apríl 29, 2003
Brjóstagjöf og barnaklám
Stundum verð ég algjörlega orðlaus. Það eina sem mér dettur í hug er
only in America! Breast-feeding pix kiddie porn? (Unnur
benti á).
Tvær aðrar, en gjörólíkar, fréttir sem vöktu athygli mína í gær:
Glaxo to Cut Price of AIDS Drug Used in Africa
Italian opposition in flap over flag
Posted by Agust at
09:03 EH
|
Comments (0)
apríl 28, 2003
Fas femínista
Í tilefni
þessara,
þessara og
þessara ummæla rakst ég á þennan "
draum Gyðu".

Ég var búinn að heyra af þessu herópi Gyðu á stofnfundi Femínstafélagsins. Mín fyrstu viðbrögð við þessari sýn - og skoðun mín á þeim í dag - var fyrst og fremst svekkelsi. Ég er svekktur yfir því að þessi tegund
femínisma skuli vera presenteruð af Femínistafélaginu. Það er mjög auðvelt að missa mestan tiltrúnað á félagið þegar maður heyrir að þetta er
málflutningurinn.
Ég spyr mig líka hverjum það þjónar að "virkja" þessa
drauma Gyðu og stalla hennar. Það læðist að manni sá grunur að þessir draumar séu afleiðingar einhvers konar martraða sem konurnar hafa kynnst frá körlum. Þessi ótrúlega heift, þetta máttleysi sem birtist í þessum
draumi hryggir mann. Því einsog ég segi, það læðist sá grunur að manni að sú sem á sér þennan
draum hafi áður kynnst martröð.
Ég veit í sjálfu sér ekki hvort ég á að eyða nokkrum orðum í að lýsa því hvers þessi "draumur Gyðu" um Veru sem kallar út sérsveit Femínistafélagsins þegar henni er nauðgað og Freyju sem bragðbætir drykki aðkomudólga með sápu frá Frigg. Ég held ekki, því orðið dæma sig sjálf. Rétt einsog orð þeirra sem vilja skera undan nauðgurum eða grilla morðingja með hækkandi sól í rafmangsstólum. Raunar eiga síðarnefndu hóparnir það sameiginlegt, ólíkt "draumi Gyðu", að a.m.k. hluta þeirra virðir sönnunarbirgðina, sem virðist alveg ansi gengisfelld í
drauminum.
Sem fyrr segir hryggir þessir
draumur mig og svekkir. Mér finnst leitt að konur skuli beina
reiði sinni og heift í garð einstaka karlmanna í að skipuleggja sérsveitir og sápuvopnaárásir. Ég vorkenni þessum konum fyrir að vinna ekki úr þessum tilfinningum sínum á uppbyggilegri hátt. Það svekkir mig líka að þetta sé það sem er í umræðunni tengt/hjá Femínistafélaginu, ég tel það ekki þeim til framdráttar.
- - - - - - - - - - - -
Annað en þó að litlu leyti tengt. Fyrir nokkru birtist lítið grein í Economist um fjögur þúsund manna (þar af tæpur helmingur háskólanemar) ráðstefnu Conservative Political Action Conference. Einkar athyglisverður félagsskapur, held að undirtitill greinarinnar segi allt sem segja þarf:
Conservatives, off their leash, are a frightening bunch
Ágúst Flygenring
Posted by Agust at
08:49 EH
|
Comments (0)
apríl 27, 2003
Páskar

Nú er páskadagur hjá koptísku kirkjunni, eþíópísku kirkjunni og rússnesku og úkraínsku orþadox kirkjunni. Á morgun halda svo Egyptar upp á
Sham al Nessim, sem er vorhátíð og haldið upp á hana af öllum þjóðfélagshópum og talið rekja uppruna sinn rúm þrjú þúsund ár aftur í tímann til Forn-Egypta.
Posted by Agust at
03:40 EH
|
Comments (0)
Nokkrar fréttir úr nýjasta METimes
Chalabi a fraudster. Chalabi, besti vinur Washington í Írak, er - einsog margoft hefur komið fram - langt í frá hreinn pappír.
Mubarak steps into the fray. Hér má lesa um hvernig tókst að tryggja Mahmoud Abbas sem forsætisráðherra Palestínu stjórnarinnar með þrýstingi frá Egyptum o.fl. Díllinn er að Arafat fær að halda nokkrum völdum á bakvið tjöldin.
Human rights group criticises US over children detained at Guantanamo Cuba.
Juveniles among Guantanamo prisoners. "Those under 18 represent "less than half a dozen" of the 660 held at Guantanamo, a spokesman for the joint military task force running the prison operation said." Það skiptir náttúrulega engu máli, enda kemur engum öðrum við en bandarískum stjórnvöldum hverjum þau halda í Guantanamo og hverjum ekki. Þannig skiptið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við og hana nú!
Lebanon's new government risks national unity. Nýja ríkisstjórnin í Líbanon er án þátttöku Maróníta sem eru ca. 15% þjóðarinnar (hef ekki nákv. tölu á reiðum höndum). Það hefur alltaf staðið til hjá mér að kynna mér betur sögu Líbanons. Vonandi að það komist í verk með sumrinu.
Education reform critical for the Middle East. Sannarlega engin ný sannindi, enda eitt fjögurra atriða sem brýnast er að bæta úr í Mið-Austurlöndum skv.
Arab Human Development Report í fyrra.
Shiite pilgrimage signals moderation towards US.
Pilgrimage historic amid scenes of protest.
Pilgrimage continues for Iraqi Shiites deported to Iran.
Svo vil ég benda á þessa úttekt frá MEMRI:
Iran's U.S. Policy After the Fall of Baghdad: Khamenei's Hostility Versus Rafsanjani's Pragmatism
Posted by Agust at
03:30 EH
apríl 22, 2003
Líf mitt
Það verður ekki annað sagt en að það sé nóg að gera hjá mér þessa dagana.
Þrátt fyrir það virðist ég hafa dustað rykið af gömlu áhugamáli.
Á annan dag páska vaknaði ég ekki fyrr en undir hádegi. Engu að síður varð mikið úr þeim degi. Fyrst fór ég á hestbak í fyrsta skipti síðan haustið 1997 (fór reyndar í stuttan reiðtúr á gamlársdag sama ár sem varla telst með) og hef síðan þá ekki stigið í ístöð. Ég virtist þó hafa litlu gleymt á fimm og hálfu ári.
Seinnipartinn sama dag þurfti ég að skjótast upp á Bifröst. Renndi uppeftir og borðaði kvöldmat með
Stefáni Einari í Borgarnesi. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fer út á land síðan ég fór á svipaðar slóðir haustið 2001. Það var því komið eitt og hálft ár síðan ég fór út á landsbyggðina, ef Miðnesheiði, Keflavíkurflugvöllur og Mosfellsdalur eru ekki taldir með.
Að lokum fórum við Hákon á Johnny English um kvöldið. Ég fer sárasjaldan í bíó og verður þetta því að teljast viðburður í mínu lífi. Fór síðast á
Tanguy á franski kvikmyndahátíð í janúar.
Í dag fór ég svo aftur á bak. Það sem ég segi, maður þarf ekki annað en finna lyktina aftur og þá er maður búinn að taka bakteríuna.
Posted by Agust at
09:46 EH
apríl 17, 2003
Viðbrögð al-Qaeda við falli Bagdad
"With guerilla warfare, the Americans were defeated in Vietnam and the Soviets were defeated in Afghanistan. This is the method that expelled the direct Crusader colonialism from most of the Muslim lands, with Algeria the most well known. We still see how this method stopped Jewish immigration to Palestine, and caused reverse immigration of Jews from Palestine. The successful attempts of dealing defeat to invaders using guerilla warfare are many, and we will not expound on them. However, these attempts have proven that the most effective method for the materially weak against the strong is guerilla warfare..."
Þetta stóð m.a. á síðu al-Qaeda (sem ekki er hægt hægt að linka á, því henni er alltaf fljótlega lokað og slóðin breytist á nokkra daga fresti) 9. apríl, eftir að Bagdad var fallin.
Sjá nánar:
MEMRI.
Posted by Agust at
04:08 EH
Jafnrétti og jafnrétti
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir hefur oft skrifað af viti um jafnréttismál. Ég hef oft lesið hugleiðingar hennar á ýmsum vettvangi um jafnrétti, femínisma og fleira í þeim dúr og fundist hún nálgast málin yfirleitt á mjög "heilbrigðan" hátt.
Þessi pistill eftir hana á Frelsi er engin utantekning,
Jafnrétti meðal jafnaðarmanna, þar sem hún segir m.a.:
Samfylkingin virðist sannfærð um að áhugi kynjanna á stjórnmálum sé jafn mikill og þá jafnframt að framboð af efnilegum stjórnmálamönnum af báðum kynjum sé ætíð nokkuð jafnt. En ég leyfi mér að efast um það í ljósi eigin reynslu af áhugaleysi kvenna á stjórnmálum. Mig grunar einmitt að kynjahlutföll á listum Sjálfstæðisflokksins endurspegli þennan mun, alveg eins hlutfall kynjanna sem gegna embættum formanna og varaformanna innan stjórna Ungra jafnaðarmanna. Persónulega þykir mér skynsamlegra að fara í kjölinn á hugsanlegum ástæðum þess að konur hafi minni áhuga á stjórnmálum en karlar, heldur en að reyna bara að jafna hlut þeirra kvenna og karla sem sitja á Alþingi.
Þetta segir ungur femínisti sem
starfaði áður innan Bríetar.
Svo bætir hún um betur í pistli á Tíkinni.is í dag,
Jöfnuður er ekki jafnrétti, þar sem hún segir m.a.:
Ég skilgreini jafnrétti aftur á móti sem jafnan rétt einstaklinganna fyrir lögum, og að einstaklingarnir séu metnir að verðleikum án þess að bakrunnsbreytur á borð við kynferði leiði til réttindaskerðingar. Ég hef engar staðreyndir til að styðja þá kenningu að ójöfn kynjahlutföll þýði sjálfkrafa að réttur þess kyns sem á hallar, hafi verið fótum troðinn. Komist einstaklingur hins vegar ekki áfram á eigin verðleikum, til dæmis á grundvelli kynferðis, standa lögin, dómstólarnir og réttarkerfið í heild honum til verndar. Þegar hins vegar reynt er að þvinga fram þróun í átt að jöfnum hlutföllum er hætta á að einstaklingarnir verði ekki metnir að verðleikum heldur einmitt af þessum bakrunnsbreytum.
Fyrst ég er farinn að vitna svona mikið í Helgu, er ekki úr vegi að vísa á einhvern skemmtilegasta pistil um femínisma sem ég hef lesið - og er einmitt eftir hana:
Æ, þetta helv.. jafnréttiskjaftæði
Posted by Agust at
01:29 EH
|
Comments (0)
Typpi
Mér finnst pistill Andra Óttarssonar,
Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og
stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.
Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar
Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar.
Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.
Posted by Agust at
12:39 FH
|
Comments (0)
apríl 15, 2003
The Hobbesian Dick Cheney and the Oedipal struggle of the Bushes
Stundum er ekki annað hægt en að brosa út í annað þegar maður les pistlanna hennar Maureenar Dowd.
The Washington Post reported on Monday [31/3] that moderate Republicans were trying to do an intervention with the president to show him that hawks were giving him "bum advice."
The article was clearly referring to the Bush I realpolitik crowd of James Baker, Brent Scowcroft, Lawrence Eagleburger and Mr. Powell and his acolytes at State. These pals of Poppy Bush are alarmed that the Hobbesian Dick Cheney - who has been down in his undisclosed locations reading books about how war is the natural state of mankind - the flamboyantly belligerent Rummy and the crusading neo-cons have mesmerized the president with their macho schemes.
[...]
One former senior Republican official noted: "The only one who can reach the president is his father. But it is not timely yet to talk to him." This raised the odd specter of the president's being dragged off from running a war and taken to Kennebunkport for a Metternichian outing in the family cigarette boat. Mr. Scowcroft and Mr. Eagleburger could pin W. down while Bar steered and Poppy explained the facts of international life.
The Oedipal struggle of the Bushes - a father who was an ambassador to the U.N. and an envoy to China, a globe-trotting vice president and an internationalist president, and a son who was a Texas governor with little knowledge of the world - was bound to be aggravated by an invasion of Iraq not sanctioned by the U.N.
[...]
Bush 43 is busy trying to do something his dad thought he'd done. The title of Bush 41's book: "A World Transformed."
Warring Tribes, Here and There, 2. apríl, ©New York Times.
Posted by Agust at
11:08 EH
Next stop: Syria?
It is a tribute to Hafez al-Assad's reasonableness as a diplomat and irresponsibility as a leader that Syria is the only country called a sponsor of terrorism by the State Department that has diplomatic relations with the United States.
Úr
leiðara New York Times í dag.
New York Times bendir á alla þá augljósu ókosti sem stjórnvöld í Sýrlandi hafa, hvernig þau skjóti skjólshúsi yfir terrorista og séu hugsanlega með efnavopnaprógram í gangi. Aftur á móti, einsog Sun Tzu sagði, "Þekktu óvini þína betur en sjálfan þig" og í lok leiðarans segir:
War against Syria, however, makes no sense. The United States has its hands full in Iraq. More important, Washington will only live up to the worst expectations of the Arab world if it now adopts a belligerent military approach to every nation in the region that it dislikes. It may be possible, however, to use the threat of diplomatic or economic sanctions to encourage Damascus to reconsider its hostile policies in the wake of the fall of Mr. Hussein.
Ég bara neita að trúa því að þessar kenningar um "Írak í dag, Sýrland á morgun" plan Rumsfelds séu réttar, þ.e.a.s. að Sýrland sé næsta "frelsun" á dagskrá bandaríska hersins. Ef svo er, þá er ég endanlega algjörlega hættur að skilja nokkuð í neinu hvað gengur á milli eyrnanna á þessum skrattakollum í Washington!
Posted by Agust at
10:19 EH
|
Comments (0)
Fyrirsagnir, þinn eigin stríðsherra og amerísk tómatsósa
Nú er fyrirsögn fréttastofu RÚV "Átökin í Írak" í sjónvarpsfréttunum. Áður var það "Innrásin í Írak". Prentútgáfa Morgunblaðsins talar enn um "Stríð í Írak". Nú er fyrirsöngnin "After Saddam" bæði á CNN og Sky News. Áður var það "War
On Iraq" hjá CNN en "War
In Iraq" hjá Sky. Sama fyrirsögnin var í dag á BBC minnir mig "Iraq - War". Enn er talað um "War On Iraq" á
enskri útgáfu al-Jazeera.
Fréttamönnum Sjónvarpsins er bent á að fæðingarbær Abrahams heitir Úr, ekki Ur, sbr. 11. kafla 1. Mósebókar (arabískur ritháttur: alef-va-ra).
Það er ekki laust við að manni verði óglatt að lesa
þessa frétt um að nú sé hægt að fá sér Bagdad sem umhverfi
Command and Conquer stríðsleiki.
Af innlendum vettvangi er það einna helst, utan frétta af atkvæðauppboðinu í vor, að
Ástþór Magnússon mætti fyrir dómara í dag. Hann neitaði að fá verjanda og sagðist ekki ætla að vinna með honum, þegar honum var skipaður verjandi. Ekki var honum skipaður geðlæknir að svo stöddu.
Posted by Agust at
08:39 EH
Þvílík sóun
Það var ekki laust við að hrollur færi um mann fyrir helgi, þegar Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar bárust inn um bréfalúguna og maður opnaði blöðunginn. Opnumynd, sem minnti mann á plakötin sem fylgdu ABC (og Æskunni) þegar maður var lítill, af jarðgöngunum fyrir austan. Þvílík sóun. Þvílík sóun!!
Posted by Agust at
06:39 EH
|
Comments (0)
Glötuð menningarverðmæti
Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, kennari í nútímasögu Mið-Austurlanda og sérfræðingur í sögu Íraks, skrifar pistil í bandaríska dagblaðið Newsday í dag: [Grieving Over Loss of Civilian]
...and Cultural Life in Iraq
Newsday þykir frekar íhaldssamt en birti pistil Magnúsar án athugasemda á
Op-Ed-síðu sinni. Pistillinn fjallar um hina ægilegu eyðileggingu sem átti sér stað í Bagdad og aðgerðaleysi bandaríska hersins, sem þó sá ástæðu til að standa vörð um olíumálaráðuneytið og skjölin sem þar eru geymd. Þjóðminjasafnið, sem hefur (hafði) að geyma ómetanleg menningarverðmæti frá öllum fornu stórveldunum sem byggðu Mesapótemíu, var rænt og lagt í rúst. Kveikt var í ríkisbókasafninu og ómælanlegt magn skjala og upplýsinga glötuðust einnig annars staðar. Bandaríkjamenn bjuggust við þessu - og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Olíumálaráðuneytið varð aftur á móti ekki fyrir tjóni.
Posted by Agust at
01:48 EH
|
Comments (0)
apríl 14, 2003
Af mér
Ég kláraði síðasta prófið á laugardaginn. Kíkti í lítið partý um kvöldið og svo til
Siggu. Þar sá ég bíómynd með
Peter Ustinov sem kemst tvímælalaust a.m.k. á topp tíu listann hjá mér - yfir verstu bíómyndir sem ég hef séð. Hún heitir
Charlie Chan (1981) og er bara hörmung í einu orði sagt.
Skv.
IMDb.com er Charlie Chan karaketer sem um 40 myndir voru gerðar um á 4. og 5. áratugnum. Einnig voru gerðir sjónvarpsþættir '57 og ein sjónvarpsmynd '79. Upprunalegi
Charlie Chan var leikinn af sænskum leikara á fjórða áratugnum og eftir það voru það bandarískir leikarar sem léku hann. Í sjónvarpsmyndinni '79 var hann leikinn af Pólverja. Það lá því beinast við að fá annálaðan breskan leikara til að leika hann, eða hvað? En einsog ég sagði, skelfilega léleg mynd.
Gærdagurinn fór svo í fjölskylduboð og aðrar skyldur en svo kom
Sigga í heimsókn að ræða lífsins gagn og nauðsynjar.
Í dag var svo byrjað í verkefnavinnu vorsins. Nú er það stefnumótun, lítur ágætlega út, spenntur fyrir framhaldinu.
Ég á eftir að lesa heilan helling af efni sem ég hef ekki komist yfir vegna prófa og annarra anna. Dagurinn í dag og næstu tveir dagar munu líklegast fara í aðrar skyldur en skemmtilestur og verður sjálfsagt enn bið á uppfærslum á þessari síðu þangað til um helgidagana.
Vonast til að geta lesið eitthvað í þessum 7-8 bókum sem ég er með á náttborðinu núna, svo á ég vænan bunka af tímaritum og útprentuðum greinum sem bíða mín, fyrir utan allt internet-efnið sem ég hef ekki komist í að lesa síðastliðinn hálfan mánuð. Nóg að gera, en ég get ekki beðið að sökkva mér í þetta :)
Nú er ég aftur á móti á leiðinni í klippingu, nokkuð sem hefur setið á hakanum alltof lengi!
Posted by Agust at
03:43 EH
Niðurstaða Afstöðu.net
Skemmtilegt test á
Afstaða.net.
Posted by Agust at
03:33 EH
|
Comments (0)
apríl 10, 2003
Corcorde 1969/76-2003

Í dag er greint frá því að dagar Concorde flugvélanna er taldir. Það kemur svosem ekkert verulega á óvart. BBC greinir frá,
Concorde grounded for good.
BBC minnist einnig allra milljarðanna af bresku og frönsku almannafé sem fóru í verkefnið á sjöunda og áttunda áratugnum og hvernig flugvélarnar hafa í raun aldrei náð að standa undir sér - og hvers vegna flugvélar miða að því að koma fólki sem ódýrast á milli staða, en ekki á sem skemmstum tíma,
Why economists don't fly Concorde.
Posted by Agust at
01:01 EH
|
Comments (0)
apríl 09, 2003
Oh no!

Þetta voru viðbrögð fréttaskýrenda áðan þegar bandarískir hermenn settu bandaríska fánann yfir höfuðið á styttu af Saddam Hussein sem þeir voru að rífa niður með stórum skriðdreka. Fljótlega var fáninn fjarlægður og Íraki sást veifa íraska fánanum á toppi bandaríska skriðdrekans.
Fréttaskýrendurnir áttu ekki orð yfir þetta framferði, sem er þó dæmigert fyrir Bandaríkjamenn í Írak. Hvernig eiga Írakar að túlka svona fánasýningar öðruvísi en sem "við eigum pleisið" yfirlýsingu. Auðvelt fyrir okkur Vesturlandabúa að kjósa að túlka slíkt á annan veg, ef við viljum - en fyrir Íraka er þetta a.m.k. ekki rétta leiðin til að
vinna hug og hjörtu þeirra.
Áhugavert:
dr. Jón Ormur svarar spurningum á Vísi.is um Írak og innrásina.
Posted by Agust at
02:45 EH
Óvinurinn
Two cameramen, working for Reuters and Spain's Telecinco, were killed when a shell hit the hotel which houses hundreds of foreign journalists. There is video footage of an American Abrams tank firing at the building.
Earlier, a correspondent for the Arabic TV broadcaster al-Jazeera was killed when US missiles hit the network's office. (src)
Nú hafa Bandaríkjamenn einbeitt sér að því að ráða niðurlögum hins raunverulega óvinar, frjálsra fréttamanna.
"A war zone is a dangerous place. We continue to warn news organisations... you should not be there"
- Pentagon spokeswoman Victoria Clark (src)
Í nóvember 2001 sprengdu Bandaríkjamenn höfuðstöðvar
al-Jazeera í Kabúl (sem var þá mannlaus). Að sögn samtakanna Reporters Without Borders gætti sjónvarpsstöðin sín á að láta Bandaríkjamenn hafa nákvæmar upplýsingar um staðsetningu skrifstofu þeirra í Bagdad. Einsog áður sagði var hún sprengd með tveimur flugskeytum í dag.
Hvernig hægt er að skjóta á eina hótelið sem vitað er að hýsir nær alla erlenda fréttamenn í Bagdad, er með slíkum ólíkindum að það sýnir og sannar enn og aftur að með mjög góðum rökum er hægt að efast um hæfni bandaríska hersins í borgarhernaði.
Ég ætla ekki að halda því fram að árásirnar á hótel fréttamannanna og skrifstofu al-Jazeera hafi verið plönuð af Bandaríkjamönnum. Ég held frekar að þessi atvik sýni að það sem
sagt hefur verið um bandaríska hermenn undanfarið af hernaðarsérfræðingum (utan Bandaríkjanna) er rétt.
Posted by Agust at
01:51 FH
apríl 04, 2003
Fréttaumfjöllun
Jæja, lesendur góðir, eruð þið ekki farin að sakna sífelldra vísana minna í New York Times? Hélt það líka.
Ég hef lítið sem ekkert lesið síðustu vikuna, en las þó áðan þessa grein, sem vert er að benda á:
The War Americans Don't See; Rami G. Khouri, sem er ritstjóri dagblaðs í Beirút, skrifar um fréttaumfjöllun arabískra dagblaða af innrásinni.
Posted by Agust at
10:01 EH
apríl 03, 2003
Sitt lítið af hverju
Verð að benda á það sem Unnur skrifaði í dag:
Kynlífslaus framhaldsstofnfundur Femínistafélags Íslands. Titillinn segir ekki allt, þar sem pistillinn hennar er mun víðtækari. Mjög athyglisvert.
Núna eru ár og dagar síðan ég náði að lesa ráðlagðan lágmarks dagskammt af lesefni. Get ekki beðið eftir að hafa (vonandi) 2-3 daga í lestur þegar prófin eru búin. Er með svona 4 bækur sem ég þarf urgently að lesa, auk þess fullt af greinum á netinu sem ég þarf að vinna upp.
Ég er hræddur um að ég þurfi að fá mér ný gleraugu. Þessi sem ég er búinn að ganga með núna í rúm fjögur ár eru bara engan veginn nógu "sterk". Hættur að sjá nokkuð þegar ég er þreyttur (einsog í dag). Núna t.d. sé ég ekki einu sinni tölvuskjáinn í ásættanlegum fókus. Skrambinn hafi það, gleraugu eru dýr og vaxa ekki á trjánum :-(
Hanna Mæja, gamli íslenskukennarinn minn, farin að láta
Stefán Einar kenna íslensku í Verzló. Það hefur verið án efa athyglisvert, enda strákurinn með ómældan áhuga og ást á íslenskum fræðum. Hann hefur án efa staðið sig ágætlega og farið í Grím Thomsen af mikilli innlifun ;-)
Posted by Agust at
12:32 FH
apríl 02, 2003
Tölfræði og atvinnu-pólitíkusar
Í dag fór ég í fyrsta prófið af þremur (já, ég er í fimm kúrsum en aðeins þremur prófum). Það gekk (vona ég) bara þokkalega. Prófið var í samræmi við það sem ég hafði verið að reikna undanfarið fannst mér. Nú er bara að treysta á guð og lukkuna, krossleggja fingurna og hugsa um heimsveldið.
Ég hef aldrei tekið próf í stærðfræði/tölfræði þar sem þurfti að skrifa eins mikið og í þessu. Ég hef, án gríns, tekið íslenskupróf sem kröfðust minni texta en þetta. Kannski ég hafi alveg sleppt mér í rökstuðningnum á sumum stöðum en skárra að skrifa of mikið en of lítið. Að lokum setti ég saman ferskeytlu meðan ég var að fara yfir prófið. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég geri það, einhver undarlegur ávani að setja saman vísur í stærðfræðiprófum (og hef ekkert fyrir þeim þá, þær koma bara fullbúnar). Ætli það sé ekki bara það, að heilinn er í óvenjumikilli notkun þá :-)
Eftir prófið fór ég á fund hjá Félagi stjórnmálafræðinga úti í Lögbergi. Dró
Kristófer og
Jóa hagfræðing með mér. Þar fluttu framsögu hagfræðingarnir
Sigurður Jóhannesson hjá Hagfræðistofnun (sem reyndar kennir líka tölfræði í HR) og Már Guðmundsson hjá Seðlabankanum. Svo sátu fyrir svörum í panel Halldór Ásgrímsson, Ögmundur Jónasson, Ingibjörg Sólrún, Birgir Ármannsson og einhver Sigurður frá Frjálslyndum.
Fundurinn átti að fjalla um efnahagsmál og fjallaði að einhverju leyti um þau (a.m.k. framsögurnar). Mikið var rætt um skatta og skattalækkanir en enginn virtist hafa áhuga á að heyra um hvar ætti að spara í ríkisfjármálunum. Flestallar einræðurnar voru langar og fæstar svöruðu spurningunum sem komu úr salnum. Sérstaklega var Ingibjörg Sólrún með miklar langlokur en kom þó inn á nokkra áhugaverða punkta, var greinilega búin að undirbúa sig vel en bara of mikill atvinnustjórnmálamaður til að segja eitthvað af viti til að styggja örugglega enga. Halldór Ásgrímsson var þarna sýndist mér, nema þetta hafi verið Pálmi Gestsson í gervi. Hann fór t.d. fram á meðan á miðju framsöguerindi stóð, til að hringja. Fór svo og settist úti í sal til að sjá glærurnar sem Már var með og sagði "Maður þarf nú að læra þetta!". Hann var líka mikið að skjóta á Ögmund, sem reyndar skaut enn fastari skotun á Halldór og Framsóknarflokkinn en Halldór uppskar klapp frá salnum þegar hann stakk upp í Ögmund með skemmtilegum hætti. Halldór fékk líka ómaklegt skot frá fyrirspyrjanda frá Frjálslyndaflokknum, sem hélt langa einræðu um sjávarútveginn, talaði um "fyrirtæki Halldórs" og kom svo með afskaplega heimskulega spurningu til Birgis. Halldór brást hinn versti við þessum aðdróttunum um að hann hann ætti sjávarútvegsfyrirtæki og greinilegt að það fer mjög í taugarnar á honum. Mér finnst það ómálefnalegt þegar menn saka Halldór um tengsl með þessum hætti. Hann á lítið sem ekkert í útgerð á Hornafirði, so what? Hættulegri þykja mér tengsl t.d. Ögmundar við BSRB og lífeyrissjóðakerfið, svona svo nærtækt dæmi sé tekið.
Frjálslyndi maðurinn var einsog illa gerður hlutur þarna innan um stjórnmálamennina og báru svör hans merki um að hann hefur ekki sátt "stjórnmálaskóla" flokkanna.
Birgir vitnaði mikið í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, eða röksemdafærslu hennar öllu heldur og var í raun alveg einsog búast mátti við. Svona yfirveguð útgáfa af týpískum sjálfstæðismanni.
Mér þótti merkilegt að enginn skyldi spyrja um aðhaldsaðgerðir - og ekki komu frambjóðendurnir inn á það af sjálfsdáðum. Spurði því mjög einfalt (og vildi einföld svör), hver helstu sóknartækifæri í sparnaði hjá ríkinu frambjóðendurnir sæu fyrir sér. Notaði orðið
sóknartækifæri vísvitandi. Frjálslyndi maðurinn sagði eitthvað um að spara í útgjöldum vegna sendiráða. Birgir gaf pólitískt svar um að skera fituna utan af hlutunum frekar en beinan niðurskurð. Ingibjörg kom með svo langt svar að fundarstjóri sá ástæðu til að minna hana á að svara spurningunni. Hún gaf sérlega langt svar, sem sagði þeim mun minna, en það athyglisverða í svari hennar fannst mér vera að hún sæi ekki ástæðu til að t.d. verja meiri fjármunum í heilbrigðiskerfið. Það færu nægir peningar inn í það, það bara kæmi ekki nóg úr því. Við værum að standa okkur alltof illa í samanburði við aðrar þjóðir en samt eyddum við jafnvel meiri peninga í að fá samt minna. Þetta fannst mér ágætt svar frá frambjóðenda stjórnarandstöðunnar. Ekki það að hún sá ekki beint neina liði sem mætti skera sérstaklega niður í. Ögmundur talaði eitthvað um millifærslur (forgangsröðun?) en hóf samt mál sitt á því að segja að skera mætti niður kostnaðinn við NATO og uppskar hlátur frá salnum. Reyndar vildi hann ekki skera niður NATO-kostnaðinn, heldur setja hann frekar í þróunaraðstoð. Svo vildi hann m.a.
millifæra megnið af 3 milljarða kosningabónus ríkisstjórnarinnar í vegamálum í einhverja rannsóknar- og styrkjasjóði. Halldór kvartaði yfir því að allir vildu skera niður í utanríkismálum og var orðinn frekar geðvondur þegar þarna var komið við sögu. Gaf sjálfsagt einhver frekari pólitíkusa-svör en ég bara man ekki hvað hann sagði blessaður, einbeitingin var alveg búin. Hann kom bara með einhvern standard pólitískan pakka um aðhald og fituskurð og aukið hagræði, rétt einsog Birgir og Ingibjörg höfðu gert.
Þegar fundinum var lokið og fólk að koma sér út úr salnum heyrðist Halldór segja við einhvern samferðarmann sinn á leiðinni út "Þetta var nú leiðinlegur fundur". Að vissu leyti sammála honum en það sem eftir stendur er þetta (fyrir utan það sem var vitað fyrir að pólitíkusar (vilja) ekki skilja hagfræði og að Frjálslyndi flokkurinn er einhver allsherjar misskilningur):
- Halldór og Ögmundur eru greinilega aðeins meira en pólitískir andstæðingar
- Halldór er greinilega ósammála skattaáformum Sjálfstæðisflokksins frá landsfundinum
- Ingibjörg Sólrún er afspyrnu leiðinlegur stjórnmálamaður sem talar mikið en segir lítið - verð að segja að ég hafði, alveg fram að þessu, meira álit á henni
- Ef maður kysi í takt við frammistöðu fólks á þessum fundi myndi maður skila auðu
- Ef maður kysi í takt við hagfræðilegar forsendur stefnuskráa flokkanna, flytti maður af landi brott!
Bjóst við meira af þessum fundi, en það var greinilega alltof mikil óskhyggja að atvinnu-stjórnmálamenn fengjust til að ræða efnahagsmál á skynsömum nótum. Það kom mér ekki á óvart að ég fékk sama og engin svör við spurningu minni, í mínum villtustu draumum hefði Birgir Ármannsson stokkið upp á borðið og öskrað slagorð gegn landbúnaðarkerfinu og tollafyrirkomulaginu. Já, mínir villtustu draumar eru svei mér skrítnir.
Í ofanálag var þetta hræðilega illa sóttur fundur. Taldi ekki fjöldann en hann var í allra minnsta lagi. Svona 1/4 af salnum tengdist þeim sem sátu fyrir svörum eða þeim sem stóðu fyrir fundinum. Ekki mikið yfir 30 almennir fundargestir. Hitti
Guðbjörtu Gylfa þarna, sem var skemmtilegt. Hafði ekki séð hana í ár.
Til að fyrirbyggja allan misskilning, þá styð ég hvorki Samfylkinguna né Ingibjörgu Sólrúnu. Hún fær hinsvegar kredit hjá mér fyrir nokkra punkta sem hún kom með á þessum fundi. Aftur á móti féll hún í áliti hjá mér, þar sem ég taldi hana meiri skörung en hún virtist þarna. Var með svör og málflutning meðal atvinnustjórnmálamanns en ekkert umfram það. Hafði sannarlega tækifæri til að láta ljós sitt skína en talaði þess í stað mikið en sagði fátt.
Posted by Agust at
11:35 EH
|
Comments (0)
Breski og bandaríski herinn
Það er athyglisvert að fylgjast með umræðunni á BBC núna. Ég hef reyndar verið vant við látinn síðustu daga, en þegar ráðrúm hefur gefist hef ég náð nokkrum umræðum og viðtölum, bæði á BBC World Service í útvarpinu og BBC í sjónvarpinu.
Bandarískir hermenn eru óreyndir, trigger-happy, taugarveiklaðir strákpjakkar. Þetta er u.þ.b. það sem flestir eru sammála um. Reyndar nota þeir þessi orð ekki, skiljanlega, en þetta er boðskapurinn. Bandarískir hermenn eru almennt yngri en þeir bresku, þeir eru óreyndari og þeir fá ekki sömu nauðsynlegu þjálfunina og Bretarnir; þjálfun í samskiptum við heimamenn. Bandaríski herinn þjálfar almenna hermenn til árása, svo eru sérfræðingar þjálfaðir í að díla við heimamenn. Bretarnir hafa hinsvegar langa sögu hernáms, bæði á N-Írlandi og um allan heim á tímum heimsveldisins. Eitt af því sem breski herinn leggur upp úr er að hermennirnir virki ekki
fjandsamlegir á heimamenn. Mönnum er uppálagt að ganga ekki með sólgleraugu innan um heimamenn og mega frekar vera hjálmlausir en Bandaríkjamennirnir, sem leggja meira upp úr "öryggi" hermannanna en að virkja ekki
fjandsamlegir. Annað sem bresku hermennirnir eru kvattir til að gera, ólíkt þeim bandarísku, er að spila t.d. fótbolta við heimamenn og reyna eftir fremsta megni að minnka tortryggnina í þeirra garð.
Það skal þó tekið fram að flestir sérfræðingarnir sem rætt er við eru breskir, ekki það að þetta eru allt saman staðreyndir sem maður hefur heyrt áður. Á meðan Regular Joe í bandaríska hernum er tvítugur strákpjakkur að upplifa einhvern blautan byssudraum er týpískur breskur hermaður nær þrítugu og yfirleitt "yfirvegaðri".
Annað sem skiptir máli, fyrir utan þetta þjálfunar- og skilningsleysi Bandaríkjamannanna í samskiptum við heimamenn, er skæruhernaður í borgum (urban guerilla fighting). Margir hafa bent á að Bandaríkjamenn hafa mjög slæma reynslu af slíku og eru almennt hvorki þjálfaðir né réttum vopnum búnir undir slík átök. Aftur er t.d. Norður-Írland að nýtast Bretunum. Bretar þjálfa viðbrögð og aðgerðir í slíkum hernaði og hafa t.d. minni skriðdreka til að athafna sig innan borganna, kunna betur að forðast gildrur og fleira í þeim dúr.
Það hefur líka vakið athygli manns þegar Bandaríkjamenn hafa ráðist á borgir og þorp, gefið út fréttatilkynninguna um að viðkomandi staður hafi verið sigraður og svo berst tilkynning um að Bretarnir hafi verið kallaðir til að redda málunum þegar í ljós kemur að baráttan um viðkomandi stað er engan veginn lokið.
Manni finnst það samt athyglisvert að Bandaríkjaher, sem segir sig best búna, best þjálfaða, flottasta og stærsta her í heimi þarf að fá aðstoð frá Bretunum - og sú staðreynd sem fæstir virðast draga í efa utan Bandaríkjanna að bandaríski herinn sé e.t.v. best búni her heims en langt í frá sá best þjálfaði.
Posted by Agust at
10:40 EH
|
Comments (0)
apríl 01, 2003
A million deaths is a statistic

Jósef Stalín er eignuð setningin
A single death is a tragedy, a million deaths is a statistic. Ég geri þó ráð fyrir að hann hafi sagt þetta á rússnesku.
Hvað um það, núna er ég búinn að lesa og reikna tölfræði í dag og í gær og um helgina. Gott og blessað. Prófið er á morgun og ég stend, að ég tel, betur að vígi en nokkurn tímann fyrr.
Vandamálið er hinsvegar að núna er ég búinn bæði á sál og líkama og bara
get ekki hugsað mér meiri tölfræði. Kominn með allan pakkann, ógleði, svima, bakverki og vöðvabólgu. Ætla núna að reikna tvö dæmi í viðbót og þar sem er mínum undirbúningi lokið. Þarf svo að fara yfir efnið, punkta hjá mér og eyrnamerkja bókina, hvar hvað er o.s.frv. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna.
Posted by Agust at
08:10 EH
Floppy disk R.I.P.
Á BBC-vefnum er "
minningargrein" um floppy diskinn.
Ég nota ennþá floppy disk - í einum tilgangi - til að færa skjöl frá fartölvunni yfir í borðtölvuna (eða öfugt).
Ég man ennþá hvað það pirraði mig að vélritunarkennarinn minn í Verzló talaði aldrei um diskettur, heldur
skífur. "Jaáááá... þið þurfið að skila skífunum ykkar með verkefnunum..." Hljómar einsog það sé rosalega langt síðan... sem það er.
Ég á ennþá eftir ca. 10 stk. af floppy diskettum þannig ég þarf ekki að örvænta. Ég á líka einhverra hluta vegna óupptekinn kassa með 5 1/2" mjúkum floppy diskettum. Sá er heldur betur kominn til ára sinna. Reyndar voru litlu disketturnar búnar að ryðja sér til rúms. Aftur á móti voru þær bara 720 kb. þegar ég byrjaði að fikta við tölvur. Þá áttum við
Makkintoss tölvu sem var með svart/hvítum ca. 8" skjá en með hörðum diski og prentara. Það var merkilegt tæki.
Posted by Agust at
02:52 EH
|
Comments (0)