febrúar 21, 2003
Gettu betur
Var að horfa á Gettu betur keppni gærdagsins á vídjói, þar sem ég gat aðeins séð hraðann í gær. MH-ingar sýndu afburðagóðan árangur í hraða en vantaði greinilega mikið í bjöllunni. Verzlingar voru á hálfu tempói og misstu a.m.k. tvo stig sem áttu að vera gefin. Svo fannst mér fúlt að sjá MH-inga taka Túrkmenistan. Strákarnir áttu að þekkja landið á korti eða tengja þegar sagt var frá þjóðflokknum (Túrkmenum). Annars voru þeir óvenju óheppnir með nokkrar spurningar, sem þeir voru með á hreinu en náðu ekki svara þegar þeir bjölluðu snemma til að ná svarinu. Eftir hraðann áttu þeir þó aldrei nema takmarkaða möguleika, þannig þetta skipti engum sköpum. Ég verð að segja að svona er keppnin leiðinlegri, hraðinn á ekki að vera 70% af keppninni. Það er ekkert skemmtilegt. Fjölga þarf bjölluspurningum og mættu þær í sjálfu sig vera tvö stig (enda oft spurt um tvö eða fleiri atriði). Hraðinn er kominn út í svo miklar öfgar hjá þeim liðum sem æfa stíft. Hraðinn er skemmtilegur en má ekki ráða úrslitunum, þá er engin spenna ef munurinn er jafnvel 7 stig (á tveimur sterkum liðum). Annað ráð er að þyngja hraðann en þá kemur á móti að þetta er sjónvarpsskemmtiefni og ef þetta er orðið of erfitt til að fólk geti reynt að svara heima í stofu, þá hættir þetta að vera gaman. Við höfum séð slíkar hraðaspurningar áður og það var ekki til bóta.Svo verð ég að hrósa Oddi, Túra og félögum fyrir frábært atriði frá Verzló. Eitt af þremur skemmtilegustu atriðunum sem ég man eftir, svei mér þá.
Agust skrifaði 21.02.03 17:09
Flokkun: Daglegt líf