maí 25, 2003
Júróvisjón
Í gær horfði ég á Júróvisjón í fyrsta skiptið í mörg ár. Hef yfirleitt horft í mesta lagi á stigagjöfina.Stigagjöfin er skemmtilegt fyrirbrigði - út frá félagsvísindalegu sjónarhorni. Grikkir gefa Kýpverjum, Portúgalir Spánverjum, Rússar Úkraínumönnum og Þjóðverjar Tyrkjum og Rússum.
Þrjú lög vöktu athygli mína og stóðu að mínu mati töluvert uppúr. Lögin frá Austurríki, Belgíu og Tyrklandi stóðu upp úr. Commercial lesbíurnar frá Rússlandi voru með leiðinlegt lag en ég missti af því í sjónvarpinu, heyrði það bara í útvarpinu. Hef heyrt t.A.t.U. lög sem eru fín. Þetta lag var bara leiðinlegt. Sem betur fer unnu þær ekki keppnina. Austurríska lagið var skemmtilegt, Belgíska var skemmtilegt semi-folk og svo var tyrkneska lagið með skemmtilegum austrænum áhrifum. Reyndar þegar ég heyrði það aftur í dag í útvarpinu var það ekki eins gott og í sjónvarpinu. Stendur ekki alveg jafn vel undir sér hvað það varðar. Það verður hinsvegar áhugavert að sjá hvernig Tyrkir munu spila úr keppninni á næsta ári.Sjálfur fór ég aldrei þessu vant í "júróvisjónpartý", sem var fámennt en góðmennt. Þessi árlega keppni er einn stór brandari. Því miður brandari sem kostar Sjónvarpið og þar sem skattgreiðendur margar margar milljónir. Það sem við fáum aftur á móti út úr þessu eru 2-3 lög árlega sem hægt er að hlusta á og svo ein 20 sem eru misjafnlega léleg. Síðan getur maður hlegið að sumu, t.d. rúmenska laginu og sjóvinu sem því fylgdi og textanum hjá Lettunum. Rokkararnir frá Eistlandi sungu líka víst á ensku, þó ég fattaði það ekki fyrr en í miðju lagi, skyldi ekki framburðinn fyrr.
Agust skrifaði 25.05.03 14:53
Flokkun: Menning
wow! verð ég fyrstur til að kommenta? allavega ...ég ætlaði bara að óska þér til hamingju með að vera kominn með mt ...mig hefur oft langað að kommenta á dót sem þú hefur skrifað og það hefur nagað mig að þú hafir ekki verið m. kommenta-kerfi á síðunni þinni fyrr -en batnandi mönnum er best að lifa og allt það ...congrats!
ps mér fannst úkraínska lagið æði! Hasta-la-vista Baby, baby bye bye ...það verður ekkert flottara, nema þá kannski ef Arnold sjálfur hefði sungið?
Jensi skrifaði 25.05.03 18:24Já, ég segi nú bara pass! Úkraínska lagið var samt svona skemmtilega "Gleðibankalegt". Greinilegt að það átti að sigra heiminn og rúmlega það.
Ég reyndar gleymdi að fylgjast með því, hvernig var það, lenti það ekki í 16. sæti? :)
En varðandi þetta kommentakerfi, þá er ég svona á báðum áttum með það. Ætla að skrifa smá "ritstjórnarstefnu" um það á allranæstu dögum. Er á móti ritskoðun per se en áskil mér samt að birta hérna á síðunni einungis það sem er höfundi og ábyrgðarmanni þóknanlegt. Allir hafa rétt á sinni skoðun, en það er alltaf spurning hvort maður vilji bjóða upp á möguleikann að hérna geti hangið inni eitthvað sem er manni ekki að skapi. Svo var ég feginn að hafa ekki haft kommentakerfi þegar ég skrifaði t.d. síðustu femínista-færslu. Að þurfa að lesa í gegnum langlokurnar sem sumir kommenta á þessum síðum... púff! Þá vil ég frekar vera sá sem skrifar langlokurnar ;)
Ágúst skrifaði 25.05.03 18:32