maí 22, 2003
Sushi og hausmælingarkeppni
Í gær
Unnur og
Bjarni mér í sushi. Ég hef aldrei áður smakkað sushi. Ég hef aldrei áður þorað. Sushi fyrir mér hefur verið svona u.þ.b. eina
fæðutegundin sem ég hef hræðst að borða. Ég gæti gert langan lista yfir furðulegan mat sem ég hef ekki veigrað mér við að láta ofan í mig en sushi hefur einhvern veginn alltaf "hrætt" mig. Ég bara trúi ekki að hrár fiskur geti verið góður.
Hvað um það, ég þurfti að éta ofan í mig alla þessa hræðslu og fordóma. Sushiið hennar Unnar var alveg syndsamlega gott og það sem meira er, ég verð alveg pakksaddur. Hvernig þessir pínulitlu munnbitar, sem virðast ekki upp í nös á ketti, gera mann svona pakksaddan skil ég ekki.
Með sushiinu var að sjálfsögðu drukkið
sake. Ég viðurkenni það fúslega, sake er ódrekkandi að mér finnst. Ég smakkaði það fyrst einsog á að drekka það, við 40° og prufaði svo "on the rocks", hvort tveggja alveg ódrekkandi fannst mér. Montecillo hvítvínið er hinsvegar allt gott með fiski.
Yfir sushiinu leiddist umræðan að hausstærðum og var málband sótt og hausar matarboðsgestanna mældir. Ég marði sigur. Jói, hinn matarboðsgesturinn, reyndist hafa næstum jafn stóran haus og ég. Reyndar kom út úr þessari mælingu að hausinn á mér hefur "minnkað" um 1 cm. síðan á útskriftinni fyrir tveimur árum. Ég vil þó meina að ég hljóti að hafa minna af hári en þá :-)
Jói er að fara að útskrifast stúdent sem er fyndið í ljósi þess að hann var síðast í framhaldsskóla fyrir ca. fimm árum síðan. Frekar skrítið en nýstúdentar þurfa hvíta kolla og þar sem ég er með jafn afbrigðilega stóran haus og hann varð úr að hann fær stúdentshúfuna lánað hjá mér.
Í dag fann ég svo loksins húfuna, eftir langa leit. Nýstúdentinn getur því sótt hana við tækifæri, fyrir útskriftina.
Posted by Agust at
12:17 FH
|
Comments (0)
maí 16, 2003
Úthverfin
Skemmtilegur pistill hjá
Tomma.
Sjálfur myndi ég aldrei búa í úthverfunum sjálfviljugur, en það er aukaatriði. Það er aftur á móti fyndið hvernig fólk sem býr í Reykjavík lítur á úthverfin sem eitt samfellt terratory. Ég veit t.d. ekki um neina aðra en fólk sem býr vestan Kringlumýrarbrautar sem lítur á Breiðholtið "á leiðinni" í Hafnarfjörð! Ekki það að einsog ég hef margoft sagt að ég bý hvort eð er svo langt í burtu að aðeins Akranes og Selfoss er ekki "í leiðinni" heim úr Reykjavík.
Ég held líka að Tommi sé ekki eini maðurinn sem hefur fengið póst "112 Grafarvogur" :-)
Posted by Agust at
01:56 EH
|
Comments (0)
maí 11, 2003
Mæður
Í dag er mæðradagurinn. Tradisjónan á mínu heimili er að mæður fái blóm á konudaginn en þessi dagur hefur enga merkingu fyrir mig þannig, enda vissi ég ekki af honum fyrr en í gær. Kannski ég sé ómögulegur sonur, má vera.
Aftur á móti verð ég að koma hér að tilvitnun í Woody Allen úr Manhattan.
(Fyrrverandi kona W.A. í myndinni er nú í sambúð með annarri konu og hefur forsjá yfir barni þeirra)
Diane Keaton: Two mothers are absolutely fine.
Woody Allen: Really? Because I always feel very few people survive one mother.
En ætli ég verði ekki að bæta upp þetta mean comment um mæður með að vitna í Gyðinga. "Guð getur ekki verið alls staðar, þess vegna eru mæður".
Posted by Agust at
08:11 EH
maí 04, 2003
Kringlukráin
Fór áðan ásamt fjórum öðrum á Kringlukránna, enda allt annað lokað í Kringlunni og mannskapurinn orðinn mjög svangur.
Við setjum inn og á sama tíma kom kona með dóttur sinni inn.
Eftir sléttan klukkutíma fengum við loks matinn okkar. Tíu mínútum áður hafði konan og dóttirin farið út, búnar að borða.
Ekki nóg með að maturinn kæmi ekki fyrr en eftir klukkutíma, heldur pantaði
María Björk pizzu með skinku, sveppum og svörtum pipar. Hún fékk pizzu með skinku, hitt var ekki til.
Við kvörtuðum, vitanlega, þegar komið var að því að borga. Viska er með fastan 10% afslátt, gott og vel. Við sem biðum í klukkutíma og fengum aftur á móti 15% afslátt og sú sem fékk allt annað en hún pantaði fékk 20%! Með öðrum orðum fengum við 5% og 10% afslátt fyrir þessa lélegu þjónustu.
Ég er ekki sáttur, þið metið sjálf hvort þetta sé boðlegt fyrir alla þessa bið.
Posted by Agust at
07:57 EH
|
Comments (0)
apríl 22, 2003
Líf mitt
Það verður ekki annað sagt en að það sé nóg að gera hjá mér þessa dagana.
Þrátt fyrir það virðist ég hafa dustað rykið af gömlu áhugamáli.
Á annan dag páska vaknaði ég ekki fyrr en undir hádegi. Engu að síður varð mikið úr þeim degi. Fyrst fór ég á hestbak í fyrsta skipti síðan haustið 1997 (fór reyndar í stuttan reiðtúr á gamlársdag sama ár sem varla telst með) og hef síðan þá ekki stigið í ístöð. Ég virtist þó hafa litlu gleymt á fimm og hálfu ári.
Seinnipartinn sama dag þurfti ég að skjótast upp á Bifröst. Renndi uppeftir og borðaði kvöldmat með
Stefáni Einari í Borgarnesi. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fer út á land síðan ég fór á svipaðar slóðir haustið 2001. Það var því komið eitt og hálft ár síðan ég fór út á landsbyggðina, ef Miðnesheiði, Keflavíkurflugvöllur og Mosfellsdalur eru ekki taldir með.
Að lokum fórum við Hákon á Johnny English um kvöldið. Ég fer sárasjaldan í bíó og verður þetta því að teljast viðburður í mínu lífi. Fór síðast á
Tanguy á franski kvikmyndahátíð í janúar.
Í dag fór ég svo aftur á bak. Það sem ég segi, maður þarf ekki annað en finna lyktina aftur og þá er maður búinn að taka bakteríuna.
Posted by Agust at
09:46 EH
apríl 14, 2003
Af mér
Ég kláraði síðasta prófið á laugardaginn. Kíkti í lítið partý um kvöldið og svo til
Siggu. Þar sá ég bíómynd með
Peter Ustinov sem kemst tvímælalaust a.m.k. á topp tíu listann hjá mér - yfir verstu bíómyndir sem ég hef séð. Hún heitir
Charlie Chan (1981) og er bara hörmung í einu orði sagt.
Skv.
IMDb.com er Charlie Chan karaketer sem um 40 myndir voru gerðar um á 4. og 5. áratugnum. Einnig voru gerðir sjónvarpsþættir '57 og ein sjónvarpsmynd '79. Upprunalegi
Charlie Chan var leikinn af sænskum leikara á fjórða áratugnum og eftir það voru það bandarískir leikarar sem léku hann. Í sjónvarpsmyndinni '79 var hann leikinn af Pólverja. Það lá því beinast við að fá annálaðan breskan leikara til að leika hann, eða hvað? En einsog ég sagði, skelfilega léleg mynd.
Gærdagurinn fór svo í fjölskylduboð og aðrar skyldur en svo kom
Sigga í heimsókn að ræða lífsins gagn og nauðsynjar.
Í dag var svo byrjað í verkefnavinnu vorsins. Nú er það stefnumótun, lítur ágætlega út, spenntur fyrir framhaldinu.
Ég á eftir að lesa heilan helling af efni sem ég hef ekki komist yfir vegna prófa og annarra anna. Dagurinn í dag og næstu tveir dagar munu líklegast fara í aðrar skyldur en skemmtilestur og verður sjálfsagt enn bið á uppfærslum á þessari síðu þangað til um helgidagana.
Vonast til að geta lesið eitthvað í þessum 7-8 bókum sem ég er með á náttborðinu núna, svo á ég vænan bunka af tímaritum og útprentuðum greinum sem bíða mín, fyrir utan allt internet-efnið sem ég hef ekki komist í að lesa síðastliðinn hálfan mánuð. Nóg að gera, en ég get ekki beðið að sökkva mér í þetta :)
Nú er ég aftur á móti á leiðinni í klippingu, nokkuð sem hefur setið á hakanum alltof lengi!
Posted by Agust at
03:43 EH
apríl 03, 2003
Sitt lítið af hverju
Verð að benda á það sem Unnur skrifaði í dag:
Kynlífslaus framhaldsstofnfundur Femínistafélags Íslands. Titillinn segir ekki allt, þar sem pistillinn hennar er mun víðtækari. Mjög athyglisvert.
Núna eru ár og dagar síðan ég náði að lesa ráðlagðan lágmarks dagskammt af lesefni. Get ekki beðið eftir að hafa (vonandi) 2-3 daga í lestur þegar prófin eru búin. Er með svona 4 bækur sem ég þarf urgently að lesa, auk þess fullt af greinum á netinu sem ég þarf að vinna upp.
Ég er hræddur um að ég þurfi að fá mér ný gleraugu. Þessi sem ég er búinn að ganga með núna í rúm fjögur ár eru bara engan veginn nógu "sterk". Hættur að sjá nokkuð þegar ég er þreyttur (einsog í dag). Núna t.d. sé ég ekki einu sinni tölvuskjáinn í ásættanlegum fókus. Skrambinn hafi það, gleraugu eru dýr og vaxa ekki á trjánum :-(
Hanna Mæja, gamli íslenskukennarinn minn, farin að láta
Stefán Einar kenna íslensku í Verzló. Það hefur verið án efa athyglisvert, enda strákurinn með ómældan áhuga og ást á íslenskum fræðum. Hann hefur án efa staðið sig ágætlega og farið í Grím Thomsen af mikilli innlifun ;-)
Posted by Agust at
12:32 FH
apríl 01, 2003
A million deaths is a statistic

Jósef Stalín er eignuð setningin
A single death is a tragedy, a million deaths is a statistic. Ég geri þó ráð fyrir að hann hafi sagt þetta á rússnesku.
Hvað um það, núna er ég búinn að lesa og reikna tölfræði í dag og í gær og um helgina. Gott og blessað. Prófið er á morgun og ég stend, að ég tel, betur að vígi en nokkurn tímann fyrr.
Vandamálið er hinsvegar að núna er ég búinn bæði á sál og líkama og bara
get ekki hugsað mér meiri tölfræði. Kominn með allan pakkann, ógleði, svima, bakverki og vöðvabólgu. Ætla núna að reikna tvö dæmi í viðbót og þar sem er mínum undirbúningi lokið. Þarf svo að fara yfir efnið, punkta hjá mér og eyrnamerkja bókina, hvar hvað er o.s.frv. Svo er bara að treysta á guð og lukkuna.
Posted by Agust at
08:10 EH
mars 30, 2003
Andvarp!
Í tölfræði ei slingur telst
og tómur er hjá mér kofinn.
Í formúlunum eitthvað felst,
svo fúll ég verð og dofinn.
Posted by Agust at
01:50 FH
mars 09, 2003
Hið æsispennandi líf mitt
Kominn tími á smá dagbókarfærslu hérna á síðunni.
Fyrir rúmum hálfum mánuði (hvað tíminn líður fljótt...) vakti ég dag og nótt að berja saman ritgerð í stjórnun. Það hafðist með því að sleppa því að sofa (ef aðeins væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum...). Að hluta til tímaleysi, að hluta til skipulagsleysi, en svona er þetta stundum. Hafði verið heldur strembin vika, stefnumótunarprófið á fimmtudeginum gekk vel (vona ég a.m.k.) og var prófið nokkuð sanngjarnt. Um nóttina svaf ég ekkert (lagði mig í tvo tíma í stað þess að mæta í tölfræði) og var fram á síðustu stundu að laga ritgerðina til. Hljóp næstum niður deildarforseta lagadeildar í stiganum upp á skrifstofu (hef sjaldan hlaupið eins hratt) og náði að skila á slaginu fimm á föstudeginum.
Fór svo heim og reyndi að fara að sofa en gelgjuafmæli systur minnar kom í veg fyrir það. Var orðinn ruglaður af svefnleysi og svaf lítið þegar ég loksins gat það (ekki). Eyddi laugardeginum í hálfgerðu svefnmóki. Ljósritaði markaðsfræðibókina hjá
Ingu Steinunni, sem átti afmæli þann dag, og auðvitað fékk hús rós í tilefni dagsins.
Einbeitingin var undir frostmarki og horfði ég því á megnið af "Kúrekum norðursins" eftir Friðrik Þór. Íslensk drykkju(ó)menning á Kántríhátíð 1983... úff! Þó maður þekkti ekkert af fólkinu, kannaðist maður engu að síður við karakterana og
stemmninguna. Hef aldrei skilið hvernig menn geta setið hest þegar þeir standa varla í lappirnar af ölvun. Skildi þennan "hæfileika" aldrei og skil ekki enn. Vonandi að íslenskir drykkjusiðir hafi batnað eitthvað, allavega finnst manni það.
Sunnudagurinn fór svo í lestur fram á nótt og prófið á mánudagsmorgninum gekk bærilega. Sami mánudagur reyndist afmælisdagur minn og ákvað ég, þar sem arabískunámskeiðinu sem ég átti að byrja á um kvöldið var frestað um viku (byrjar semsagt annað kvöld) að bjóða nokkrum gestum í bollukaffi í tilefni dagins, sem var jú í ofanálag bolludagur.
Hélt svo eitt fjölmennasta afmæli sem ég hef haldið í háa herrans tíð, heilar sjö hræður, sem gúffuðu í sig á fjórða tug bolla og kaffi með. Bara sáttur við daginn, fékk m.a.s. nokkrar gjafir :-) Einhverra hluta vegna voru allar afrekssögur
Þóris og Jóa rifjaðar upp, einsog svo oft áður. Enginn af þessu fólki mun hjá Pringles í sama ljósi eftir þá sögu...
Svo fór vikan í misskemmtileg verkefni og annað vesen, en þó mest í að læra undir tölfræðiprófið sem var svo á föstudaginn. Það gekk síðan bara bærilega, held ég nái jafnvel að rúmlega tvöfalda einkunnina frá því síðast, enda Wilcoxon mikill vinur minn.
Ég föstudagskvöldið, meðan ég bauð eftir hinum ómissandi Osbournes-þætti, las ég litla bók sem
Svana svefnpurka gaf mér í afmælisgjöf, "Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum" eftir George H.F. Schrader. Heilræðakver sem gefið var út 1913 og Ásgeir Jónsson og Viðskipta- og hagfræðideild HÍ hafa nú endurútgefið. Áhugavert fyrir svona sögunörda einsog mig :-)
Svaf svo vel og lengi (loksins). Gerði fátt merkilegt þangað til ég fór og borðaði með
Siggu. Afrekaði svo að horfa á einhverja mynd með Johnny Depp þar sem hann lék helsta kókaínbarón Bandaríkjanna um 1980.
Missti af megninu af Silfrinu í dag, var í heimsókn hjá ömmu og kom ekki heim fyrr en að ganga tvö. Þegar ég kveikti á sjónvarpinu virtust menn vera á mörkum þess að hjóla í hvern annan. Hannes Hólmsteinn virtist m.a.s. vera rólegastur af þeim. Þarf að sjá endursýninguna í kvöld, eitthvað mikið hefur gengið á. Arnór Hannibalsson spjallaði stuttlega um Stalín. Einhverja nóttina í vikunni heyrði ég endurtekningu á dægurmálaútvarpinu á Rás 2. Þar var rætt við Óla komma. Hann gekk algjörlega fram af manni. Stalín var víst bara fínn karl, þetta er allt misskilningur, svona einsog með Jesú Krist. Ef menn lýsa yfir að helförin hafi verið blöff verða menn reiðir og fordæma þá. Gamlir eftirlegukommar eru hinsvegar dregnir í útvarpið til að dásama mikilmennið Stalín.
Sá sem tók viðtalið talaði til stalínistans einsog ekki væri ágrenningur meiri en hvort væri betra lið, KR eða Valur. Jólasveinninn að norðan hneykslaði mig ekki eins mikið og sá sem dró hann í útvarpið og hafði varla fyrir því að andmæla honum, "Ha, neinei, nú hefur Valur ekki unnið titilinn í háa herrans tíð, hvernig útskýrirðu það þá?". Íslenskt fjölmiðlafólk alltaf jafn professional, það má það eiga - ekki.
Nú bíður mín hinsvegar alþjóðafjármálaverkefnið. Síðan er arabískunámskeiðið að byrja í þessari viku og skil á stórri skýrslu á föstudaginn. Nóg að gera. Svo vona ég að ég fái nokkra daga til að t.d. hitta fólk sem ég hef vanrækt undanfarið. Síðan byrjar próflestur, próf síðustu tvær vikurnar fyrir páska.
Posted by Agust at
04:16 EH
mars 03, 2003
3. mars
Hér með tilkynnist að ég á
afmæli í dag :-)
Posted by Agust at
02:28 EH
mars 01, 2003
Afmælisstelpur
Í dag, 1. mars, eiga bæði
Inga Steinunn og
Þórunn afmæli. Til hamingju með afmælið stelpur!
Ég er að vinna með þeim að verkefni í fjögurra manna hópi. Þær tvær eiga afmæli í dag og ég á svo afmæli ekki á morgun heldur hinn. María greyið þarf svo að vinna með þremur fiskum en hún átti afmæli fyrir tæpum mánuði.
Svona líka samstilltur hópur :-)
Posted by Agust at
10:35 EH
febrúar 26, 2003
Don't Worry, Be Happy
Já, það er ekki að ástæðulausu að ég spila núna Bobby McFarrin aftur og aftur. Í morgun var nefnilega tölfræðiprófinu ógurlega frestað um viku (kallast gálgafrestur). Það er mikill munur, en eftir sem áður: próf á fimmtudag og ritgerðarskil á föstudag.
Það sem er hinsvegar enn ánægjulegra er að það virðist eitthvað vera að birta til hjá mér í tölfræðinni, allavega tókst mér að skilja (nánast) allt tvo tíma í röð. Svo er ég sannfærður um að ég geti þetta allt saman með smá átaki - don't worry, be happy!
Ritgerðin er u.þ.b. hálfnuð - og nóg af efni eftir í kollinum á mér. Hún verður því vonandi ásættanleg, sem hefði aldrei tekist samhliða því að læra undir tölfræðipróf. Þess vegna segi ég aftur: don't worry, be happy.
Stefnumótunarprófið reynir vonandi bara á "heilbrigða bissnissskynsemi". Er svona circa hálfnaður með að læra undir það og vonandi verður ekki spurt út í nein smáatriði úr lesefninu eða eitthvað svoleiðis rugl. Ég hef svo mikla trú á
kennaranum, sem er topp náungi, að ég hef engar stórar áhyggjur (þrátt fyrir að það virðist einhver einkunna-ógæfa vofa yfir mér eftir áramótin), ég á að kunna þetta - don't worry, be happy!
Heilsan virðist vera eitthvað að hökkta en ég held að það sé bara af svefnleysi og streitu. Þar sem tölfræðiprófið frestast ætti ég að ná kristlegri svefntíma og svo er bara að dæla í sig vítamínum - don't worry, be happy!
ps.
Á morgun er víst kosið í HÍ til stúdentaráðs. Sjálfur myndi ég kjósa Vöku, þá meira fyrir hópþrýsting en annað. Ég er voðalega feginn að í HR snúist hlutirnir um hagsmuni nemenda og einstaklinga en menn skipi sér ekki í fylkingar á móti hvorum öðrum. En einsog ég segi, ég myndi kjósa Vöku, enda
Gulli, vinur minn, á lista þar. Ég veit að hann gerir það sem hann gerir af heilindum. Auk þess hef ég heyrt að Vaka hafi verið að gera góða hluti síðastliðið ár. Það er líka alltaf gott að fá nýja strauma inn þegar ákveðinn hópur hefur stjórnað of lengi með tilheyrandi stöðnun, einsog var með Rösvku.
Ég hef margoft lýst þeirri skoðun minni að mér finnst fyrirkomulagið á þessum kosningum vesturfrá asnalegt. Ógurleg (peninga- og) orkueyðsla sem fer í að berjast á einhverjum ímynduðum vígvelli, þegar það sem mestu máli skiptir, hagsmunir stúdenta, ætti að vera sameiginlegt markmið allra.
Engu að síður, áfram Vaka!
Posted by Agust at
12:57 FH
febrúar 21, 2003
Gettu betur
Var að horfa á Gettu betur keppni gærdagsins á vídjói, þar sem ég gat aðeins séð hraðann í gær. MH-ingar sýndu afburðagóðan árangur í hraða en vantaði greinilega mikið í bjöllunni. Verzlingar voru á hálfu tempói og misstu a.m.k. tvo stig sem áttu að vera gefin. Svo fannst mér fúlt að sjá MH-inga taka
Túrkmenistan.
Strákarnir áttu að þekkja landið á korti eða tengja þegar sagt var frá þjóðflokknum (Túrkmenum). Annars voru þeir óvenju óheppnir með nokkrar spurningar, sem þeir voru með á hreinu en náðu ekki svara þegar þeir bjölluðu snemma til að ná svarinu. Eftir hraðann áttu þeir þó aldrei nema takmarkaða möguleika, þannig þetta skipti engum sköpum. Ég verð að segja að svona er keppnin leiðinlegri, hraðinn á ekki að vera 70% af keppninni. Það er ekkert skemmtilegt. Fjölga þarf bjölluspurningum og mættu þær í sjálfu sig vera tvö stig (enda oft spurt um tvö eða fleiri atriði). Hraðinn er kominn út í svo miklar öfgar hjá þeim liðum sem æfa stíft. Hraðinn er skemmtilegur en má ekki ráða úrslitunum, þá er engin spenna ef munurinn er jafnvel 7 stig (á tveimur sterkum liðum). Annað ráð er að þyngja hraðann en þá kemur á móti að þetta er sjónvarpsskemmtiefni og ef þetta er orðið of erfitt til að fólk geti reynt að svara heima í stofu, þá hættir þetta að vera gaman. Við höfum séð slíkar hraðaspurningar áður og það var ekki til bóta.
Svo verð ég að hrósa Oddi, Túra og félögum fyrir frábært atriði frá Verzló. Eitt af þremur skemmtilegustu atriðunum sem ég man eftir, svei mér þá.
Posted by Agust at
05:09 EH
Hafnarfjörður-Ofanleitið
Í á sjötta ár hef ég ferðast á milli heimilis míns í Hafnarfirði og Ofanleitisins hérna í Reykjavík. Mér telst til að ég hafi farið þess leið rúmlega þúsund sinnum, því oft hef ég þurft að fara hana tvisvar sama daginn og stundum oftar en það. Fyrst ferðaðist ég alltaf með strætó en síðustu ár nær eingöngu á eigin bíl.
Í morgun setti ég næstum persónulegt met. Ég hef aðeins einu sinni verið lengur í skólann en í morgun. Metið er síðan í janúar/febrúar 1999, þá lagði ég af stað 7:55 og var kominn inn í Verzló klukkan 8:50, 55 mínútum seinna, þrátt fyrir að hafa farið "efri leiðina" sem þá var ennþá fljótari. Í morgun lagði ég hinsvegar af stað 7:55, skuttlaði systur minni í skólann, sem tefur mig ekki nema um í mesta lagi 3 mín. og kom mér svo fyrir í bílalestinni sem náði inn að kirkjugarðinum í Hafnarfirði (það gerist sárasjaldan). Ég kom í skólann 8:45, 50 mínútum eftir að ég lagði af stað. Frá kirkjugarðinum í Hafnarfirði setti ég tvisvar í 2. gír, annars var það gírgangur í fyrsta.
Það þýðir að þar sem leiðin er rétt um 10 km. að meðalhraðinn á leiðinni hafi verið 12 km/klst. Það er góður skokkhraði.
Posted by Agust at
11:49 FH
febrúar 16, 2003
Sunnudagur
Leiðinlegasti dagur vikunnar. Eitthvað til að blaða í með kaffinu, meðan veðrið herjar á gluggann:
The Price We Pay: tveir sérfræðingar meta kostnaðinn við innrás í Írak, 127-682 milljarða dollara.
Peking Duct Tape: Friedman hefur skrifað nokkra pistla undanfarið sem ég hef ekki verið sammála, en þarna kemur hann með góðan punkt, hvers vegna eru Kínverjar ekki að beita sér meira í diplómatískum þrýstingi á Saddam og Kim?
The Venus Trap: Dowd - "The secretary of state had said the Security Council session with Hans Blix and Mohamed ElBaradei would be "the moment of truth" for Iraq. But it turned into the St. Valentine's Day massacre of America."
Annars þoli ég ekki að hafa svona tight schedule. Mig langar t.d. að lesa urmul af (oft á tíðum mjög löngum) greinum. Einsog t.d. þessa:
Unspeakable Conversations. Ég ætla hinsvegar ekki að gera mér það, sem ég hef gert alltof oft í vetur, að lesa sunnudagsblað og magasínið í New York Times fram undir mánudagsmorgun, þegar ég hef ekki komist í að lesa það fyrr en seint á sunnudagskvöldi. Svefn er bara of verðmætur þessa dagana.
Síðasta vika var ansi strembin, ekki var kvef og hausverkur að bæta það. Var veikur um síðustu helgi og í upphafi vikunnar. Barðist svo við hausverk með tilheyrandi einbeitingarleysi þegar ég þurfti á allri einbeitingu á að halda. Setti persónulegt met í paratabsáti.
Á föstudaginn náði ég að klára tölfræðiverkefnið sem ég vann í vikunni og hljóp upp á skrifstofu að skila. Var tveimur mínútum of seinn að skila (var að drífa mig svo mikið á milli hæða að ég hljóp óvart einhvern saklausan tölvunarfræðinema niður á göngunum). Þarf að semja við kennarann um afslátt á frádráttinn fyrir að skila of seint.
Eftir að hafa komið að lokuðum dyrum á skrifstofunni dreif ég mig inn í Samskip í vísindaferð. Þetta var ein besta vísindaferðin sem ég hef farið í og var fólk svo áhugasamt með spurningar í fyrirlestrinum að tíu mínútur fóru í spurningar áður en sá sem flutti fyrirlesturinn um fyrirtækið gat byrjað á glærunum sínum. Samskip komu vel út úr þessu sem áhugavert fyrirtæki í hraðri uppbyggingu.
Svo fór ég heim og mig snyrti, um fötin skipti og fór svo í Valintínusarpartý til Bjarna&Unnar. Það var fínt. Fór reyndar að spá í hvort ég væri á góðri leið að verða einn af þessum óþolandi mönnum sem tala sífellt um vinnuna sína, þar sem ég einhverra hluta vegna þurfti að þreyta fólk á tali um markaðssetningu bjórtegunda (þó ég sé ekki að markaðssetja neinn bjór, þá er makaðsfræði það sem ég er hugsa mest um þessa dagana).
Hvað um það, ég lét
hjartalagaða dópið alveg vera í partýinu og komst klakklaust heim til mín og steinsofnaði um leið. Í gær kom ég svo ýmsu í verk, þó nær engu af því hafi verið það sem ég ætlaði mér að koma í verk um helgina. Svona er þetta.
Í gær hafði líka
Ármann pjakkur samband við mig. Lét mig vita að ef einhver ókunnug stelpa hringdi í mig, þá væri það líklegast vegna þess að hann hafi látið hana hafa símanúmerið mitt. Að vonum brást ég ekki vel við þessari framtakssemi hans í match-making tilraunum hans. Stelpan hefur hinsvegar ekkert hringt... sem ég veit ekki hvort er gott eða slæmt :\
Í dag er ég svo að reyna að ráðast á verkefnalistann. Hef svo verið enn duglegri að muna eftir hlutum sem vantar á listann, þannig schedulinn er að verða vel útfylltur.
Svo ætlaði ég mér að fara á framhaldsnámskeið í arabískunni í mars og apríl (sem nær fram í fyrri prófavikuna) og verður það frekar strembið, svo framarlega sem ég ætla að taka þetta alvarlega og nýta þetta námskeið almennilega. Ég var líka að taka það saman í huganum að það stefnir í að þetta Mið-Austurlanda hobbý mitt er búið að kosta mig circa 100 þús. kall síðasta árið. Eins gott að maður á sér ekki mörg hobbý.
Það verður þó ekki annað sagt en að ég sé að mestu upptekinn við áhugaverð verkefni þessa dagana. Þannig nóg af blaðri, back to work!
Posted by Agust at
03:35 EH
febrúar 10, 2003
Spakmæli dagsins
"Ef þú ert prestur, þarftu að geta messað yfir fleirum en kórnum."
Posted by Agust at
07:09 EH
Hr. Hnerri
Hr. Hnerri

Ég er búinn að vera fullur af kvefi um helgina og það virðist vera að ágerast frekar en hitt :-(
Kannski ég ætti að sætta mig við að ég sé veikur, en ekki bara þykjast og vera að vinna á fullu. Ég er búinn að vera að síðan 8 í morgun. Fór í próf í Markaðsfræði 2 og gekk það eins við var að búast. Kunni (að því er mér a.m.k. fannst)
bókina utanað enda stutt og ansi skemmtileg bók.
Svo er ég búinn að vera að vinna að verkefnum hérna heima síðan í morgun og má ekkert vera að því að leika aumingja með kvef. Nóg að gera þessa dagana, enda febrúar og mars ein allsherjar törn, og svo tekur prófatörn við þar á eftir.
Því situr Hr. Hnerri bara með sveittan skallann og hamrar á tölvuna.
Posted by Agust at
03:49 EH