troubled Hero

ps. Þetta er líklegasta ein skondnasta kosningafréttin: Meirihluti meðmælenda Nýs afls í NV-kjördæmi kaus ekki listann (bb.is)
Agust skrifaði 14.05.03 14:17

Flokkun: Menning , Meðmæli