apríl 01, 2003
A million deaths is a statistic
Jósef Stalín er eignuð setningin A single death is a tragedy, a million deaths is a statistic. Ég geri þó ráð fyrir að hann hafi sagt þetta á rússnesku.Hvað um það, núna er ég búinn að lesa og reikna tölfræði í dag og í gær og um helgina. Gott og blessað. Prófið er á morgun og ég stend, að ég tel, betur að vígi en nokkurn tímann fyrr.
Vandamálið er hinsvegar að núna er ég búinn bæði á sál og líkama og bara get ekki hugsað mér meiri tölfræði. Kominn með allan pakkann, ógleði, svima, bakverki og vöðvabólgu. Ætla núna að reikna tvö dæmi í viðbót og þar sem er mínum undirbúningi lokið. Þarf svo að fara yfir efnið, punkta hjá mér og eyrnamerkja bókina, hvar hvað er o.s.frv. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna.
Agust skrifaði 01.04.03 20:10
Flokkun: Daglegt líf